Dagblaðið - 22.10.1981, Síða 5

Dagblaðið - 22.10.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 5 Þingsályktunartillaga tólf stjómarandstöðuþingmanna: Alþingi skori á ráðherra að kanna vilja símnotenda varðandi skrefatalningu — Flutnings- menntelja hækkuná gjaldskrár- taxta umf ram- skrefaná samatilgangi Tólf þingmenn stjórnarand- stöðunnar, sjö Sjálfstæðismenn og fimm Alþýðuflokksmenn með Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi fylkingar, hafa lagt fram á þingi tillögu til þingsályktunar um að Alþingi skori á samgönguráðherra að láta fara fram, nú þegar, könnun á afstöðu símnot- enda til þess, hvor leiðin verði farin til að jafna símkostnað landsmanna. 1) skrefatalning innanbæjarsímtala ,eða 2) hækkun á gjaldskrártaxta umframskrefa (þó ekki á kostnað lang- línunotenda). Tillagan gerir ráð fyrir að spurningarform og upplýsingar á könnunareyöublaðinu verði unnin i samráði við Neytendasamtökin og send út með símreikningum. Ályktunum og lögum ekki fylgt í langri greinargerð er m.a. minnt á þingsályktun frá 1974, þar sem ríkis- stjóm er falið að haga endurskoðun gjaldskrár Landssímans þannig, að sem fyrst náist sem mestur jöfnuður með landsmönnum i kostnaði við notkun símans og dreifbýli og höfuðborgar- svæði beri hlutfallslega sömu byrði hinna sameiginlegu heildarsímútgjalda. Þá er bent á ákvæði laga nr. 36 frá 1977 ,,að stefnt verði að þvi við gjald- skrárgerð, að sömu gjöld gildi innan hvers svæðisnúmers” og síðar í sömu lögum að „ráðherra sé heimilt að ákveða, að sama gjald skuli krafið fyrir símtal við helztu stjórnsýslustofnanir ríkisins í Reykjavík hvaðan sem talað er af landinu.” Kaup talningartækja falin f fjárlagafrumvarpi Rakið er, að þáverandi sam- gönguráðherra heimilaði Pósti og síma að taka tilboði um sölu á skrefa- talningartækjum fyrir Reykjavíkur- svæðið, án skilyrðis um fyrirvara um fjárveitingu Alþingis. Síðan að ekki hafi við afgreiðslu fjárlaga verið vakin sérstök athygli fjárveitinganefndar né þingmanna almennt á því, að um væri að ræða kostnað vegna tækjakaupa til mælingar innanbæjarsímtala á höfuðborgarsvæðinu. Siðan segir að nýjustu upplýsingar hermi að skrefatalningin verði að líkindum tekin upp 1. nóv. Vegna fyrirspuma og gagnrýni þingmanna hafi framkvæmd skrefatalningar verið mjög á reiki og tekið ýmsum breytingum. Þannig sé nú ákveðið að tíma- mæling nái til símtala í öllum bæjum og byggðakjörnum landsins sem hafa sjálfvirkan síma. Taki talningin strax til 96% símanúmera. Nú sé ekki lengur TVEIR í VIÐBÓT AFTOPPLISTANUM „Við Ólafur ÍIHH megumvel '.fHMH una — sagði Steingrímur Hermannsson ,,Út af fyrir sig eru skoðana- kannanir þarfar og oft marktækar, sjálfsagt eitthvað misjafnlega þó. Á því getur jafnvel verið daga- munur, hverjar vinsældir stjórnmála- menn hafa,” sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Framsókn- arflokksins f viðtali við DB. ,,Ég held þó,” sagði Steingrímur, „að við Ólafur megum vel við una þessa könnun Dagblaðsins vinsældum stjórnmálamanna”. -BS 77 „Viðhorfin breytast ört, einsog dæmin sanna — segir Kjartan Jóhannsson „Þetta er nú kannski frekar til gamans gert en að ætlunin sé að uppgötva einhver náttúrulögmál,” sagði Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins í viðtali við DB. Hann bætti við: ,,í þessum efnum breytast viðhorfin harla ört, eins og dæmin sanna úr fortíðinni”. -BS. nefnd 3 mínútna skreflengd á daginn og 6 mínútur kvöld og nætur, heldur aðeins talning að degi til (kl. 8—19) fimm virka daga vikunnar. Ekki sé lengur á dagskrá aö lengja aðeins langlínuskref í 2. og 4. gjaldflokki, heldur lenging allra langlínusamtala. Rök andmælenda Talin eru upp rök ráðamanna símaþjónustu fyrir skrefatalningunni. Tekið er fram að andstaða gegn áform- um um skrefagjald hafi verið fyrir hendi frá fyrstu tíð. Loks er sagt að andmælendur skrefagjaldsins haldi fram 1) að skrefa talning sé frelsissvipting frá því sem verið hafi og i henni felist skerðing á málfrelsi. 2) að ná megi sama jöfnuði með hefðbundinni hækkun á gjald- skrártaxta umframskrefa, og nýlega hafi fengizt viðurkenning símamála- stofnunar á að sama jöfnuði mætti ná með 35% hækkun umframgjalda. 3) Þorri þjóða hafi leyst vanda vegna gjaldtöku vegna gagnasendinga til og frá tölvum, án þess að leggja skrefa- gjald á almenna notendur. Loks segir að „frínúmerakerfun” síma sem Alþingi fól ríkisstjórn í maí í vor að láta kanna, þurfi ekki að girða fyrir skoðanakönnun þá, sem tillaga tólfmenninganna gerir ráð fyrir. Bezt sé að hún sé gerð í samráði við Neytendasamtökin og spurningalistar sendir út með símreikningum. -Á.St. Hinn ótvírœði sigurvegari Tœkið sem gagnrýnendur keppast við að HRÓSA SONY Skrum eða staðreynd? Staðreynd: „ Viö skiljum ekki hvers vegna SONY ,,SONY C5 er líklega merkasta video kom ekki fyrr með C5 á markaðinn, framlagið 1981” tækið er ósigrandi (it’s an unbeatable Which Video! Okt. 1981. package which beats the pants off many other machines) ” se§ia meira? VIDEO WORLD. Sept. 1981. sión er SÖ8U ríkari- Þú getur treyst SONY •JAPIS Brautarholti 2 Símar27192 og 27133.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.