Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 11.11.1945, Blaðsíða 5

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 11.11.1945, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 157 KONA MEÐ HATT Það gsngur stundum gömul kona eftlr þonpGgötunni og prjónar. Og hún er stundum all skrítin í hátt- ■um, þess: gamla kona. Á rúmhelgum stendur hún oft og einatt und;r suðurvegg kirki- unnar og syngur. Og þarna stend- ur hún, útskeif og skorpin af elli; oftast hræðilegy fáklædd, þótt nepja sé. En alltaf er gamli flóka- hatturinn á 1 sínum stað, keyrður niður yfir ey.ru. Hann nær lengst niður áð aftan og pemur þar við axlir henni. Hatturinn er sýnilega af karlmanni. En hvað um það, þarna kyrjar sú gamla og ger r sig söngpípu- lega til munnsins, þegar einhver gengur framhjá. Og versin, sem hún syngur, þarna undir vegg guðsmusterisins, hafa menn fyrir satt, að séú óguðleg mjög og ver- aldleg, og fullyrða jafnvel, að það leynist í þeim klám. Höfund þeirra telja raenn ýmist vera fornan ó- þverrakjaft eða kellu sjálfa. En á helgum dögum, þegar guð- hræddar og frómar manneskjur halda til kirkju og l'ofa sinn guð, situr kerling sem fastast heima í kofa sínum og prjónar. Kofinn stendur utan til í þorpinu, byggð- ur úr torfi og grjóti og er með gisið stafaþil að framan. „Já, látum það hallelúja upp í drott nnmyndina sina“, tautar hún og herðir lykkjuna. Hún prjónar fyrir fólk. Fínasta prjónles og sjó- vettlinga, allt prjónar kerling. Og hún prjónar alltaf, líka um há- messuna, nema sjóvettlinga, þá prjónar hún ekki á helgum. Henni er vel við sjómenn, þeir víkja henni líka meiru en aðrir fyrip vinnu hennar. Þess vegna vill hún ógjarna, að guð fái höggstað á þeim fyrir hennar tilverknað, því að boyg hefur korling af drottni,'þó að hún sé bessí ótukt í hans garð. Þessi óvild hennar byrjaði á meðan kar.linn hennar lifði. Þe'r áttu í sifelldum erjum drottinn og hann. Og hó áð hún svndi nú karli sínum aldrei neina sárstaka bl’ðu í hjónaband nu, þá tók hún alltaf afstöðu með honum gegn féndum hans, hvort sem það var drottinn eða einhver annar. Það var margt, sem þeim bar á milli karli hennar og almáttugum drottni. Karl vildi ólmur róa á Smásaga eftir Stefán H'i/ð Grímsson sunnudögum og gerði það, þegar á sjó gaf, en drottinn hafði, á dög- um sköpunarinnar, skipað 'valds- mannlega, að menn skyldu hvílast þann dag. Vitanlega fór karl aldrei í kirkju, en slíka fofhezlu er guði meinilla við. Einu sinni hafði hann þó drattast á jólum, en hafði þá hrotið undir ræðunn’ og slíkt er refsivert í augum drottins. Af skiljanlegum ástæðum varð guð mjög gramur karli fyrir þetta líferni hans. Og vegna síns rétt- læfs reyndi hann hvað eftir ann- að að kála honum í hans sunnu- dagsróðrum. Hefur bað almennt verið talinn vani guðs, að sökkva þeim í djúpið, sem róa til fiskjar á hans helgidegi og vanrækja messu. En karl var var um sig, sem sjálfur skollirtn og erfitt við hann að eiga. Og réttlátar til- raunir guðs, til að koma honum fyrir kattarnef, fó.ru hvað eftir annað út um þúfur. Karlinn þrælaðist til lands, þótt fárviðri væru skollin á, þó oft við illan le'k. Eitt sinn hafði hann misst fingur, er hann batt bátinn við bryggju, en slíkt var aðeins smávægilegur snoppungur. En loks kom þó að því, að karl varð að láta í minnipokann og týna líftórunni. Hann hafði róið snemma á sunnudagsmorgni í blíð- skaparveðri og með honum báðir synir beirra, strákapíslir um ferm- ngu. Þennan dag gerði afspyrnu- rok með hríðarmekki, — sannkall- að gjörningaveður. Þeir fórust allir. Alla nóttina beið hún beirra í fjörunn' í skjóli sjóhússinsj það var löng nótt og köld. Daginn eftir rak karlinn upp á ströndina ásamt spreki úr bátn- >um, en synina rak aldrei. Alltaf var hann e.'ns karlinn, dauður þrælaði hann sér til lands, fyrst hann kcmst ekki lifandi. Sjéhús'ð seldi hún fyrir útför karlsins. Það var hvort sem var einskis nvtt, fyrst allt hitt var farið til fjandans. En kofann á hún ennþá, og þar s'tur hún núna og prjónar. „O, svei, bú hefðir þó ekki þurft að dreoa saklausa drengina mína, bölvaður“, tautar hún. Hún lýkur við af prjóninum og skygnist út um gluggann. Það er far'ð að bregða birtu og nokkrir strákar leiðast eftir götunni. Þeir syngja: „Það var einu sinni kerling, og hún hét Pálína. Pálí-na-na-na — — — En kerl'ngin heitir ekki Pálína. Hún heldur áfram að prjóna og het-ðir lykkjuna. □ I Pompeje hafa götur ekki verið nema ein vagnbreidd og vagnarn- ir runnið í djúpum hjólsporum. Þar hefur því verið einstefnuakst- ur.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.