Dagblaðið - 04.11.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981
3
Um skyldusparnaðinn:
Stutt bréf og langt svar
fíaynhtidur
Skyldusparnadur var tekinn árin 1975, ’76 og ’78. Sparnaður vegna tveggja fyrri
áranna kemur til útborgunar fyrir lok þessa mánaðar. DB-mynd Ragnhildur.
Halldór Heiðmarsson hringdi:
Ég og nokkrir vinnufélagar minir
höfum mikinn áhuga á að vita hvað
varð um skyldusparnað þann er
tekinn var af mönnum ’76, ’77, ’78.
Verða t.d. greiddar vísitölubætur
og/eða vextir?
Okkur hefur verið sagt að þetta
verði endurgreitt ’84, en þegar við
leitum upplýsinga fáum við engin
svör eða mjög loðin. Launadeild,
ríkisféhirðir og Seðlabankinn vísa
alltaf hver á annan og engar upplýs-
ingar virðist hægt að fá hjá bæjar-
fógetunum í Kópavogi og Hafnar-
firði hvað þetta mál varðar.
Svar rfkisfóhirðis:
Ríkisféhirðir, Sigurður Þorkels-
son, brá fljótt og vel við þegar blm.
DB leítaði til hans vegna ofan-
greindra fyrirspurna og sendi okkur
ítarlegar upplýsingar um skyldu-
sparnaðinn fyrir árin ’75, ’76 og ’78.
Samkvæmt upplýsingum rikisféhirðis
var skyldusparnaður tekinn þau ár en
ekki eins og segir í fyrirspurn Hall-
dórs Heiðmarssonar.
Binditími skyldusparnaðar, sem
tekinn var 1975, var til 31. janúar
1978. Innlausnartiminn er frá 1.
febrúar 1978 til 15. desember 1990.
Binditími skyldusparnaðar, sem
tekinn var 1976, var til 31. janúar,
1979. Innlausnartíminn er frá 1.
febrúar 1979 til 15. desember 1991.
í báðum tilvikum eru
innlausnarstaðir hjá ríkisféhirði,
bæjarfógetum og sýslumönnum og
innstæðuform beggja ára eru
skyldusparnaðarskírteini.
Hvað vexti og verðbætur varðar
fyrir skyldusparnaðinn 1975 er þetta
aðsegja:
„Vextir eru 4% og reiknast frá
fyrsta janúar 1976 til 15. desember
1990 sicv. eftirfarandi skilyrðum: 1)
Ef skyldusparnaður er greiddur fyrir
fyrsta jan. 1976 reiknast vextir frá
þeim degi til innlausnardags. 2) Ef
skyldusparnaður er greiddur eftir 1.
jan. 1976 reiknast vextir frá loka-
greiðsludegi skyldusparnaðarins til
innlausnardags.
Verðbætur reiknast í hlutfalli við
þá hækkun sem kann að verða á vísi-
tölu framfærslukostnaðar frá 1.
nóvember 1975 til 1. nóvember 1990
skv. eftirfarandi skilyrðum: 1) Ef
skyldusparnaður er greiddur fyrir 30.
júní 1976 reiknast verðbætur miðað
við hækkun vísitölu framfærslu-
kostnaðar frá 1. nóvember 1975 til 1.
nóv. næst á undan innlausn 2)
Ef skyldusparnaður er ekki greiddur
að fullu fyrr en eftir 30. júní 1976
reiknast verðbætur frá 1. nóvember
það ár sem greiðsla fer fram til 1.
nóvember næst á undan innlausn.”
Um vexti og verðbætur fyrir
skyldusparnað tekinn 1976 segir svo
í upplýsingum ríkisféhirðis:
„Vextir er 4% og reiknast frá 1.
janúar 1977 til 15. desember 1991
skv. eftirfarandi skilyrðum: 1) Ef
skyldusparnaður er greiddur fyrir 1.
janúar 1977 reiknast vextir frá þeim
degi til innlausnardags. 2) Ef skyldu-
sparnaður er greiddur eftir 1. janúar
1977 reiknast vextir frá lokagreiðslu
skyldusparnaðarins til inniausnar-
dags.
Verðbætur reiknast á höfuðstól
og vexti í hlutfalli við þá hækkun sem
kann að verða á vísitölu framfærslu-
kostnaðar frá 1. nóvember 1976 til 1.
nóvember 1991 skv. eftirfarandi skil-
yrðum: 1) Ef skyldusparnaður er
greiddur fyrir 30. júní 1977 reiknast
verðbætur miðað við hækkun vísi-
tölu framfærslukostnaðar frá 1.
nóvember 1976 til 1. nóvember næst
á undan innlausn. 2) Ef skyldusparn-
aður er ekki greiddur að fullu fyrr en
eftir 30. júní 1977 reiknast verð-
bætur frá 1. nóvember það ár sem
greiðsla fer fram til 1. nóvember næst
á undan innlausn.”
Upplýsingar um verðgildi skyldu-
sparnaðarskírteina fyrir árin 1975 og
1976 er að finna i töflum, útgefnum
af fjármálaráðuneytinu, er varða inn-
lausn skyldusparnaðarskírteina.
Skyldusparnaður 1978
Þá erum við komin að skyldu-
sparnaði sem tekinn var 1978 og þar
er binditiminn til 31. janúar 1984.
Inniausnartíminn er frá 1. febrúar
1984 til 31. janúar 1994. Innlausnar-
staðir eru hjá ríkisféhirði, bæjar-
fógetum og sýslumönnum en inn-
stæðuformið er viðskiptareikningur
hjá ríkissjóði.
Af vöxtum og verðbótum fyrir
skyldusparnað tekinn 1978 er þetta
aðsegja:
„Verðbætur reiknast í hlutfalli
við hækkun á vísitölu framfærslu-
kostnaðar á tímabilinu frá 1. janúar
1979 til 1. janúar 1984 skv. eftirfar-
andi skilyrðum: 1) Ef skyldusparn-
aður er greiddur fyrir 1. febrúar 1979
reiknast verðbætur miðað við hækk-
un vísitölu framfærslukostnaðar frá
1. jan. 1979. 2) Ef skylduspamaður
er greiddur eftir 1. febrúar 1979
reiknast verðbætur frá 1. janúar
næsta ár á eftir fullnaðarskilum.
Vextir reiknast ekki fyrir tímabilið
fram til 31. janúar 1984. Frá 1.
febrúar 1984 til 31. janúar 1994
reiknast vextir jafnháir vöxtum af al-
mennum sparisjóðsbókum á hverjum
tíma.”
Yfirlit, sent frá ríkisbókhaldi eigi
siðar en um áramót 1983/1984, mun
segja til um stöðu á viðskiptareikn-
ingi hjá ríkissjóði.
Sigurður Þorkelsson ríkisféhirðir
taldi rétt að geta þess að visitalan sem
miðast við 1. nóvember, 1981, vegna
sparnaðar 1975 og 1976, liggur ekki
fyrir fyrr en nokkuð er liðið á
mánuðinn. Því væri ekki hægt, enn
sem komið er, að greiða út sparnað-
inn með verðbótum sem á þeirri vísi-
tölu (framfærsluvisitöíunni) byggjast
fyrr en upp úr miðjum nóvember
næstkomandi og vonandi ekki síðar
en 20. nóvember. -FG.
Spurning
dagsins
Sefur þú í
náttfötum?
Kagnar Einarsson verkstjóri: Nei, ég
sef allsnakinn. Mér fínnst það þægileg-
ast.
Ólafur Óskarsson nemi: Nei, ég sef
ekki i náttfötum. Mér þætti það of
heitt.
Kristinn Kristjánsson kennari: Sjaldan.
Yfírleitt væri það alltof heitt en hins
vegar sef ég í náttfötum á frostnóttum.
..ISLENZKT ST0RFYR1RTÆKI”
Siggi flug 7877—8083 skrifar:
Skelfing hefði nú verið gaman ef
hægt hefði verið að nota þessa
fyrirsögn, ef um hefði verið að ræða
íslenzkt (innlent) stórfyrirtæki, en því
er því miður ekki að heilsa.
Stórfyrirtækið sem um getur er i
USA, nánar tiltekið í Tallahasse (í
Florida) og er í eigu íslenzk manns,
Hilmars S. Skagfield (sonar S. Skag-
field söngvara).
Ekki veit ég hvenær Hilmar hélt
til Bandaríkjanna og settist þar að en
Sigurður faðir hans dvaldi með mér í
Þýzkalandi 1928—30, og gæti ég
trúað að Hilmar sonur hans væri
nálægt fimmtugu.
Það er gaman þegar íslendingar
geta sér góðan orðstír erlendis
(Hilmar mun ekki vera sá eini) en um
leið er sorglegt til þess að vita að
þessir menn skuli ekki geta látið
„gamla landið” njóta starfskrafta
sinna. Til þess liggja hins vegar
margar ástæður.
Á íslandi eru í dag engin hluta-
félög eða samtök sem má nefna því
nafni. Almenningshlutafélög eru
engin til líkt og í öðrum löndum. Hér
er engin kauphöll og ekkert fastskráð
gengi á verðbréfum, nema þá helzt á
svörtum markaði. Á ársyfirlitum
(reikningum) fyrirtækja (þau eru fá)
eru sum orð bannfærð, eða því sem
næst, en þau eru: arður, ágóði, vara-
sjóður, afskriftir, húsa (eigna),
einnig afskriftir af vörubirgðum,
hagnaður (af gengi) og ótal margt
fleira sem flest er talið glæpsamlegt,
eða því sem næst. Síðan koma skatt-
arnir sem að sjálfsögðu eru miðaðir
við það hæsta sem þekkist og
tvísköttun er ekki óalgeng.
Mig skortir að vísu kunnáttu til
þess að telja allt það fram sem til
greina getur komið en ef einhver les
þennan pistil, getur hann lesið á milli
línanna það sem á vantar.
Hilmari S. Skagfield hefur vegnað
vel úti í þeim stóra heimi. Sjálfsagt
vegna eigin dugnaðar og ekki hvað
sízt vegna þess að hann hefur líklega
fengið að vera í friði með fyrirtæki
sitt en ekki verið hundeltur af því
opinbera eins og gerist hér hjá
okkur.
Að sjálfsögðu þarf Hilmar að
greiða öll lögboðin gjöld í Banda-
ríkjunum, en þar með eru öll afskipti
hins opinbera búin. Hér aftur á móti
er hið opinbera nær óseðjandi og
lætur sér sæma að leggja á skatta
eftir á, og finnst það sjálfsagður
hlutur, og menn standa algerlega ber-
skjaldaðir.
Mér datt þetta (svona) í hug.
NYTT
ísœlkera-
ABAKKA
Ml85411
Skemmtilegar drykkjar-
krúsir, salt- og piparsett med
lítilli könnu, salatskálar, ■—
osta/smjörkúpur, sykur- og rjómasett ogjleira
Örn Árnason nemi: Nei, það verður of
heitt. Samt sef ég ekki ber.
Vilhjálmur Ástráðsson sýningarmaður:
Nei, til hvers? Það er alltof mikil fyrir-
höfn að fara úr og í. Til hvers að klæða
sig úr og svo strax aftur í önnur föt?
Arnór Benónýsson nemi: Nei, mér
finnst þau óþægileg. Ég sef alltaf ber
og það er kannski hollast.