Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 11.11.1945, Blaðsíða 3

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 11.11.1945, Blaðsíða 3
I 155 SUNNUDAGUll ---------------------------------- ÚR LÍFI ALÞÝÐUNNAR __________________________________! Kristján Einarsson frá Djúpalæk: Vmnudagur við húsbyggingu Eg held því fra-m að styttlng Það er seint i ágúst. Sólin skín inn um gluggann. Eg hrekk upp við snöggan srnell í vekjaraklukk- Unni. Fi-mm mínútur þar til hún hring'r. Gott að jafna sig á með- an. „Sé erfitt að lifa, er léttara að deyja“, smýgur ■ gegnum undir- vitund mína eins og viðlag þeirrar v.ssu að erfiður vinnudagur fer í hönd. Eg er að falla í mók aftur, þeg- ar klukkan gellur, ég teygi hönd- ina til hennar og styð á takkann, til að stöðva þessa hötuðu raust. Nú er að haska sig fram úr, að- eins þrjú kort þar til vinna hefst. Eg- klæði mig í skyndi. Fram á eldhúsborðinu stendur nestisskrín- an með 9 kaffinu. Eg kveiki á rafplötunni, til að hita mér vatn. Drekk það ósoðið, því rafið er dauft, en tíminn líður. Gríp kaffi- töskuna og hraða mér af stað. Út úr húsi við neðanverða Gránufélagsgötuna, kemur kona Uieð þunga ferðatösku í hendi, hún er að fara á suðurrútuna upp að E. S. A. við eigum samleið. Eg býð henni að ,,antvistast“ töskuna og við tökum tal saman. Húh er óánægð með styttingu vinnutímans úr 10 stundum í 8. Á tvo drengi 1 vegavinnu hinum hiegin við fjörðinn, þar sem hún hýr. Þeir leiðast frekar í sollinn, til reykinga og drabbs, eftir því sem frítíminn er lengri. Það væri hetra að vinna til 7. vinnudagsins sé stærsti sigur sem verkalýðurinn hefur unnið í sinni löngu og hörðu baráttu fyrir bætt- um kjörum. En þeim einstakling- um sem ekki boli að fá 2ja stunda frí á dag án þess að glata siðferði sínu, verði ekki auðbjargað með klafabinding lengri vinnu. Það sé hins vegar fullorðna fólksins að benda þeim á að nota frístundir sínar til eflingar andlegs og líkam- legs þroska. Langferðabílarnir standa í röð- um á torginu. Fólk streymir að úr öllum áttum á hraðri ferð. Eg kveð förunaut minn og held áfram til vinnustaðar, gripinn langferða- þrá. Sunnan undir verzlunarhúsi K. E. A. standa vinnufélagar mínir í hóp. Eg býð góðan dag. „Morin skáld!“ segja þeir. „Það er hótelið í dag“ tilkynnir verkstjórinn. Við göngum bvert yfir götuna, þar sem hin reisulega bygging gnæfir nær fullgerð hið ytra. í dag á að steypa þakflöt efstu hæðarinnar. í gær fluttum við steypuefnið að. Hrærivélin stend- ur á sínum stað. Yfirmaður ver'ks- ins skipar fyrir: „Sumir mati vél- ina, aðrir hjóli frá“. Hinn vold- ugi magi vélarinnar snýst lið- lega til hægri, skúffan með steypu efninu lyftist upp og steypir fæð- unni í hið gráðuga gap. Maginn veltir sér þyngslalega nokkra hringi, svo snöggt til vinstri ög hellir lagaðri hrærunni í tómar börurnar mínar. Eg keyri inn í lyftuna, sem á að flytja mig upp á þakið. Maðurinii á lyftumótornum kúplar saman og öxullinn byr'jar að vefja uþp á sig stálvírinn sem drégur uþp lyftuna með mig og börurnar. Eg stíg hærra og hærra, augnablik sé ég yf r í Vaðlaheiðina, gegnum samstæða glugga hliðarveggjanha, svo er ég á brún. Ofan á hið þctt- riðna járnnet hafa verið settir lág- ir stólar og borð lögð á milli út að fjærstu brún þaksins. Þettá er akbrautin mín í dag. Yfirsmiðurinn athugar nákvæm- lega hverja hreyfingu mína. Eg finn það fremur en sé, og fer út af sporinu. „Þú færðekki' lijóÞ börupróf fyrir þcita“j'' segir hánn og það er óspart hlegið, Þessa leið fer maður venjulega án slysa, ef hiklaust er farið. Eg steypi úr börunum við brautarendann og múrarameistarinn sléttar úr steyp- unni. Eg hjóla til baka og em- bættisbróðir minn keyrir inn á þakið. Eg óska með sjálfum mér að hann fari út af sporihu líka, svo hægt sé að gera grín að hon- um eins og mér, svo fer ég niður í lyftunni að sækja meira. Vinnan er í fullum gangi. Það er komið með Alþýðu- og Morgunblaðið á vinhustaðinn. Eitl- hver kaupir „Moggann“. „Ætlar

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.