Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.10.1981, Qupperneq 1

Dagblaðið - 22.10.1981, Qupperneq 1
fijúlst, aháa dagblað 7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER1981 — 240. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022. „Gátum ekki beóið lengur með aðgeiðir” — segja fulltrúar nemenda skólans „Það er auðvitað erfltt að berjast við andstæðing, sem ekki er til staðar, en við hreinlega gátum ekki beðið lengur með þessar aðgerðir náms okkar vegna,” sögðu fulltrúar nemenda Menntaskólans við Hamra- hlíð, sem í morgun lokuðu skólanum þannig að kennarar og annað opinbrt starfslið komst ekki inn til að sinna störfum sínum. Lokun skólans í morgun er beint framhald af aðgerðum nemenda, sem hófust í gær, en þá efndu þeir til setu- verkfalls til að mótmæla reglum sem menntamálaráðuneytið setti um á- fangaskóla. Menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason, er hins vegar ekki i landinu sem stendur og heldur ekki ráðuneytisstjórinn, sem einnig mun vera erlendis. Er því fátt um svör af þeirra hálfu. Kennarar við skólann eru eindregið á móti þessum reglum og styðja nemendur í hvívetna þannig að aðgerðunum í morgun er ekki beint gegn kennurunum sjálfum, heldur aðeins hinu opinbera. Nemendur lokuð Hamrahlíðarskólanum I morgun þannig að kennarar og annað starfslið komst ekki inn til að sinna störfum slnum. Rektor skólans, Örnólfur Thorlacius, vildi ekki una þessu og ruddi sér leið gegnum nemendaþvöguna. DB-mynd Kristján Örn. „Það sem í rauninni skiptir meginmáli og okkur, og öðrum fram- haldsskólanemum svíður hvað sárast í þessu máli, er að ekkert samráð skuli hafa verið haft, hvorki við nemendur né kennara í skóiunum, áður en reglurnar voru settar. Við eigum bara að vera þolendur í þessu tilviki og fylgja reglunum í hvívetna,” sögðu fulltrúar nemenda og voru allt annað en ánægðir. „Ráðuneytið er i raun að skipta sér af innanhússmálum hvers skóla — er með nefið ofan í hvers manns koppi ef svo má segja. Hér er aðeins verið að færa völdin til — úr skólunum yfir í ráðuneytið til þess að flækja máliðenn frekar.” -SSv. — sjá nánar á bls. 10-11 Nemendur MH lokuðu skólanum í morgun: Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, og Ólafur Noregs- konungur ganga eftir rauða borðanum frá flugvél forsetans. Á hœla þeim ganga Haraldur krónprins og Sonja krónprinsessa. Á innfelldu myndinni heilsar konungur for- seta. DB-myndir Kristján Már Vigdís nýtur feikna- vinsælda í Oslóborg Frá Kristjáni Má Unnarssyni, blaðamanni DB i Osló: Allt stefnir í það að opinber heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, til Noregs verði jafnánægjuleg og vel heppnuð og heimsókn forsetans til Danmerkur fyrr á árinu. Hvar sem Vigdis kemur er henni feikivel fagnað. Nefna má sem dæmi að hópur barna safnaðist saman fyrir framan konungshöllina í gær. Þar var ekki um skipulagðar aðgerðir yfirvalda að ræða, heldur komu börnin að eigin frumkvæði. Þau hrópuðu margfalt húrra fyrir Vigdísi. Þá eru viðbrögðin þau sömu, hvar sem forsetinn fer. Fólkið hrópar Vigdís — Vigdís. Ljóst er að forsetinn er geysivinsæll og hin opinbera heimsókn á eftir að koma íslandi og íslendingum mjög til góða. -JH. — sjá nánar á bls. 10-11 Innbrot á dagheimili Brotizt var inn í Dagheimilið við morgun mætti þeim ófögur sýn. Búið Völvufell í nótt. Hafði verið farið var að róta i öllu, skemma matvæli inn um glugga, auðsjáanlega í þeim og sprauta úr slökkvitækjum. Þá var ásetningi að vinna þar skemmdar- einnig litlu kassettutæki stolið. verk. Þegar fóstrur komu til vinnu i -LKM. Vímaðurþjófur: NÁÐIST EFTIR ELHNGARLEIK „Ég var að tala við viðgerðar- götuna aftur og mátti þakka fyrir að manninn sern var að vinna i bílnum aka ekki niður gangandi vegfaranda. og við vissum ekki til fyrr en honum Menn töldu ökuferðinni lokið er var bókstaflega spólað út af bifreiðin hafnaði á húsi verkstæðinu,” sagði Ragnar verzlunarinnar Örnólfs, þvi þar Björnsson, sem i gær varð vitni að nánast læstist hægra framhjólið við því að bifreið, sem var verið að vinna ákeyrsluna. Svo var þó ekki þvi það í, var stolið fyrir framan augun á var loks á Bergþórugötunni að honum. ökuferðinni lauk. Festist billinn þá á Þjófurinn hafði ekki fyrir þvi að milli húss og Ijósastaurs og varðekki loka vélarhlífinni í byrjun, sem haggað. Ökumaðurinn, sem talinn eðlilega byrgði honum sýn. Eftir var undir áhrifum vímugjafa, komst glæfraakstur vestur Grettisgötu undan en náðist í kjallara húss ekki bakkaði hann á mikilli ferð austur langt frá. -SSv. Eins ogsjámá er blllinn stórskemmdur eftir glœfraaksturinn. DB-mynd Kristján Örn.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.