Dagblaðið - 04.11.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 04.11.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981 1 Erlent Erlent Erient Erlent I Eftir sex ára flótta undan sköttum er Ringo Starr fluttur heim til Englands llilli Bítillinn fyrrverandi, Ringo Starr, flúði undan sköttum frá heimalandi sínu fyrir rúmum sex árum. En nú er hann kominn aftur til Bretlands. Ásamt konu sinni, Barböru Bach, sem er amerísk að ætt, er hann setztur að í gamla húsinu sínu. Það er utan við London, í Berkshire, og enginn kofi. Herbergin eru tuttutu og sex að tölu. ,,Ég kom heim til London í júní en ég held ekki að neinn hafi tekið eftir því ennþá nema skattstofan,” segir Ringo. „Þeir eru strax búnir að taka af mér stórar fúlgur, en við því er ekkert að gera. Ég vil búa hér í Englandi og það vill konan mín líka.” Ringo Starr var að ljúka við að taka upp nýja LP-plötu eftir tveggja ára hlé. Hún heitir „Stop and smell the roses”. Á umslaginu er mynd af honum sjálf- um í lögreglubúningi. Hann situr á mótorhjóli, en í byssuhulstrinu hefur hann ekki skotvopn heldur stóran vönd af rósum. Ringo Starr og ameriska konan hans, Barbara Bach, eru fíutt i gamla húsiO sem hann keypti í Berkshire ériö 1970. Þar eru tuttugu og sex herbergi. gítarsmíði? Rick Nielsen, gítarleikari hljómsveitarinnar Cheap Trick, er þekktur fyrir að leika á undar- lega gítara. Á hljómleikum hanga gjarnan tveir eða þrír gítarar framan á honum. Nú hefur hann leyst þetta vandamál með sérsmíðuðum grip sem alls hefur fimm hálsa! Þetta þýðir væntanlega að gítarleikarinn sem ætlar að spila á hljóðfæri sem þetta verður að hafa svipaða handleggi og api. Löngum hafa verið notaðir tveggja hálsa gítarar í rokktónlistinni og einnig hefur sézt bregða fyrir þriggja hálsa hljóðfærum. Með kolkrabba-gítar sínum hefur Rick þó áreiðanlega slegið met. Hins vegar væri afar fróðlegt að sjá hvernig hann ber sig til þegar hann leikur á neðsta háls gítarsins. Rick Nieisen, grtarieikari Cheap Trick, meO sórsmiOaOa fímm hálsa grtarinn sinn. Lhr Ullmann var aO fá verOiaun i Þýzkalandi fyrir starfsitt iþágu Bamahjálpar SameinuOu þjóOanna. Hun gaf fóO, um 70 þús. ísl. krónur, til aö kaupa mat handa börnum i þróunariöndum. Liv Ullman: Nóg verkefni — bæöi í kvikmyndaheiminum og í þróunarlöndunum í heilt ár hefur Liv Ullmann ferðazt um heiminn sem sendiherra og tals- maður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Fyrir þetta starf fékk hún menningarverðlaun í Milnchen í síðustu viku. Voru þau afhent við há- tíðlega athöfn, þar sem lofræður um þessa norsku leikkonu voru haldnar stanzlaust í tvo klukkutíma. Hún svaraði með snjallri ræðu, þar sem hún lýsti því hversu þjáningar sveltandi barna í þróunarlöndum hefðu gengið sér nærri hjarta. Verðlaunin, nálægt 70 þúsund krónum, ætlar hún að gefa til Barnahjálparinnar. Annars er viðbúið að hún fái lítinn tímatil að sinna börnunum á næstunni, því nú berast henni kvikmyndatilboð úr öllum áttum. Þeir í Hollywood vilja fá hana í tvær myndir og eins hefur henni verið boðið hlutverk í „Gösta Berlings saga”. Mynd eftir þessari sögu Selmu Lagerlöf gerði Gretu Garbo fræga árið 1924. Þessi nýja mynd verður unnin i samvinnu aðila frá ýmsum löndum. Liv hefur ekki svarað þessu tilboði játandi enn, því hún hefur svo mikið að gera. í vetur verður hún í norsku sjónvarpsleikriti, byggðu á sögunni Jenny eftir Sigrid Undset. Það verður framhaldsþáttur og mikið í hann borið. Og í haust verður hún i nýrri mynd eftir Ingmar Bergman. Hún segist hafa orðið óskaplega glöð, þegar hann alveg nýlega sendi henni handritið og bauð henni að vera með. Um hvað þessi nýja mynd Bergmans fjallar vill hún enn ekki tala, en eitt er vist: Hún vill frekar leika undir stjórn fyrrverandi eigin- manns síns en nokkurs annars. Þetta er heimur ríka mannsins — Abbaflokkurinn grœðir á tá og fingri Öfugt við Bítlana, sem kunnu að syngja og spila en ekki að fjárfesta, þá er sagt um Abba-hópinn, að tónlistar- gáfurnar séu ekkert ofsalegar, en hins vegar kunna þeir svo sannarlega að græða peninga. Fyrirtæki þeirra, PMI — Polar Music International — skilaði um ll milljónum dollara i gróða á síðasta bókhaldsári, sem lauk 30. apríl síðast- liðinn (yfir 80 milljónum ísl. króna). Var það fjórðungur af veltunni. Þessir fjórir meðlimir hljómsveitarinnar eiga nákvæmlega helminginn í PMI. Hinn helminginn á gamli umboðsmaðurinn þeirra, Stickan Anderson, og er hann jafnframt framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Það var eftir Eurovision söngva- keppnina 1974, sem Abba fór að gera lukku bæði i tónlistar- og peninga- heiminum. Þau ákváðu frá upphafi að verja gróðanum af rosalegri plötusölu skynsamlega og stofnuðu plötuút- gáfuna PMI. Hún er nú sú stærsta á Norðurlöndum og gefur út margt fleira en Abba. palla og gröfur og leigir sænskum iðn- fyrirtækjum. Þetta veltur allt saman ágætlega. 1978 fór sala á reiðhjólum að verða ábatavænleg — í sambandi við mikinn áróður fyrir heilsurækt i Svíaveldi. PMI keypti þá 38% af hlutabréfunum í sænsku reiðhjólaverksmiðjunum Monarch. Hlutabréfin i þessu fyrirtæki hafa þrefaldazt í verði síðan þá. Ekki græðir þó Abba á öllu. Plötur þeirra seljast grimmt í Sovétrikjunum. Rúblur hafa þau hins vegar lítið við að gera. Sagan segir að þau hafi þegið greiðslur í olíu. Hvort sem það er satt eða ekki þá er staðreyndin sú að þau stofnuðu olíusölufyrirtæki sem nefnt var Poloil og starfaði á Rotterdammarkaðnum. En þar varð mikið verðfall einmitt á þeim tíma sem fyrirtækið átti drekkhlaðið olíuflutningaskip i Rotter- damhöfn. Tapið hjá Poloil varð sjö milljónir dollara og Abba-hópurinn hafði að sjálfsögðu vit á að losa sig við það í skyndi. Þetta er heimur rika mannsins! Fasteignir, vinnuvélar og olía En PMI óx brátt svo mjög að skemmtanaiðnaðurinn einn nægði ekki til fjárfestingar. Þau fóru út í fast- eignabransann og eiga nú 60% af stærsta fyrirtæki Sviþjóðar á því sviði, Stockholms Badhus. Meðal annars seldu þau því fyrirtæki allar fasteignir sem PMI átti. Næsta skrefið var leiga á stórvirkum vinnuvélum. PMI stofnaði útibú, sem nefnt er Invest-Finans og þetta dóttur- fyrirtæki kaupir ýmiss konar risabora, Brtiamir höfOu meiri tónlistargáfur en fjérmálavrt Sumir segjaaOþvísá öfugt fariO um Abba-fíokkinn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.