Dagblaðið - 15.10.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981.
17
N
Kvartmflukeppni Kvartmáluklúbbsins:
Sigurvegaramir endurtóku afrek sín
Þrátt fyrir kulda og rok héldu
kvartmílingar aðra kvartmílukeppni
sumarsins og tókst hún alveg ágæt-
lega þrátt fyrir erfið ytri skilyrði.*
Varla var við öðru að búast því kepp-
endur voru í góðu formi og keppnis-
stjóri var örvar Sigurðsson fyrrver-
andi formaður Kvartmiluklúbbsins.
Örvar hafði einnig stjórnað undir-
búningi fyrir keppnina, auk þess sem
fyrirtæki hans Ö.S. umboðið gaf öll
verðlaun í keppnina.
Eins og í fyrri keppninni naut götu-
bílaflokkurinnlmestrarhyllilkeppenda
og voru þeir flestir þar, en auk þess
flokks var keppt í standard-, street
alterd-, og mótorhjólaflokki.
Standardflokkur
Þrír keppendur mættu til leiks í
standardflokki og voru þeir allir úr
Ford fjölskyldunni. Þeim fækkaði þó
fljótt því að í forkeppninni bilaði 351
Cleveland Ford Torinoinn hans
Hilmars Bryde svo að hann varð að
hætta keppni. Eftir voru þá Jóhann
Einarsson sem keppti á 302 cid. Ford
Maveric og Guðmundur Kjartansson
en Guðmundur keppti á Mercury
Cyclone með 429 cid. í forkeppninni
var töluverður tímamunur á þeim
Guðmundi og Jóhanni og fékk
Jóhann 70% þess munar í forskot,
eða 1,12 sek. Guðmundur þurfti því
að ná Jóhanni og komast fram úr
honum til að sigra. Guðmundi tókst
það og fór hann kvartmíluna á 14,90
sek. i úrslitaspyrnunni, en tími
Jóhanns var 16,84 sek. Guömundur
sigraði því í standardflokknum en
hann sigraði reyndar einnig í sama
flokki í fyrri keppninni.
Street Eliminator
Götubilaflokkurinn naut mestra
vinsælda keppenda enda voru þeir
Eins og i fyrri keppninni var 428 cid. Firebirdinn hans Benedikts Eyjólfssonar i
hörku stuði og átti Benedikt i erfiðleikum með að halda honum við jörðina. 1 hvert
skipti sem græna Ijósið kviknaði greip Eldfuglinn flugið og þeyttist af stað eins og
þrumufleygur. DB-mynd Ragnar Th.
! götubílafiokknum stóð Gunnlaugur Emilsson i ströngu. I forkeppninni náoi nann irekar lélegum tima og þurfti þvi aó
spyrna við alla hina keppendurna i flokknum. Felldi hann þá hvem af öðram úr keppninni og spyrnti að lokum til úrslita við
Val Vifilsson en fyrir honum varð Gunnlaugur að láta f minni pokann. DB-mynd Ragnar Th.
Guðmundur Kjartansson keyrði knálega og af miklu öryggi enda er hann farinn að þekkja Pioneer Mercury Cycloninn sinn
mjög vel. Guðmundur sigraði i standardflokknum og náði 14,90 sek. i úrslitaspyrnunni. Hann hefur þó oft náð mun betri
timum og i forkeppni fyrri keppninnar var hann kominn með Cycloninn niður i 13,70 sek. en kuldi og rok komu í veg fyrir að
hann endurtæki þann tlma. DB-mynd Ragnar Th.
langflestir þar. Sex keppendur
komust í keppnina en nokkrum var
snúið frá þar sem þeir stóðust ekki
öryggiskröfur og komust ekki í gegn
um skoðunina. Ættu væntanlegir
keppendur að sjá til að einföldustu
öryggisatriði eins og spindlar, hjóla-
legur og spindilkúlur, auk bremsa séu
ílagi.
í forkeppninni fækkaði kepp-
endum götubilaflokksins því að bíl-
arnir hjá Hjörleifi Hilmarssyni og
Gunnlaugi Bjarnasyni biluðu og féllu
þeir úr keppninni. Fyrsta spyrnan var
á milli þeirra Gunnlaugs Emilssonar
á 383 cid. Dodge Charger og Jóns
Birgissonar sem keppti á 327 cid.
Camaro. Gunnlaugur felldi Jón úr
keppninni og spyrnti síðan við Ágúst
Þórólfsson á 327 Chevelle. Ágúst
varð einnig að lúta í lægra haldi fyrir
Gunnlaugi og var hann nú kominn í
úrslitin en til aðvinnakeppnina þurfti
Gunnlaugur að vinna sigurvegarann
úr fyrri keppninni, Val Vífilsson, sem
keppti á 440 cid. Valiant. Þeir Valur
og Gunnlaugur spyrntu tvisvar og var
Valur á undan í bæöi skiptin. í fyrri
spyrnunni náði Valur tímanum 13,89
sek. en í seinni spyrnunni 13,86 sek.
Tímarnir hjá Gunnlaugi voru 14,50
sek. fyrst en síðan 14,65 sek. Valur
sigraöi því í götubílaflokknum i
annað sinn og það þrátt fyrir að hann
hefði einungis ekið á 7 strokkum að
eiginsögn.
Street Alterd
Þrír keppendur tóku þátt í keppn-
inni i S.A. flokki. Þeir voru Sigurður
Jakobsson sem keppti á 302 cid.
Chevy, Kókosbollunni hans Gylfa
Pálssonar pústmanns. Finnbjörn
Kristjánsson sem keppti á 350 cid.
Chevy Kryppunni úr Hafnarfirðinum
og Benedikt Eyjólfsson en hann
keppti á Pontiac Firebird með 428
cid. vél.
Lánið lék ekki við þá félaga á
Kókosbollunni frekar en fyrri
daginn, því að stöðugar bilarnir
gerðu þeim lífið leitt. Bremsurnar
biluðu og bensínbarkinn auk ýmiss
annars. Fóru þeir félagar að minnsta
kosti eina ferð í bæinn eftir varahlut-
um en það dugði ekki til og tókst
þeim ekki að ljúka keppninni.
Úrslitaspyrnan varð þvi milli þeirra
Benedikts og Finnbjarnar. j spyrn-
unni sat Kryppan eftir á startlínunni
og hreyfðist ekki. Hafði bíllinn orðið
bensínlaus á startlinunni svo að hann
komst ekki lengra. Finnbjörn hafði
gefið merki um að eitthvað væri að
hjá sér áður en kveikt var á jólatrénu
svo að endurtaka varð spyrnuna.
Fóru báðir bílarnir því aftur á upp-
hitunarsvæðið og undirbjuggu spyrn-
una með miklum tilþrifum. Lyftust
báðir bílarnir upp að framan í snörp-
um upphitununum og einnig á ráslin-
unni þegar græna ljós jólatrésins
kviknaði. Á miðri brautinni fór
Kryppan að dansa til og átti Finn-
björn í erfiðleikum með að stjórna
henni. Var hann að slá af en missti
bílinn yfir miðlínu svo að hann var þá
þegar fallinn úr keppninni auk jtess
sem hann kom á eftir Benedikt í
mark. Tími Benedikts var 10,65 sek.
en tíminn hjá Finnbirni var 11,32 sek.
Benedikt vann því keppnina en hann
hafði reyndar einnig unnið fyrri
keppnina í haust.
Mótorhjólaflokkur
í mótorhjólaflokknum voru kepp-[
endur fjórir. í fyrstu tveimur spyrn-
unum töpuðu þeir Rikharður Júlíus-
son og Ari Jóhannesson fyrir Vil-
hjálmi Magnússyni og Gunnari
Geirssyni. Þeir Gunnar og Vil-
hjálmur spyrntu því til úrslita en þá
brá svo við að annar þeirra þjófstart-
aði en hinn keyrði yfir miðlínu braut-
arinnar svo að þeir féllu báðir úr
keppninni. Þetta atvik leiddi Ul þess
að Ari og Ríkharður komust aftur
inn í keppnina og spymtu til úrslita. í
þeirri spyrnu var Kawazaki 1000,
hjólið hans Ara, fljótara en 750 cc
Suzukan hans Ríkarðar og sigraði
Ari á 12,94 sek. gegn 13,42 sek.
Jóhann Kristjánsson.
V
Fjölþætt verkefni
Stjómunarfélagsins
Starfsemi Stjórnunarfélags íslands er
hafin á þessu hausti. Á vetraráætlun fé-
lagsins eru fjölþætt verkefni og er m.a.
boðið upp á 34 tegundir innlendra
námskeiða og fimm erlend námskeið.
Þá verður spástefna um þróun efna-
hagsmála á árinu 1982 haldin 10.
desember nk. Rekstrartafl ’82 verður
haldið i febrúar í samvinnu við IBM á
íslandi.
Þá verður í haust veitt viðurkenning
fyrir beztu ársskýrslu, sem barst í sam-
keppni, sem félagið efndi til um árs-
skýrslur íslenzkra fyrirtækja og stofn-
ana. Þá má þess geta að innan félagsins
eru starfandi klúbbar starfsmanna-
stjóra, fjármálastjóra, ritara svo og
bókaklúbbur.
Viðamesti þátturinn í starfsemi fé-
lagsins eru innlendu námskeiðin. Af
þeim 34 námskeiðum, sem boðið er
upp á, eru 9 námskeið ný. Þau eru af-
greiðslu- og þjónustustörf, framkoma í
sjónvarpi, framleiðsluskipulagning í
málmiðnaði, gæðastýring í frysti-
húsum, mótun starfsferils — breyting-
ar á starfi, sala á erlendum mörkuðum,
skrifstofuhald og skrifstofuhagræðing,
tilboðsgerð í málmiðnaði og tilboðs-
gerð í prentiðnaði.
Af erlendu námskeiðunum má nefna
námskeið nú um miðjan október, sem
nefnist Nýjar leiðir í stjórnun. Leið-
beinandi er Jack Hautaluoma, prófess-
or i stjórnunarfræðum við Colorado
State háskólann i Bandaríkjunum.
Þá má og nefna Einkaritaranám-
skeið, en leiðbeinandi á því er frú
Eiwor Bohm-Pedersen, sem leiðbeint
hefur á námskeiðum sem þessum víða
um Evrópu. Tímaskipulagning verður
kennd í nóvember og er það námskeið
fengið frá Danmörku.
Loks skal nefna sérstætt námskeið,
sem eingöngu er ætlað konum í stjórn-
unarstörfum. Það námskeið er fengið
frá Bandarikjunum og leiðbeinandi er
frú Leila Wendelken frá Kaliforníu. -JH.
Rekstrartafl, þar sem tölvur eru notaðar til keppni eða leiks um það hvernig
stjórna á fyrirtækjum, var fyrst haldið á þessu ári og verður aftur í febrúar.
Myndin er af liði Landsbankans i Rekstrartafli ’81.