Dagblaðið - 04.11.1981, Síða 28
. nóvembernk.:
Kemur okkur alger-
lega í opna skjöldu
—segir f ulltrúi VSÍ. Samningaviðræður dragast von úr viti án verkfallsboðunar,
segir f ormaður Félags bókagerðar manna
„Það hafa verið haldnir fjórir fundir
fr’am að þessu án þess að nokkuð hafi
komið út úr þeim. Ef draga má ein-
hvern lærdóm af reynslunni dragast
samningaviðræður von úr viti án verk-
fallsboðunar. Á sl. ári biðum við í 11
mánuði og í raun gerðist ekkert nema
síðustu sjö dagana fyrir verkfall,”
sagði Magnús E. Sigurðsson, formaður
Félags bókagerðarmanna, í morgun. Á
fundi félagsins í gær var samþykkt með
meginþorra atkvæða gegn átta að boða
til verkfalls annan laugardag, 14.
nóvember.
„Þessi verkfallsaðgerð kemur okkur
algerlega í opna skjöldu,” sagði
Þórarinn Þórarinsson, fulltrúi Vinnu-
veitendasambands íslands, í morgun
en hann hefur unnið í samningagerð
VSÍ með Félagi íslenzka prentiðnaðar-
ins. „Endanlegar kröfur bárust ekki
frá bókagerðarmönnum fyrr en á
mánudag. Uppistaða kröfugerðarinnar
lá að vísu fyrir síðast í september en
endanlega var ekki gengið frá síðasta
þætti fyrr en á fundi á mánudag.
Við höfum unnið að samræmingu
milli þeirra þriggja félaga er mynda
Félag bókagerðarmanna og vildum
hafa hana klára áður en áfram yrði
haldið. Þann grundvöll átti að leggja
fram á fundi í dag. Nú þegar hafa verið
haldnir fjórir fundir en mjög skammur
tími er liðinn. öll önnur stéttarfélög
eru að koma fram með kröfur sínar.
Málin eru hjá ríkissáttasemjara og
tengjast óneitanlega mikið,” sagði
Þórarinn.
„Okkar kröfur hafa legið fyrir frá
24. september og það er orðhengils-
háttur að segja að þær hafi ekki komið
fram fyrr en á mánudag,” sagði
Magnús. „Hitt er annað mál að kröf-
urnar breytast í umræðum. Grunn-
kaupskrafa okkar er um 15% og auk
þess er krafizt launahækkunar fyrir
það fólk okkar sem lægst er launað.
Það má því segja að sameiginlega megi
teygja kröfurnar upp í rúm 20%.
„Það kemur ekki til mála að samið
verði um afturvirkni samninga,” sagði
Þórarinn. f kröfum bókagerðarmanna
er lögð mikU áherzia á þaö að samn-
ingar gildi frá 1. nóvember. „Við
leggjum áherzlu á að samningar takist
sem fyrst,” sagði Magnús. Þórarinn er
þar á sama máU: „Við leggjum eðlilega
áherzlu á að semja sem fyrst, átök á
vinnumarkaðinum eru engum til
góðs.”
Þórarinn sagði að engin afstaða
hefði verið tekin til verkbanns á önnur
félög er semja við Félag íslenzka
prentiðnaðarins.
-JH.
Þannig mynduðust samkvœm-
isgreiðslurnar á Hótel Sögu er
flokkurinn Haute Coiffure
Francaise sýndi nýju hártízk-
una frá París í gœrkvöldi.
Sýnd var ný klipping „Flou
157” og síðan var hugmynda-
flugið látið ráða í samkvœmis-
greiðslum. Á myndinni sést
módel Báru Kemp rétt áður en
greiðslunni varað fullu lokið.
DB-mynd Kristján Örn.
Framsókn með athugasemdir við fjárlagaf rumvarpið:
„Lækka þarf skatta á
atvinnurekstrinum”
segir Tómas Árnason—fjárlagaumræðan byrjuð á þingi
„Við framsóknarmenn gerðum
grein fyrir því þegar fjárlagafrum-'-
varpið var afgreitt í ríkisstjórn að
endurskoða þyrfti skattaálögur á at-
vinnureksturinn,” sagði Tómas
Árnason viðskiptaráðherra í viðtali
við DB í morgun. Tómas sagði að
Framsókn mundi vinna að sUkum
breytingum við afgreiðslu fjárlaga-
frumvarpsins nú og hugsanlega
standa að breytingartillögum.
Tómas sagði að einkum þyrfti að
létta sköttum af iðnaðinum, kannski
í áföngum. Skattaálögur gerðu það
að verkum að samkeppnisaðstaða
innlends iðnaðar væri ekki hin sama
og erlends iðnaðar.
Auk þessara athugasemda fram-
sóknarmanna við fjárlagafrumvarpið
vildu þeir láta „athuga” hvort rétt
væri að 60 milljónir króna færu á
næsta ári tU Kröfluvirkjunar.
Fjárlagaumræðan hófst á Alþingi í
gær. Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra sagði í fjárlagaræðu að mikill
árangur hefði náðst. Ríkisstjórnin
stefndi að því að reka þjóðarbúskap-
inn á heilbrigðan hátt án viðskipta-
halla, tryggja afkomu atvinnuvega,
minnka verðbólgu, ná viðunandi
kaupmætti, reka ríkissjóð hallalaust
og efla menningu og félagslegan
jöfnuð. 1 þessa átt hefði miðað
síðustu ár. Stjórnarandstæðingar
gagnrýndu mjög erlendar lántökur.
Matthías Á. Mathiesen (S) sagði að
nú ætti á einu ári að tvöfalda er-
lendar lántökur. Þær hefðu þá tólf-
faldazt á 4 árum. Matthías og Sig-
hvatur Björgvinsson (A) sögöu að nú
væri með tilfærslum úr A-hluta í B-
hluta fjárlaga, það er að útgjöld væri
fjármögnuð með lántökum. búin til
„glansmynd” af hagstæðri niður-
stöðu á rekstrarreikningi, sem ekki
stæðist. Þetta væru bellibrögð. Síðar
yrðu skattgreiðendur að borga brús-
ann. -HH.
frfálst, úháð daghlað
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓV. 1981.
Sr. Sig-
urðurá
Grenjaðar-
stað vígslu-
biskup
Sr. Sigurður Guðmundsson,
prófastur á Grenjaðarstað, hlaut flest
atkvæði í kjöri presta í Hólastifti hinu
forna á vígslubiskup. Sr. Sigurður
hlaut 15 af 27 greiddum atkvæðum.
Dómsmálaráðherra hefur endanlegt
vald um val vígslubiskups. Ekki er talið
að hann muni úrskurða á annan veg en
prestarnir hafa gert. Verður sr.
Sigurður því væntanlega vígður
biskupsvígslu í Hóladómkirkju á
næstunni.
Aðrir sem hlutu atkvæði voru sr.
Þórhallur Höskuldsson, sex atkvæði,
sr. Birgir Snæbjörnsson, fimm at-
kvæði, og sr. Bolli Gústavsson hlaut
eitt atkvæði.
-KMU.
ifTT YTT T7*
\sZ m Q m e gURj
IVIKU HVERRI
IDAG
ER SPURNINGIN:
t hvaða dálki, á hvaða blaðsiðu er
þessi smáauglýsing f blaðinu 1 dag?
Ungur maður óskar eftir vinnu,
hefur reynslu í meðferð þunga-
vinnuvéla. Allt kemur til greina.
Uppl. I síma 30188.
Hver er auglýsingasimi
Dagblaðsins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á FIMMTUDAG
Vinningur vikunnar:
Crown-sett
frá Radíó-
búðinni
Vinningur I þessari viku er
Crown-sett frú Rodíóbúöinni,
Skipholti 19.1 vikunni veröur birt,
ú þessum stað í blaðinu, spurning
tengd smúauglýsingum Dag-
blaðsins. Nafn heppins úskrifanda
verður slðan birt daginn eftir I
smúauglýsingunum og gefst honum
tœkifœri til að svara spurningunni.
Fylgizt vel með, úskrifendur. Fyrir
nœstu helgi verður einn ykkar
glœsilegum hljómflutningstœkjum
ríkari.
c ískalt
Seven
hressir betur.
U
%