Dagblaðið - 29.08.1981, Page 24
Kjararannsóknamefnd gerir alhliða úttektá vinnumarkaðinum:
Kaupmáttur verkakvema
rýmar meira en karla
Kaupmáttur greidds tímakaups í
dagvinnu jókst um 1% hjá verka-
mönnum, 1.4% hjá iðnaðarmönn-
um, en rýmaði um 2.4% hjá verka-
konum frá seinasta ársfjórðungi 1980
til fyrsta ársfjórðungs 1981. Niður-
stöður kjararannsóknarnefndar
benda til þess að við samningana sem
gerðir voru 27. okt. á síðasta ári hafi
kaup verkakvenna á höfuðborgar-
svæðinu hækkað um 11% meðan
kaup verkamanna á sama svæði hafi
hækkað um 13%. Hins vegar fengu
verkakonur sína hækkun strax,
meðan stórir hópar verkamanna og
iðnaðarmanna fengu ekki hækkun
fyrr en rétt fyrir eða eftir áramót.
Kjararannsóknarnefnd vinnur nú
að alhliða úttekt ávinnumarkaðinum
þar sem skoðuð eru atriði eins og t.d.
tíðni hlutastarfa, skipting þeirra eftir
kynjum og hversu margir em í
hverjum launaflokki. Nær könnunin
til 40 þúsund launþega innan ASÍ og
er vonazt til að niðurstöður hennar
verði nótadrjúgar við gerð næstu
kjarasamninga.
öll fyrirtæki innan VSf og VMSS
hafa fengið tilmæli um að gefa
upplýsingar í þessu sambandi og
komin eru svör frá um 25% þeirra en
vonazt er til að fleiri svör berist
næstu daga.
-IHH.
V
Hallgrímur „Bakkus” er
kominn úr hringferöinni
Skódinnsló ekki feilpúst alla leiðina
L
riallgrimur Marinósson fagnar því að vera kominn á áfangastað. Ekki voru þreytumerki sjáanleg á honum er hann bakkaði í mark i gær.
DB-mynd: Einar Óiason.
Hallgrímur „Bakkus” Marinósson
hafði það af að bakka í kringum landið
á fyrirfram áætluðum tíma. Hann kom
í mark klukkan fimm í gær og var vel
fagnað. Vegalengdin sem hann lagði að
baki eða öllu heldur bringu var um 1570
kílómetrar. Fyrir þetta afrek fær hann
væntanlega nafn sitt skráð í heims-
metabók Guinness.
Samhliða bakkinu fór fram fjársöfn-
un fyrir Þroskahjálp. Þeirri söfnun
lýkur ekki fyrr en helgin er öll þannig
að enn er ekki ljóst hversu mikil
upphæð safnaðist.
Síðasti áfangi Hallgrims var frá
Borgamesi til Reykjavíkur. Ferðin
gekk að óskum og varð hann ekki
fyrir nema tveimur smáóhöppum á
leiðinni. Hann var mjög ánægður með
hvemig Skoda bifreiðin sem hann
bakkaði reyndist. Hún bilaði ekkert og
sló ekki feilpúst. Eina bilunin í allri
ferðinni varð þegar afturþurrka bílsins
gaf sig. Hún var sérstaklega sett á fyrir
ferðina og var ekki frá Skoda
verksmiðjunum.
Hallgrímur Marinósson lagði af stað
í hringferðina þann 11. þessa mánaðar.
Hann kvaðst hafa getað verið mun
fljótari í förum þar eð allt gekk að
óskum. Hann þurfti ekki að aka nema í
fjórar til fimm klukkustundir á dag og
var því prýðilega vel á sig kominn er
hann bakkaði í mark í gærdag.
-ÁT-
BUBBISEGIR SKIUÐ
VID UTANGARDSMENN
- hyggst nú stof na nýja hl jómsveit sem hef ur m.a. bárujárnsrokk áef nisskránni
hann bar til baka fregnir um að
hann væri einn meðlimanna.
Bubbi hyggst að einhverju leyti
snúa sér að þyngra rokki en hann
hefur verið að leika undanfarið með
Utangarðsmönnum og stefnan hefur
verið sett á bárujárnsrokk. „Þú mátt
endilega segja frá því að okkur
vantar góðan trommuleikara sem
getur leikið þessa tegund rokks, þ.e.
bárujámsrokk,” sagði Bubbi og
virtist í einu og öllu sæU og ánægður
með tilveruna. Utangarðsmennirnir
fjórir sem eftir eru mtmu ætla að
halda áfram samstarfmu.
-SSv.
Togstreitunni innan Utangarðs-
manna er lokið. Bubbi Morthens,
söngvari og aðalforsprakki hljóm-
sveitarinnar, er hættur. AUt frá því
Utangarðsmenn héldu í tónleikaferð-
ina til Norðurlanda í sumar hefur
þessi orðrómur verið á sveimi en er
nú ekki lengur orðin tóm.
„Jú, þetta er rétt. Ég er hættur
með Utangarðsmönnum,” sagði
Bubbi í samtaU við DB í gær. „Þetta
var þó allt saman í mesta bróðemi
sem betur fer en sannleikurinn var
bara sá að við vorum orðnir þreyttír á
þessu og þá ekki síður hver á öðrum.
Þessi ákvörðun hefur verið í deigl-
unni undanfarið en ég tók af skariö
fyrir skömmu og hætti”.
Eftir því sem DB kemst næst hefur
Bubbi verið að spila með ónafn-
greindum hljóðfæraleikurum undan-
farið og eina nafnið sem staðfest
hefur verið er nafn Ragnars Sigurðs-
sonar gítarleikaia. Þá var nafn
Björgvins Gíslasonar einnig nefnt, en
Bubbi Morthens: „Við vorum orðnir
þreyttir hver á öðrum.”
DB-mynd: Sig. Þorri.
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST1981.
Tveir ungir skólaskákmelstarar verða
fyrstir til að leika á útitafiinu f mið-
borginni i dag. Væntanlega hafa þeir
fulla stjóm á óútreiknanlegasta tafl-
manninum, riddaranum.
DB-mynd: Gunnar Örn.
Útitaflið
vígt í dag
— borgarstjórinn leikur
fyrsta leikinn
Útitaflið á Bernhöftstorfunni verður
vígt í dag kl. 14. Tveir tólf ára gamlir
piltar, Tómas Björnsson, skólaskák-
meistari íslands, og Þröstur Þórhalls-
son, skólaskákmeistari Reykjavíkur,
leika fyrstu skákina. Hefur hvor þeirra
tuttugu mínútur í umhugsunartíma.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Egill
Skúli Ingibergsson, mun leika fyrsta
leikinn í skák ungu piltanna. Áður
munu hann og formaður Taflfélags
Reykjavíkur flytja stutt ávörp.
Að lokinni skák piltanna hefst
keppni átta sveita af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Verður hún með útsláttar-
fyrirkomulagi og fer fram þrjár helgar í
röð.
-KMU.
Áskrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo Ijónheppinn
að fá að svara spumingunum í
ieiknum „DB-vinningur í viku
hverri”. Við auglýstum eftir
honum á smáauglýsingaslðum
blaðsins I gœr.
Vinningur í þessari viku er
Crown-sett frá Radióbúðinni,
Skipholti 19 Reykjavlk.
Fylgizt vel með, áskrifendur,
fyrir næstu helgi veröur einn ykkar
glœsilegu Crown-setti rlkari.
c ískalt
Seven up.
hressir betur.