Dagblaðið - 11.09.1981, Page 13
21
12 'DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Girondins Bordeaux, hinir frönsku mótherjar Víkings i UEFA-bikarnum. Efri röö frá vinstri: Tresor, Pante-
lic, Bracci, Girard, Kourichi, Tigana. Neðri röö: Soler, Lacombe, Giresse, Thouvenel, Fernandez. f baksýn
sést hluti áhorfendapallanna á hinum glæsiiega Municipal-leikvangi í Bordeaux. Þar komast fyrir 33.000
manns, allir i sæti.
Bordeaux — mótherjar Víkings
Fimmtudaginn 17. september mæta
Vikingar franska liðinu Bordeaux i
UEFA-bikarnum á Laugardalsvelli.
Þetta er i annað sinn sem íslenzkt lið
dregst gegn frönskum mótherjum í
Evrópukeppni. Árið 1966 lék KR við
Nantes í Evrópukeppni meistaraliða og
unnu Frakkarnir báða leikina 3—2 I
Reykjavik og 5—2 i Nantes.
Girondins Bordeaux er nú í efsta
sæti frönsku 1. deildarinnar ásamt
Lyon með 12 stig úr 8 leikjum. Liðið
tryggði sér rétt til þátttöku í UEFA-
keppninni í ár með því að ná þriðja
sæti í 1. deildinni á síðasta keppnis-
tímabili, á eftir St. Etienne og Nantes.
Bordeaux hefur leikið í 1. deild síðan
1%2 án þess þó að vinna deildina eða
bikarinn. Eini meistaratitillinn í
frönsku deildakeppninni vannst árið
1950 en á sjöunda áratugnum var félag-
—lið í mikilli sókn í frönsku knattspymunm
ið hvað eftir annað með aðra höndina á
meistaratitlinum eða franska bikarn-
um. Alltaf vantaði þó herzlumuninn.
Félagið hafnaði í öðru sæti deildarinnar
1965, 1%6 og 1969 og lék til úrslita um
bikarinn 1%4, 1%8 og 1%9 en tapaði
ávalt. Á síðasta áratug sigldi liðið yfir-
leitt milli skers og báru í 1. deildinni og
hafnaði undantekningalítið um miðja
deild. Tvö síðustu árin hefur Bordeaux
hins vegar v.erið í hópi efstu liða, hafn-
aði í 6. sæti 1980 og í 3. sæti í fyrraeins
og áður sagði.
Bordeaux er því greinilega að skipa
sér sess meðal sterkustu liða Frakk-
lands á ný og er án efa í hópi beztu fé-
lagsliða sem íslenzk lið hafa dregizt
gegn í Evrópukeppnum. Fimm leik-
manna Bordeaux eru í franska lands-
liðshópnum, þeir Tresor, Lacombe,
Giresse, Soler og síðast en ekki sízt
Jean Tigana sem hefur átt stórleiki með
landsliðinu i ár en hann var keyptur frá
Lyon í sumar. Bordeaux keypti tvo
aðra sterka leikmenn fyrir þetta keppn-
istímabil. Júgóslavneska landsliðs-
markvörðinn Dragan Pantelic frá Rad-
nicki og Kourichi frá Valenciennes. Fé-
lagið hefur ekki tekið þátt í Evrópu-
keppni síðan 1969—70, er það tapaði i
fyrstu umferð fyrir skozka liðinu Dun-
fermline og má því búast við að það
ætli sér stóran hlut nú. Formaður
Bordeaux, Mesmeur, fyrrum ritstjóri
franska stórblaðsins Figaro, og fram-
kvæmdastjóri Didier Couecou, einn
frægasti knattspyrnumaður Frakka á
árum áður, komu hingað til lands í lok
júlí til viðræðna og fylgdust með Vík-
ings-liðinu í leik. Að þeirra sögn mun
Bordeaux taka leikina gegn Víking
mjög alvarlega og telja þeir engin lið í
Evrópu „stór” eða „lítil”. Róðurinn
verður því erfiður fyrir Víkinga á
fimmudaginn og verða þeir að ná mjög
góðum leik til að standa í frönsku at-
vinnumönnunum. Síðari leikur liðanna
fer fram í Bordeaux miðvikudaginn 30.
september á Municipal-leikvanginum
semrúmar33.000áhorfendur. -VS.
Þetta er bara byrjunin
— sagði Sydney Maree eftir að hann sigraði Steve Ovett í míluhlaupi
hann sá að hann gat ekki sigraö Maree.
Sydney Maree fæddist i Pretoria í
Suður-Afríku og síðustu fjögur árin
hefur hann ekki keppt undir þjóðfána
fyrr en nú síðustu daga eða eftir að
umsókn hans um bandarískan ríkis-
borgararétt var samþykkt. Það tók
fjögur ár og þetta hlaup „er fyrir allt
fólkið og lögfræðingana sem hafa
hjálpað mér svo mikið til að fá ríkis-
borgararéttinn,” sagði Maree.
Mjög góður árangur náðist á
mótinu í Rieti. í 400 m grindahlaupi
sigraði heimsmethafinn Edwin Moses,
USA, í 66. skipti í röð á vegalengdinni.
Úrslit.
400 m grindahiaup
i. Edwin Moses, USA, 48,69
2. Geoff Phillips, USA, 49,99
3. James King, USA. 50,27
Stangarstökk
1. Konstantin Volkov, Sovét, 5,65
2. Earl Bell.Usa, 5,55
3. Mauro Barella, Ítalíu, 5,30
Hástökk
1. Dwight Stones, USA, 2,30
2. Valery Sereda, Sovét, 2,27
3. Di Giorgio, Ítalíu, 2,24
Langstökk
1. Larry Myricks, USA, 8,45
2. Shamil Abbyassov, Sovét, 7,94
3. Liu Yuhuang, Kína, 7,81
5000 m hlaup
1. Hans-Jörg Kunze, A-Þýzk.13:10,40
2. Valery Abramov, Sovét, 13:11,99
3. Henry Rono, Kenýa, 13:12,47
Beztu tímar ársins. Evróþumet hjá
Kunze. Gamla metið átti Emile Putte-
mans, Belgíu, sett 1972.
400 m hlaup
1. Walter MCoy, USA, 45,43
2. Viktor Markin, Sovét, 46,09
3. Viktor Fiedotov, Sovét, 46,28
200 m hlaup
1. Don Quarrie, Jamaíka, 20,61
2. Leszek Dunecki, Póllandi, 21,00
3. Roberto Pozzi, Ítalíu, 21,15
800 m hlaup
1. Omar Khalifa, Sudan 1:45,30
2. Mike Boit, Kenýa, 1:46,05
Karate
hjá Gerplu
Nýstofnuð er karatedeild innan
iþróttafélagsins Gerplu og tekur hún til
starfa nú um helgina. Lögö verður
áherzla á svokallað shotokan-karate
sem er útbreiddasa afbrigði þessarar i-
þróttar. Til að byrja með munu þrír
islenzkir leiðbeinendur annast þjálfun
og að sögn forráðamanna hlnnar
nýstofnuðu deildar er hér um að ræða
iþrótt sem allir geta stundað á
tiltölulega ódýran hátt. Nánari
tilhögun æfinga og annarrar starfsemi
verður auglýst fljótlega.
-VS.
lOOmhlaup
1. Mel Lattany, USA, 10,16
2. Hermann Panso, Frakkl. 10,44
3. Nikolai Sidorov, Sovét, 10,52
110 m grindahlaup
1. Greg Foster, USA, 13,43
2. Alex Casanas, Kúbu, 13,59
3. Rod Milburn, USA, 13,64
Kringlukast
1. Luis Delis, Kúbu, 64,82
2. Dimitri Kovtsun, Sovét, 61,92
3. De Vincentis, Ítalíu, 59,80
í kvennakeppninni sigraði Evelyn
Ashford, USA, i 100 m á 11,16 sek.
Tamaro Sorokina, Sovét, í 1500 m á
4:00,80 mín. Tamara Bykova, Sovét, í
hástökki 1,93 m. Sandra Dini, Ítalíu,
stökk 1,90 m.
r#i
VÍKINGUR
B0RDEAUX
eftir 6 daga
Hallgrímur stór-
bætti árangurinn
Hallgrimur Jónsson, Ármanni, sem
er 54 ára, náði sinum langbezta árangri
um langt árabil í kringlukasti á
innanfélagsmóti Ármanns á kast-
svæðinu í Laugardalnum á
miðvikudag. Kastaði 44,92 metra, sem
er eitt af þremur beztu afrekum i
kringlukasti á árinu i flokki yfir 50 ára.
Hallgrimur sem á árum áður var
íslandsmethafi i kringlukasti, átti bezt
áður í sumar 41,80 m.
Úrslit urðu þessi á mótinu:
1. Helgi Þ. Helgason, Hún. 49,84
2. Hreinn Halldórson, KR 49,16
3. Hallgrímur Jónsson, Á 44,92
4. Elias Sveinsson, Á, 43.%
5. Stefán Hallgrímsson, KR 40,22
6. Ólafur Unnsteinsson, HSK, 39,70
Á kastmóti ÍR á Fögruvöllum
kastaði Hreinn 49,62 m og Elías 46,40
m. Það var sama dag og Margrét
Óskarsdóttir, ÍR, kastaði kvenna-
kringlu37,70m. -hsím.
Hallgrímur Jónsson.
Þetta er bara byrjunin. Ég veit ekki
enn hvað býr í mér,” sagði Sydney
Maree, Suður-Afríkumaðurinn, sem
gerzt hefur ríkisborgari í Banda-
ríkjunum, eftir að hann sigraði Steve
Ovett í miluhlaupi I Rieti á ítaliu i
fyrrakvöld eins og við skýrðum frá hér
i opnunni i gær. Keppni þeirra Maree
og Ovett var gifurlega spennandi og
áhorfendur stóðu á öndinni, þegar
Maree sigraði Ovett á enda-
sprettinum. Ekki þó fyrsta tap Ovett i
1500 m fyrr í sumar. Maree hljóp á
3:48,83 min. Bandarískt met og aöeins
Sebastian Coe og Ovett hafa náð betri
tima í míluhiaupi. Heimsmet Coe er
3:47,33 min. Steve Ovett hljóp á
3:50,23 mín. i Rieti. Gaf eftir, þegar
Björn Borg i 3. umferö á mótlnu f New York —
spaðinn myndar ramma en hraðinn gerir girnið nær
ósýnilegt.
Borg og McEnroe
í undanúrslitum
Björn Borg og John McEnroe eru komnir í undan-
úrslit á opna bandaríska meistaramótinu f tennis i
New York. í gær vann Björn Bandaríkjamanninn
Roscoe Tanner f hörðum leik, 7-6, 6-3, 6-7 og 7-6.
Þeir léku til úrslita i Wimbledon-keppninni 1979 og
Björn vann i fimm lotum. John McEnroe, slgurveg-
arinn f bandarfska mótinu tvö síðustu árin, vann
Indverjann Ramesh Krishnan 6-7, 7-6, 6-4 og 6-2.
Gísli AmarúrVal
íBreiðablik
Gísli Arnar Gunnarsson, sem mörg undanfarin ár
— Iftið þó á síðasta keppnistfmabili vegna náms —
hefur leikið með meistaraflokki Vals í handknatt-
leiknum, skipti nú i vikunni um félag. Leikur með
Breiöablik i vetur. Kópavogsliðið er i 2. deild.
-hsím.
Jafnt í 2. flokki
KR og Fram skildu jöfn i úrslitakeppni 2. flokks i
íslandsmótinu i knattspyrnu i gærkvöld, 2—2. Viðar
Þorkelsson náði forystunni fyrir Fram en Helgi Þor-
björnsson jafnaði fyrir KR f fyrri hálfleik. Einar
Björnsson kom Fram yfir á ný eftir hléið en KR
tókst að jafna 7 min. fyrir leikslok. Þetta var
annar leikur úrslitakeppninnar en áður höfðu KR og
Keflavfk gert jafntefli, 1—1. Auk þessara félaga
leikur Þróttur Neskaupslað til úrslita i 2. flokki.
VS.
Enskir spyrjast
fyrir um
PéturOrmslev
Á blaðamannafundi knattspyrnudeildar Fram i
gær kom fram að enskir aðilar hafa sýnt Pétri Orm-
slev, landsliðsmanni Fram, áhuga. Að sögn forráða-
manna Fram hefur umboðsmaður nokkur, viður-
kenndur af enska knattspyrnusambandinu, spurzt
fyrir um Pétur en ekki er vitað hvort eða hvaða félög
gætu hugsanlega staðið þar að baki.
VS.
Unglingamót
Þormars í golfi
Sfðasta opna golfmótið hjá Golfklúbbnum Kelli,
unglingamót Geirs P. Þormar, fór fram þann 5.
sept. 40 unglingar tóku þátt f mótinu, sem er met-
þátttaka f unglingamóti f sumar. Vegleg verðlaun og
aukaverðlaun voru i boðl, m.a. ökupróf fyrir að
fara holuihöggi.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Án forgjafar:
1. Úlfar Jónsson GK
2 Hörður Arnarsson GK
3. Sigurbjörn Sigfússon GK
MGJÖF:
1. Jón Kristbjörn Jónsson GK
2. Guðmundur Sveinbjörnsson GK
3. örnHaukssonGK
69 högg
72 högg
73 högg
60 högg
65 högg
65 högg
Stef num í aðra umferð
— segja Framarar sem mæta Dundalk f rá írlandi á miðvikudag
Knattspyrnudeild Fram hélt blaða-
mannafund i gær f tilefni Evrópuleiks
Fram og Dundalk sem fram fer á Laug-
. ardalsvellinum nk. miðvikudag. Dag-
skrá fyrir leik og i hléi var kynnt og
vikið var að leiknum sjálfum og irsku
bikarmeist urun um.
Leikur Fram og Dundalk hefst kl.
17.30. Frá kl. 17.00 geta áhorfendur
fengið pylsur og pepsí ókeypis og fellur
það örugglega í góðan jarðveg, a.m.k.
hjá yngri kynslóðinni. Drengjum úr
knattspyrnuskóla Fram verða afhent
silfur- og bronsmerki og a og b lið 6.
flokks félagsins Verða heiðruð sérstak-
lega fyrir frábæran árangur í sumar.
Kynnir á leiknum verður Þorgeir Ást-
valdsson og sér hann jafnframt um
tónlist. Heiðursgestur verður Lúðvík
Þorgeirsson en hann er heiðursfélagi í
Fram.
írsku bikarmeistaramir eru væntan-
legir hingað til lands á þriðjudag nema
framkvæmastjórinn, Jim McLaughlin,
sem kemur við annan mann í dag,
gagngert til að fylgjast með leik Fram
og KA á morgun í 1. deildinni. Við
kynntum lið Dundalk hér á síðunni í
gær svo ekki verður farið nánar út í
sögu félagsins nú en á fundinum kom
fram að áhorfendur í Dundalk eru
kunnir ribbaldar og í fyrra var fjöldi
manns útilokaður frá heimaleikjum fé-
lagsins ævilangt. Einnig kom fram að
þrír leikmanna liðsins hafa leikið lands-
leik fyrir írland, þeir Tommy McCon-
ville, Mick Lawlor og Mick Fairclough
sem lék með Huddersfield í 1. deildinni
ensku fyrir tíu árum. Þá má geta þess
að markvörður liðsins er alnafni gítar-
leikarans kunna Ritchie Blackmore og
mun hann ekki síðri milli stanganna en
nafni hans á gítarinn.
Dómaratríóið kemur frá Skotlandi.
H. Alexander mun dæma leik Fram og
Dundalk og sér sama þrenning um
dómgæzluna á leik Víkings og Bord-
eaux daginn eftir. Þá afhendir Alex-
ander öðrum línuverði sínum flautuna
en fær flagg hans í staðinn. „Slátrarinn
frá Wolverhampton”, hinn heimsfrægi
dómari Jack Taylor sem dæmdi úrslita-
leik HM 1974, verður eftirlitsdómari á
leikjunum.
Framarar stefna ótrauðir á aðra um-
ferð keppninnar þó svo það kunni að
hafa fjárhagslega erfiðleika í för með
sér. Þátttaka í Evrópukeppni er alltaf
happdrætti fyrir íslenzk lið og þurfa
Framarar að fá 3500 til 4000 manns
á völlinn til að sleppa sæmilega frá
fyrirtækinu. Að sögn Hólmberts Frið-
jónssonar, þjálfara Fram, verður
leikinn sóknarleikur á miðvikudaginn
af hálfu Framara og má því búast við
fjörugum leik.
-VS.
Júgóslavneskir bræður
á verðlaunapalli í Split!
Aukaverðlaun fyrir að vera holu á 5. og 17. flöt
hlaut Úlfar Jónsson GK, en hann var aðeins 8 cm frá
því að hljóta ökuprófið. Fyrir afrek sitt fékk Úlfar
líkan af bifreið.
Fjóröi keppnisdagurinn á Evrópu-
meistaramótinu i sundi i Split i Júgó-
slavíu var i gær. Júgóslavinn Borut
Petric sigraði i 400 m skriðsundi karla
eftir hörkukeppni við ólympíumeistar-
ann Vladimir Salnikov, Sovét. Borut er
19 ára og 17 ára bróðir hans, Darjan,
varð i þriðja sæti. í 100 m baksundi
sigraöi Ungverjinn Sandor Wladar,
eftir gifurlega keppni, en það kom ekki
á óvart, þvi þessi 18 ára ungverski
piltur er ólympiumeistari i 200 m bak-
sundi. Það kom hins vegar á óvart að
ólympíumeistarinn i 100 m baksundi,
Svíinn Bengt Baron, komst ekki i úrslit.
Varð hins vegar fyrstur i B-riðli úrslit-
annaá 58,06 sek.
Úrslit í gær urðu þessi:
100 m baksund kvenna, úrslit:
1. Ina Kleber, A-Þýzkal. 1:02,81
2. Cornelia Polit, A-Þýzk. 1:03,12
3. Carmen Banaciu, Rúm. 1:03,34
4. Larisa Gorchakova, Sovét, 1:03,87
5. Jolanda de Rover, Holl. 1:04,23
6. Monique Bosga, Holland, 1:04,36
7. Carine Verbauwen, Belgíu, 1:04,56
8. Manuela Carosi, Ítalíu, 1:04,63
100 m baksund karla, úrslit:
1. Sandor Wladar, Ungv. 56,72
2. Vladimir Shemetov, Sovét, 56,75
3. Viktor Kuznetsov, Sovét, 56,90
4. Dirk Richter, A-Þýzkal. 56,92
5. Michael Sönderlund, Svíþj. 58,10
6. Frank Baltrusch, A-Þýzk. 58,13
7. Ricardo Aldabe, Spáni, 58,25
8. Frederic Delcourt, Frakk. 59,16
200 m bringusund kvenna, úrslit:
Þar vann Ute Geweniger sín þriðju
gullverðlaun á mótinu,
1. Ute Geweniger, A-Þýzk. 2:32,41
2. Larisa Belokony, Sovét, 2:33,07
3. Grazyna Dziedzic, Póll. 2:35,35
4. Tania Bogomilova, Búl. 2:36,51
5. Ayshkute Buzelite, Sovét, 2:37,50
6. Grit Slaby, A-Þýzkal. 2:38,29
7. Ann Ross, Svíþj. 2:38,62
Susannah Brownadon, Bretlandi, gerði
sund sitt ógilt.
400 m skriðsund karl, úrslit:
1. Bortu Petric, Júgósl. 3:51,63
2. Vladimir Salnikov, Sovét, 3:51,77
3. Darjan Petric, Júgósl. 3:53,71
4. Arne Borgström, Noregi, 3:54,35
5. Sandor Nagy, Ungv. 3:55,86
6. Andrew Astbury, Bretl. 3:55,93
7. Danile Matchek, Tékk. 3:57,33
Einherja-
keppnin
Félagsskapur þeirra kylfinga sem
hafa farið holu í höggi nefnist Ein-
herjar. Þeir halda árlega með sér mik-
ið golfmót og þetta mót þeirra verður
nú um næstu helgi á Grafarholtsvellin-
um. Hefst það sunnudagsmorguninn
kl. 11.00 og verða þá leiknar 12 eða 18
holur — allt eftir veðri og vindum.
Fyrirkomulagið er „Stableford með
7/8 forgjöF’ og veitt þrenn verðlaun.
Engin verðlaun verða fyrir að fara holu
í höggi enda hafa allir keppendumir í
mótinu gert það áður. Aftur á móti
verða aukaverðlaun fyrir að vera
næstur holu á 17. brautinni en það telja
Einherjar aö sé verðugri keppni fyrir
þá.
8. Rainer Strohbach, A-Þýzk. 3:57,74
Tólf fyrstu syntu innan við fjórar mín-
útur.
Á mótinu á miðvikudag vann Ute
Geweniger, Austur-Þýzkalandi, önnur
gullverðlaun Sín, þegar hún sigraði í
100 flugsundi. Sovézka sveitin í 4x 100
m skriðsundi setti nýtt Evrópumet.
Ólympíumeistarinn Ines Diers, 17 ára,
setti Evrópumet í 400 m skriðsundi
kvenna og þar Jackie Willmott brezkt
met. Sökum þrengsla í blaðinu í gær
gátum við ekki birt úrslitin á miðviku-
dag. Þau fara hér á eftir. Tími Söder-
lund í 200 m skriðsundi er sænskt met.
200 m skriðsund karla, úrslit:
1. Sergei Kopliakov, Sovét, 1:51,23
2. Michael Söderlund, Svíþj. 1:51,62
3. Thomas Lejdström, Sviþj. 1:52,11
4. Fabrizio Rampazzo, Ítalíu 1:52,21
5. Borut Petric, Júgósl. 1:52,33
6. Paolo Ravelli, italíu 1:52,36
7. Fabien Noel, Frakkl. 1:52,75
8. Vladimir Shemetov, Sovét. 1:53,15
4 x 100 m skriösund karla, úrslit:
l.Sovétríkin 3:21,48
2. Svíþjóð 3:22,48
3. Vestur-Þýzkaland 3:22,67
4. Austur-Þýzkaland 3:24,38
5. Ítalía 3:25,32
6. Spánn 3:28,38
7. Sviss 3:28,56
8. Bretland 3:30,60
400 m skriösund kvenna, úrslit:
1. Ines Diers, A-Þýzk. 4:08,58
2. Karmela Schmidt, A-Þýzk. 4:08.71
3. Jackie Willmott, Bretl. 4:15,23
4. Ina Bayermann, V-Þýzk. 4:15,46
5. Irina Laricheva, Sovét. 4:17,44
6. Jutta Kalwett, V-Þýzk. 4:17,47
7. Jolanda Meer, Holl. 4:18,03
8. JuneCroft, Bretl. 4:21,35
100 m flugsund kvenna, úrslit:
1. Ute Geweniger, A-Þýzk. 1
2. Ines Geissler, A-Þýzk.
3. Karin Seick, V-Þýzk.
4. Cinzia Savi, Ítalíu
5. Ann Osgerby, Bretl.
6. Doris Wbeke, V-Þýzk.
7. Annemarie Verstappen Holl. 1
8. Wilmavan VelsenHoll. 1
:00,40
00,97
:01,37
02,27
:02,20
:02,86
:02,92
03,13
100 m flugsund karla, úrslit:
1. Alexei Markovski, Sovét. 54,39
2. Per Arvidsen, Svíþj. 54,60
3. Vadim Dombrovsky Sovét. 55,00
4. Andreas Behrend, V-Þýzk. 55.08
5. Advid Lopes, Spáni 55,10
6. Per Magnusson, Svíþjóð 55,70
7. Marcel Gery, Tékkósl. 5 5,83
UNNIÐ AÐ STOFNUN SKIÐA-
FÉLAGS Á SUÐURNESJUM
Þann 31. ágúst sl. var haldinn i Vik i
Keflavik undirbúningsfundur fyrir
stofnun skiðafélags á Suðurnesjum.
Fjölmenni var á fundinum. Hópur
áhugamanna um skiðaiðkun á Suður-
nesjum, sem telur brýna nauðsyn á að
UEFA í gang
Portúgalska félagið Sporting Lisbon
sigraði Red Boys Differdange frá
Luxemburg 4—0 í fyrstu umferð
UEFA-bikarsins á miðvikudag. Þetta
var fyrri leikur liðanna og fór hann
fram i Lissabon. Þáð voru þrir lands-
liðsmanna Sporting sem sáu um
Luxemborgarliðið. Oliveira skoraði á
30. min. Manuel Fernandes annað á
47. mín úr vftaspyrnu á 89. mfn.
Áhorfendur voru 30.000.
-VS.
efla skiðaiþróttina og vinna með skipu-
lögðum hætti að framgangi hennar,
boðaði til fundarins.
Skíðafélagið mun m.a. hafa að
markmiði að skipuleggja skíðaferðir
með reglubundnum hætti á skíðalönd-
in, útvega skíðakennslu og aðstoða fé-
lagsmenn við kaup á skíðaútbúnaði
með sem ódýrustum hætti.
Hreggviður Jónsson, formaður
Skíðasambands fslands, mætti á fund-
inn og hélt hann erindi um skiðaíþrótt-
ina og vettvang Skíðasambandsins.
í undirbúnlngsstjórn voru kjörnir 5
manns.
1. Kristj án Pétursson,
2. Pétur Jóhannsson,
3. Hörður Hilmarsson,
4. Þóra Júlíusdóttir,
5. Sigurður Jónsson.
Fólki á öllum aldri er heimiluð inn-
Guðmundur Sigurðsson fagnar eftir að hafaskoraðsigurmark Fram gegn Þór Vest-
mannaeyjum f úrslitaleik 4. flokks si. sunnudag „þremur minútum fyrir leikslok.
Þetta var eina mark leiksins og vonbrigðin leyna sér ekki i svipbrigðum Þórara en
fögnuður í herbúðum Framara var mikill. DB-mynd Einar Ólason.
ganga í félagið og fer innritun fram á
skrifstofu Péturs Jóhannssonar, að
Vatnsnesvegi 14 Keflavík, simi 2900, en
stofnfundur verður haldinn í nóvember
nk.
Bílhlass af
kók fyrir
holu íhöggi
Eitt síðasta stórmótið i golfi á þessu
keppnistimabili, fer fram um helgina.
Er það Coca-Cola-keppnin sem verður
á velli Golfklúbbs Ness á Seltjarnar-
nesi. Er það elzta opna golfmót
landsins. Fer það nú fram 121. sinn og i
fyrsta skipti á Nesvellinum. í hin 20
skiptin hefur mótið verið i umsjá Golf-
klúbbs Reykjavíkur.
Mótið er 36 holu höggleikur og
verða veitt þrenn glæsileg verðlaun
með og án forgjafar. Þá eru ýmis auka-
verðlaun í boði og má þar m.a. nefna
bílhlass af Coca Cola fyrir þann sem
fer holu í höggi. Þrjá kassa af kók fær
sá sem verður næstur holu á 6. braut
báða keppnisdagana og þá verða
einnig veitt verðlaun fyrir lengsta
upphafshögg af teig á 2. braut, svo
eitthvaðsénefnt.
Coca Cola-keppnin hefur frá því að
Stigakeppni GSÍ fór fyrst af stað, verið
stigamót en þar sem keppnin fór á hálf-
gert flakk í Kappleikjaskránni núna
verður ekkert af því að þessu sinni.
Coca Cola-keppnin stendur fyllilega
fyrir sér, enda er búizt við mikilli þátt-
töku í mótinu sem hefst á laugardags-
morguninn.
Skráning í mótið fer fram 1 Golf-
skólanum á Nesinu, sími 17930 og er
mönnum bent á að skrá sig þar sem
fyrst. Tveir æfingadagar verða fyrir
mótið, á fimmtudag og föstudag og er
þá einnig hægt að skrá sig.