Dagblaðið - 22.10.1981, Side 10

Dagblaðið - 22.10.1981, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 Áhrifamikil athöfn er Noregskonungur tók á móti forseta íslands í Osló: HEIÐURSFYLKING HERMANNA EFTIR ENDILANGRIAÐAL- GÖTU OSLÓAR, KARL JOHAN —veizla Noregskonungs til heiðurs f orsetanum í gærkvöldi Frá Kristjáni Má Unnarssyni, blaðamanni DB i Osló: Það var áhrifamikil athöfn, er Ólafur Noregskonungur tók á móti Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, á Fornebuflugvelli í gær- morgun. Sérstakur blær, hátíðleiki, ríkti. Ólafur konungur heilsaði Vigdísi, er hún steig á norska grund úr þotu Flugleiða. Konungur kynnti Vigdísi síðan fyrir Haraldi krónprins, Sonju krónprinsessu og öðrum úr mót- tökunefndinni. Fylgdarlið forseta tslands steig því næst úr flugvélinni, fremstur Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra. Eftir að þjóðsöngvar ríkjanna höfðu verið leiknir, kannaði Vigdís líf- varðarsveit konungs en síðan var haldið inn í flugstöðina, til mót- tökuherbergis, þar sem biðu m.a. for- sætisráðherrann, Káre Villoch og aðrir ráðherrar. Að móttökuathöfninni lokinni var haldið til konungshallarinnar og m.a. var ekið um aðalgötu Oslóar, Karl Johan. Var heiöursfylking hermanna beggja vegna götunnar, eftir henni Ólafur Noregskonungur tekur á móti Vigdfsi Finnbogadóttur, forseta tslands, er hún stigur út úr flugvélinni á Fornebuflugvelli. endilangri. Áður en hádegisverður var snæddur, komu þau Vigdís og Ólafur fram á svalir haliarinnar og veifuðu til mannfjöldans fyrir neðan. Síðdegis i gær var ekið til Akershus- kastalans og þar lagði Vigdís blómsveig að þjóðarminnismerkinu um þá sem féllu í stríðinu. Noregskonungur hélt svo í gær- kvöldi forseta ísiands veizlu í höllinni. Ólafur Noregskonungur og Haraldur krónprins heilsa fylgdarliöi forseta Islands. DB-myndir Kristján Már Unnarsson. Vigdís og Ólafur konungur héldu bæði ræður við það tækifæri. í dag mun Vigdís m.a. heimsækja víkingaskipasafnið, listasafn Henie- Onstad, snæða hádegisverð í ráðhúsi Oslóborgar, i boði borgarstjórnar, en kvöldverð í Akershuskastala í boði ríkisstjómarinnar. -FG. DB á baráttuf undi Fjölbrautaskólans í Breiðholti: Mikíll hugur í fundarmönnum —þrátt fyrir þoku, raka, dynjandi hamarshögg ogvélsagarhvin Það var ekki meira en svo að rétt grillti í ræðumenn á fjölmennum fundi, sem haldinn var við Fjölbrautaskólann í Breiðholti um ellefuleytið í gærmorgun, og sóttur var af nemendum úr skólanum svo og Ármúlaskóla í miklum mæli. Þrátt fyrir þokumistrið, rakann og leiðinlegar ytri aðstæður bar ekki á öðru en hugsjónirnar nægðu til að haldahitaáfólkinu. Framsöguræður voru fluttar af skörungsskap og voru flestar á einn veg, þ.e. eindregið gegn þeirri reglugerð, sem menntamálaráðuneyt- ið sendi nýverið frá sér um starfs- hætti áfangaskóla. Undir dynjandi hamarshöggum og vélsagarhvin i fjarska samþykktu nemendur eftir- farandi ályktun með lófataki: Almennur fundur nemenda Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Fjölbrautaskólans í Ármúla og kennara Fjölbrautaskólans í Breið- holti, haldinn í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þann 21. október 1981 ályktar að reglur þær sem mennta- málaráðuneytið hefur sent frá sér um starfshætti framhaldsskóla, sem starfa samkvæmt áfangakerfi, hafi verið unnar á ólýðræðislegan hátt. Fundurinn telur að eðlilegt hefði verið að nemendur og kennarar hefðu haft umsagnarrétt um reglurnar. Fundurinn krefst þess að reglurnar verði teknar til gagngerrar endurskoðunar á grundvelli þeirra athugasemda, sem komið hafa fram um reglurnar. ____. -SSv. Harðorð mótmæli MH og FB: „í ÞESSU TILVIKIHEFUR VERIÐ GENGK) OF LANGT” — segir í greinargerð f rá Menntaskólanum við Hamrahlíð Dagblaðið varð sér úti um ályktanir frá bæði Menntaskólanum við Hamrahlíð svo og Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og þar er að finna harðorð mótmæli frá báöum skólum. Báðar eru greinargerðirnar mjög ítarlegar og nákvæmlega farið ofan í öll efnisatriði. Að lokinni ítarlegri krufningu á reglugerðinni segir í greinargerð frá nemendum Hamrahlíöarskólans: „ . . . Teljum við okkur hafa bent á ótrúlega marga annmarka á þessum nýju reglum Menntamála- ráðuneytisins um starfshætti áfanga- skóla. Við teljum að menntamála- ráðuneytið hafi byrjað á vitlausum enda í samræmingu framhalds- skólanna, með því að samræma þau atriði sem í raun þarfnast ekki samræmingar . . . Það hlýtur alltaf að vera spurning um hversu náið menntamálaráðuneytið skiptir sér af innra starfi einstakra skóla. í þessu tilviki hefur það gengið of langt. ” í yfirliti og athugasemd frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, er einnig drepið á mörg atriði og reglugerðinni fundið flest til foráttu. Niðurlag greinargerðar FB hljóðar þannig: „Eins og nemendur hljóta að sjá er þessi reglugerð stórgölluð. Bæði kennarar og nemendur hafa sýnt henni andstöðu. Við hvetjum nemendur til að sýna samstöðu og mótmæla kröftuglega.” -SSv. Fundurinn í gær var mjög vel sóttur eins og sjá má af myndinni og stemmning mikil á meðal fundarmanna. DB-myndir: Kristján örn. r Alyktun nemenda íFlensborg: Ekki rétt að grípa til róttækra aðgerða Nemendafundur Nemendafélags Flensborgarskóla, haldinn í hátíðar- salskólans ályktar: Fundurinn lýsir yfir óánægju sinni með það hvernig staðið hefur verið að gerð reglugerðar þeirrar sem nefnd hefur verið „Reglur um starfs- hætti skóla sem starfa eftir áfanga- kerfi.” Fundurinn telur þó ekki rétt að gripið sé til róttækra aðgerða þeg- ar í stað, heldur sé ráðlegt að fylgja samþykkt LMF og styðja þær aðgerðir sem LMF telur ráðlegar. En hins vegar skuli hvetja til umræðu manna á meðal á sem víðustum grundvelli um nefnda reglugerð og hvernig var staðið að gerð hennar. Viðar Ágústson, Itennari, talar til nemenda.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.