Dagblaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 6
6
SHILTON' HEYNES ■ AUTO BOOKS
BUahandbækur
bíleigenda. Fyrír flestar gerðir bíia.,
, , fyriríiggjandi hiá okkur.
BOKABUÐIN,
BERGSTAÐASTRÆTI 7 Opið 1—6.
Til sölu
BMW518
BMW320
BMW316
BMW320
BMW318
BMW318
BMW320
árg. 1980
árg. 1980
árg. 1980
árg. 1979
árg. 1978
árg. 1978
4077
Renault20 TL árg. 1978
Renault 18 TS árg. 1979
Renault 12 TS árg. 1978
Renault 14 TL árg. 1979
Renault 14 TL árg. 1978
Renault4 VANF6
Renault4 VANF6
1070
V2 Nautaskrokkar
1 HALS Í HAKK
* 2 GRILLSTEIK
- 3 BÓGSTEIK
4 SKANKI Í HAKK
G RIFJASTEIK
6 FILLET-MÖRBRA
7 SLAG i GULLASCH
5 ROAST-BEEF
9 INNANLÆRI SNITCHEL
10 BUFFSTEIK
11 GULLASCH
12 SKANKI i HAKK
13 OSSO BUCÚ
14 SÚPUKJÖT
Núna er rétti tíminn ab gera góð matarkaup
ÚTBEINUM EINNIG
ALLT NAUTAKJÖT
EFTIR ÓSKUM ÞÍNUM
/
Þetta umferöarmerki
táknar
að
innakstur
er öllum
bannaður
— einnig þeim
sem hjólum aka.
HlM
UMFERÐAR
1
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981.
Erlent
Erlent
Hinn nýi forseti Egyptalands:
Mubarak tekinn
við embætti
— neyðartilskipamr enn i gildi
Hosni Mubarak tók við embætti i
gær sem fjórði forseti Egyptalands. í
ræðu sem hann hélt við það tækifæri
lagði hann ríka áherzlu á að hann
myndi fylgja stefnu Sadats fyrir-
rennara síns, með því væri minningu
hans sýnd mest virðing.
Mubarak, sem er fyrrum yfir-
maður hersins, sagði að hann myndi
sýna andstæðingum sínum fyllstu
hörku og að hann hræddist ekki
hótanir þeirra. Hann hefur nú látið
fara fram hreinsanir innan hersins og
rekið 18 hershöfðingja sem grunaðir
voru um aðild að samtökum strang-
trúaðra múhameðstrúarmanna. Hér
eftir verða allir sem uppvísir verða að
undirróðri gegn stjórninni skotnir
samstundis, sagði forsetinn. Hann
sagðist mundu halda áfram friðar-
samningum við ísrael og ætla að
fylgja þeirri umdeildu stefnu Sadats
að opna landið enn frekar fyrir
erlendum fjárfestingum. Sú stefna
var, ásamt samningunum við Israels-
menn, einna harðast gagnrýnd af
strangtrúarmönnum.
Mubarak hlaut 98,46% atkvæða í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um for-
setaembættið. Þykir það mikill
styrkur fyrir stjórn hans, því enn eru
nokkrar viðsjár í landinu og tvenn
meiriháttar átök hafa orðið sem kost-
uðu tugi manna lífið. Stjórnin hefur
brynjað sig með herlögum, og þeir
sem uppvísir verða að að efna til upp-
þota verða skotnir á staðnum.
Mikilvægt er fyrir hinn nýja for-
seta að enginn afturkippur verði á
afhendingu svæðisins sem fsraels-
menn halda enn á Sínaískaga en af-
hending þess á að fara fram i apríl á
næsta ári. Þar með gæti Mubarak
bent gagnrýnendum í arabaríkjunum
á raunverulegan árangur af friðar-
stefnunni. Það er enda talið álit
margra i Egyptalandi, að hinn nýi
forseti verði að auka samskiptin við
hinn arabíska heim á ný og með
dauða Sadats hafi möguleikar þess
aukizt.
Hosní Mubarak, hinn nýi forseti Egyptalands, i miðið. Myndin er tekinn er Abdel Ghazala varnarmálaráðherra sór bráða-
birgðastjórninni trúnaðareið. Við hlið Mubaraks er Sufi Abu Taleb er gegndi forsetaembættinu til bráðabirgða.
Þjóðnýtingarfrumvarp frönsku stjórnarinnar lagt fram:
36 EINKABANKAR
VERDA ÞJÓÐNÝTTIR
og öll helztu iðnfyrirtæki landsins
Umræður eru nú hafnar á franska
þinginu um þjóðnýtingarfrumvarp
ríkisstjórnarinnar. Áætlað er að frum-
varpið njóti stuðnings allra stjórnar-
þingmanna og að það verði endanlega
afgreitt sem lög 21. þessa mánaðar.
Forsætisráðherrann Pierre Mauroy
hefur sagt að þjóðnýtingin muni koma
efnahagslífinu aftur í gang eftir undan-
farandi erfiðleika og veita iðnaðinum
þann styrk sem hann þarfnast.
Þjóðnýtingarfrumvarpið gerir ráð
fyrir að ríkið yfirtaki 36 franska einka-
banka og stærstu fyrirtæki Frakklands
á sviði stáliðnaðar, efna- og gler-
iðnaðar og flugvélaiðnaðinn. Einnig
mun allur vopnaframleiðsluiðnaður
landsins verða þjóðnýttur. Iðnfyrir-
tækin munu þurfa að leggja fram lang-
tíma framleiðsluáætlun og greina frá
markmiðum sínum og hvaða leiðir þau
ætla að nota til að ná þeim. Þau munu
samt halda áfram innbyrðis sam-
keppni, innan þess ramma sem þjóð-
nýtingin leyfir.
Þjóðnýting bankakerfisins hefur
vakið mikla andstöðu bankastjóra og
eigenda einkabankanna, eins og við var
búizt. Mauroy forsætisráðherra hefur
sakað bankastjórana um að standa í
skæruhernaði gegn ríkisstjórninni og
sagt að þeir hafi sýnt skort á þegn-
skyldu með athæfi sínu. Ekki greindi
hann þó frá í hverju skæruhernaðurinn
fælist. Þá hefur forsætisráðherrann
varað við gagnrýni á kaupverð fyrir-
tækjanna og bankanna og sagt að hlut-
hafar hefðu fengið mikið minna í sinn
hlut, ef tekið hefði verið tillit til ríkis-
lána og aðstoðar sem ríkið hafi veitt
gegnum tíðina. Ný lög munu verða sett
um bankakerfið á næsta ári og þá
verður einnig ákveðið nánar hvernig
aðildverkamannaaðstjórnun ríkisfyrir-
tækjanna verður háttað. Bankarnir
munu halda áfram samkeppni sín á
milli, en verða sett skilyrði um
hámarksvexti og um stuðning við
smærri fyrirtæki.
Stjórnarandstaðan hefur reynt að
tefja frumvarpið með því að leggja
fram um 800 breytingartillögur. En
Kommúnistaflokkurinn, sem aðild á að
ríkisstjórninni, reynir hins vegar að
auka enn umfang þjóðnýtingarinnar.
Hafa kommúnistar sagt að enn víð-
tækari þjóðnýting væri nauðsynleg til
að brjóta á bak aftur yfirstjórn kapítal-
ista yfir framleiðslutækjunum. En
Mauroy hefur iýst því yfir að sam-
starfsflokkur þeirra muni ekki koma að
neinum breytingum i átt að frekari
þjóðnýtingu.
í skoðanakönnun, sem stjórnarand-
stöðublaðið Le Figaro birti í gær,
kemur fram að helmingur kjósenda er
fylgjandi þjóðnýtingarfrumvarpinu, en
aðeins tæpur þriðjungur á móti af þeim
sem afstöðu tóku. Rúmur helmingur
kjósenda var þeirrarskoðunar aðþjóð-
nýtingin myndi skapa ný atvinnutæki-
færi en vildi samt ekki að hún yrði
umfangsmeiri en frumvarpið gerði ráð
fyrir.