Dagblaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981.
BIAÐIÐ
Útgefandi: Dagblaflið hf.
Framkvœmdastjöd: Sveinn R. Eyjötfsson. Ritstjöri: Jönas Kristjánsson.
Aflstoflarrftstjöri: Haukur Helgason. Ft áttastjöri: Ómar Valdimarsson.
Skríf stofustjöH ritstjömar Jóhannes ReykdaL
Iþróttir. Hallur Simonarson. Aflstoflarfréttastjöri: Jönas Haraldsson.
Handrít Ásgrímur Pálsson. Hflnnun: Hilmar Karísson.
Blaflamenn: Anna Bjamason, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurflsson, Dóra Steféns-
dóttir, EDn Albertsdóttir, Franzisca Gunnarsdóttir, Inga Huld Hékonardóttir, Jóhanna Þréinsdóttir,
Kristján Már Unnarsson, Lilja K. Möllar, Ólafur E. Friflriksson, Sigurflur Sverrisson, Viflir Sigurflsson.
Ljósmyndir Bjamleifur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sígurflsson,
og Sveinn Þormóflsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞoríeHsson. Auglýsingastjóri: IngöHur P. Steins-
son. DreHingarstjóri: Valgerður H. Sveinsdóttir.
RHstjóm: Síflumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhotti 11.
Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 Onur).
Setning og umbrot Dagblafllfl hf., Slðumúla 12.
Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., Slflumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10
Áskriftarverfl á mánufli kr. 86,00. Verfl i lausasölu kr. 6,00.
Útskalilltblóð
Sláturtíðin er hafin í Sjálfstæðis-
flokknum. Nú telur flokkseigenda-
félagið sig loksins hafa nægan styrk til
að láta sverfa til stáls og losa flokkinn
við hið illa blóð, sem allt of lengi hafi
fengið að renna um æðar hans.
Embættismenn flokksins hafa reiknað niðurstöður
kosninga til landsfundar og telja þær flokkseigendum
hagstæðar. Ekki sé þar að vísu blóðþyrstur meirihluti,
en nógu margir þó, sem reynast muni forustunni
tryggir á örlagastund.
Fræg Morgunblaðsgrein Gísla Jónssonar mennta-
skólakennara er bezta dæmið um þá spennu, sem hefur
hlaðizt upp í tíð núverandi ríkisstjórnar. Greinin
minnti á vestfirzka píslarsögu frá galdraöld, svo
geigvænlegur var Óvinurinn.
Hin vanstillta grein sýnir vel, hversu djúpt hatrið er
orðið á Gunnari Thoroddsen og öllum hans árum,
Albert Guðmundssyni og öllum hans árum. Og hún
fékk auðvitað þann viðhafnarsess og það viðhafnar-
form, sem blaðinu þótti hæfa.
Jafnframt hefur ríkisstyrkt málgagn flokkseigenda-
félagsins fikrað sig út í ritbann á greinum frá sumum
þeim sálum, sem leiðzt hafa til fylgis við Óvininn mikla
og vilja halda uppi vörnum fyrir hans svarta og
synduga atferli.
Sigurður Hafstein er látinn setja fram tillögur um
framhald hinna opnu prófkjara, sem tíðkazt hafa í
Sjálfstæðisflokknum, svona til að búa til logn fyrir
storminn, sem varð svo á fundi fulltrúaráðsins í
Reykjavík.
Fundardaginn birtist í viðhafnarsæti og viðhafnar-
formi málgagns rétttrúaðra grein Jónasar Eliassonar
um lokun prófkjara. Og síðan kom Sigurður á fundinn
með skrifaða ræðu um hin illu áhrif eigin tillögu um
opið prófkjör.
Reiði réttlætisins beinist ekki aðeins að Óvininum
og árum hans, heldur öllum þeim, sem í óviður-
kvæmilegu léttlyndi hafa látið undir höfuð leggjast að
þylja heitstrengingar á hverjum morgni, — að hinum
veiklunduðu meðreiðarsveinum.
Friðrik Sófussson er ekki talinn hafa verið nógu
skeleggur gegn hinu Illa og Guðmundur Karlsson er
grunaður um fylgi við Friðrik. Hinni heilögu reiði
hefur lostið niður og hún brennt fjárveitinganefndar-
stól Guðmundar.
Hinir veiklunduðu sjá nú ritað á vegginn, að
pólitískir dagar þeirra kunni einnig að vera taldir, ef
þeir ekki sjái að sér, geri iðrun og yfirbót og fari að
þylja píslarsögur Gísla Jónssonar og Halldórs Blöndal
á hverju kvöldi.
Árarnir illu skulu úr flokknum. Þeir mega gjarnan
rotta sig saman um sérstök framboð, beint eða óbeint
undir sjálfstæðisnafni. Aðalatriðið er, að þeir eru „að
minnsta kosti miklu minni sjálfstæðismenn” eins og
Matthías Bjarnason orðar það.
Hið hreina orð má ekki litast af villutrúarsetning-
um. Sjálfstæðisflokkurinn má minnka, því að reikull
fjöldinn skiptir minna máli en hin hreina hjörð
stuðningsmanna flokkseigenda undir merki leiftur-
sóknar.
Sumir efasemdarmenn flokksins munu nú beygja
sig undir vald flokkseigenda, — með það að
leiðarljósi, að flokkurinn sé langur, en flokkseig-
endafélagið stutt, og að friður sláturtíðar sé betri en
enginn friður.
Aðrir munu gæla við áhættuna af sérstökum
framboðum, haldnir ótta við, að sagan hafi lítið
dálæti á slíku og láti þau stundum fjara út í tímans rás.
Það er einmitt útkoman, sem flokkseigendafélagið
reiknar með.
Ul| UFTDAD
PIU Yti I liMii
HÉR NYRDRA
Kæri Jónas. '
Nú mun vetur vera að ganga í garð
hér norðanlands. Þegar ég kom fram
í morgun var allt orðið hvítt, og þó
að sonur minn tveggja ára haldi því
fram að þetta sé hveiti, en ekki snjór,
'skiptir það ekki nokkru máli. Hita-.
mælirinn á eldhúsglugganum segir
okkur að nú s'é komið frost, þar að
auki er grasið orðið brúnt og hér
hefur ekki verið hægt að þverfóta
fyrir byssuglöðum mönnum, sem
þykjast ætla að drepa gæsir. Þegar
slíkir menn eru á ferðinni held ég mig
innan dyra, því að ég veit að ef þeir
hitta ekki gæsina (sem þeir gera
sjaldnast) má fjandinn vita hvar
kúlan lendir. Að vísu virðist hún oft-
ast lenda í vegvísum, þvi að hér á
þjóðvegi 711 er búið að myrða að
minnsta kosti annan hvern vegvisi, og
suma oftar en einu sinni.
Annars hef ég ekkert út á gæsa-
skyttur að setja. Ég veit af eigin
reynslu að þetta eru vænstu menn,
þegar þeir hafa lagt frá sér byssuna
og eru sestir inn í stofu hjá manni að
sötra öl. Þeir geta líka komist i hann
krappan á stundum, eins og henti
einn kunningja minn sem var viðvan-
ingur í gæsadrápi, en lagði af stað á .
skyttirí með afbragðsgóðar leiðbein-
ingar frægustu gæsaskyttu á íslandi,
að eigin sögn.
Hvammstangabréf:
Benedikt Axelsson
Hánn byrjaði á þvi að vakna eld-
snemma einn morguninn, og var það
afrek út af fyrir sig, því að þessi vinur
minn er vanur að sofa að minnsta
kosti til 8.30 virka daga og fram yfir
hádegi um helgar. Næsta atriði á dag-
skránni var að finna góðan skurð, en
góður skurður er álíka mikilvægur
gæsaskyttu og bifreiðin er atvinnubíl-
stjóra, því að þótt gæsin sé afburða
varkár fugl hefur hún ekki tekið upp
tann sið enn að athuga mannaferðir í
kurðum landsins.
Kýrin fóll
í skurðinum húkti síðan þessi vinur
ninn lengi dags og beið eftir því að
jæsunum þóknaðist að fljúga yfir.
Þær létu hann bíða óþarflega lengi,
fannst honum, og þegar þær loks létu
sjá sig var hann orðinn krókloppinn
og hundleiður á biðinni. Og í stað
þess að taka það rólega og leyfa gæs-
unum að koma sér vel fyrir á túninu,
stökk þessi upprennandi gæsaskytta
upp á skurðbarminn, miöaði í hvelli á
gæsirnar og skaut bestu mjólkurkúna
á bænum, sem land átti að skurðin-
um. Vini minum brá auðvitað hastar-
lega við þetta, því að hann hafði
verið svo upptekinn af að glápa upp í
himinhvolfið að hann hafði ekki
tekið eftir kúnum.
Eftir þessar hrakfarir hætti þessi
vinur minn öllum veiðum, jafnvel
þótt ég benti honum á að það væri al-
gjör óþarfi að gefast upp, hann ætti
bara að leggja fyrir sig aðrar veiðar,
t.d. hænsnaskyttirí.
En nú eru allar gæsaskyttur á bak
og burt, gott ef gæsirnar eru ekki
farnar líka og við sem eftir sitjum
dundum okkur við blaðalestur og
sjónvarpsgláp.
VIDE0
VIDEO
VIDEO
Vídeó-tæknin hún tryllir fólk
. . . syngur Ómar Ragnarsson á
samkomum um þessar mundir.
Videó-byltingin hefur hafið
innreið sína á heimili landsmanna,
bæði í Reykjavík og einnig í stærri
byggðarlögum úti á landi. Það telst
nú til mannréttinda að vera tengdur
kapli, sem sendir inn á heimilin bíó-
myndir og annað efni í misjöfnum
gæðaflokki
Hinn frjálsi maður rís öndverður
gagnvart þeim skoðunum, sem segja
að nokkuð sé ólöglegt eða athugavert
við þessa starfsemi. Það ber vott um
frelsi einstaklingnum til handa, að fá
aö sitja, ásamt nokkrum þúsundum
annarra frjálsborinna einstaklinga,
og teyga af sjónvarpsskjánum mynd-
efni, sem gróðafyrirtæki senda inn á
hið frelsaða heimili.
Þegar vídeó-fæðunnar hefur verið
neytt og fjölskyldan tygjar sig 1
háttinn að áliðinni nóttu, þá spyr
hinn frjálsborni maður sig e.t.v.
hvað er rangt við að njóta þessarar
saklausu skemmtunar, hvers vegna
vill „stóri bróðir” hafa hönd í
þessum bagga?
Bíómyndir verða
ekki til af sjálfu sór
Þegar hér er komið sögu, þá leiða
menn sjaldnast hugann að því, hvers
vegna þeir njóta góðra bíómynda,
skemmtiþátta og annars þess sem í
vídeóinu er sýnt. Ja, það er nú einu
sinni svo, að hvorki bíómyndir né
skemmtiþættir verða til af sjálfu sér.
Það er eitthvert fólk, sem hefur sinn
starfa af því að búa til svona efni.
Það hefur sitt lífsframfæri af því að
skrifa handrit, kvikmynda, leika,
framleiða, stjórna og inna aðra þá
Útbúnaður til videósendinga.
DB-myndir.