Alþýðublaðið - 16.06.1969, Page 7
Alþýðublaðið 16. júní 1969 23
Þjóðhátíðarnefndin. Frá vinstri: Jóhann Hafstein, Ásgeir flsgeirsson, Aiexander Jóhannesson (formaóur), Guðlaugur Rósinkkranz, Einar Olgeirsson,
Það er engin ný bóla að það rigni
á þjóðhátíðardaginn. Trúlega hefur
oftar verið misjafot veður þann
dag en blíðviðri. Og svo var það
á Þingvöllum 17. júni 1944, þegar
lýðveldið var stofnað. Veður hafði
þá verið gott dagana a undan, en
síðdogis þann 16. breytti til og gerði
mikið rigningarveður, sem hélzt
áfram næsta dag. En þrátt fyrii
veðrið fóru hátíðarhöldin þar eystra
fram að mestu satnkvæmt áædun
og þjóðhátíðargestir létu votviðrið
ekkert á sig bíta.
ÞJÓÐHÁTÍÐAR
NEFNDIN
Bkiki er hægt að segja að langur
undirbúningur væri að lýðveldis-
hácíðinni 1944, aðeins þrír mánuðir.
10. marz var skipuð nefnd fimm
manna til þess að undirbúa hátíðina
og tók hún þá þegar til starfa. I
nefnd þessa völdust Alexander Jó-
hannesson, prófessor, sem var for-
maður nefndarinnar; Asgeir As-
geirsson, þáverandi bankastjóri, síð-
ar forseri, tilnefndur af Alþýðu-
flokknum; Einar Olgeirsson, alþing
ismaður, tilnefndur af Sósíalista-
flokknum; Guðlaugur Rósinkranz
yfirkennari, nú þjóðleikhússtjóri,
tilnefndur af Framsóknarflokknum;
og Jóhann Hafstein lögfræðingur,
nú ráðherra, tilnefndur af Sjálfstæð-
isflokknium. Nefndin tók óðar ril
starfa, enda verkefnin mörg, eða
eins og Guðlaugur Rósinkranz orð-
aði það síðar: „Margt þurfti að
gera og helzt aJlt í einu. Það þurfti
að fá hátíðarmerki, hátíðarljóð og
lög, fána, fánastengur, tjöld, reisa
þingpall og íþróttapall á Þingvöll-
um, semja dagskrá hátíðahaldanna,
semja við ýmsa menn,, er þar skyldu
koma fram, stofna til ljóða-, laga-
ag merkjasamkeppni, skápuleggja
mannflutninga, fá gert við vegi,
gera brýr á Þingvöllum, bílatorg,
semja um veitingar o.mfl.“
MERKI
Á einum af fyrstu fundum sínum
ákvað nefndin að efna til samkeppni
um þjóðhátíðarmerki. Bárust ná-
lega 100 tillögur frá 30 teiknurum,
en ekkert þessara merkja gat nefnd
in fellt sig við. I staðinn var Stefán
Jónsson teiknari fenginn til þess að
búa til merki eftir fyrirsögn nefnd
arinnar og voru þau síðan gerð
Úr málmi í Bandaríkjunum. En svo
var tíminn naumur að þau komu
ekki himgað til lands fyrr en um
morguninn 15. júní. Einnig var
gerður veggskjöldur úr kopar ril
minningar um lýðveldisstofnunina.
og póststjórnin gaf út frímerki með
mynd Jóns Sigurðssonar í 6 verð-
gildum: 10 aura, 25 aura. 50 aura.
1 króna, 5 krónur og 10 krónur
Ekki revndist hins vegar kleift
vegna stríðsins að fá slegna sérstaka
hátíðannynt úr silfri, en tilraunir
voru gerðar til slíks.
HÁTÍÐARLJÓÐ OG
-LAG
Samkeppni fór fram um hátíðar-
ljóð, og var heitið 5 þúsund króna
verðlaunum. Mikil þátttaka varð i
þessari samkeppni og bárust ljóð
frá 104 höfundum, frá sumum tvö
eða jafovel fleiri. Dómnefnd komst
að þeirri niðurstöðu að skipta bæri
verðlaununum að jöfnu milli kvæða-
flokksins: Söngvar helgaðir Þjóð-
hátíðardegi Islands 17. júní 1944,
og reyndust þeir vera eftir skáld-
konuna Huldu (Unni Benedikts-
dóttur Bjarklind) og kvæðisins Is-
lepdingaljóð 17. júni 1944 eftir
fóhannes úr Kötlum. I framhaldi
þess fór síðan fram samkeppni um
lög við verðlaunaljóðin og hlaut
verðlaunin Emil Thoroddsen tón-
skáld fyrir lag við þriðja kvæðið i
flokki Huldu: Hver á sér fegra
föðurland?, en því til viðbótar
hlutu viðurkenningu lag Árna
Björnssonar við fjórða kvæðið i
flokki Huldu: Syng frjálsa land, og
lag Þórarins Guðnasonar við kvæði
Jóhannesar úr Kötlum: Land míns
föður, landið mitt.
BÍLAR „ÞJÓÐNÝTTIR1
Mikið verk var fólgið í því að
skipuleggia fólksflutninga til Þing-
valla á hátíðina. Við athugun kom
í ljós að í Reykjavík væri bifreiða
kostur með rúmlega 4 þúsund sæt-
um. og áætlaði nefndin að unnt yrði
að flytja upi I5,þúsund manns til
Þingvalla síðari hluta dags þann 16.
og að rnorgni 17 En til þess að
bílakosturinn nýttist sem bezt og
koma í veg fvrir að einstakir menn
hefðu bjfreiðir aðgerðarlausar á
leigu, var ríMsstjórninni veitt heim-
. júní 1944
ild til þess að taka aJlar langferða-
og leigubifreiðar leigunámi þessa
daga og fóru allir flutningar austur
og austan siðan fram á vegum
nefndarinnar. Ti! að auðvelda um-
ferðina var ríkisstjórnin síðan feng-
in til að láta gera við gamla Þing-
vallaveginn um Mosfellsheiði og
skyldi sá vegur vera farinn i bæ-
inn frá Þingvöllum. Þegar til kom
hamlaði votviðrið hátíðadagana
þvi þó að þetta yrði framkvæman-
legt, því að vegurinn varð með
öllu ófær i bleytunni og þurfti að
gripa til annarra ráða á siðustu
stundu. Voru þær bifreiðar, sem
fengið höfðu að fara niður á sjálfa
vellina látnar fara Hellisheiði f
bæinn, en hinar, sem ekki höfðu
farið lengra en á Almannagjárbarm
fóru Mosfellsdalsleiðina HacSar leiðir.
SAMÞYKKTIN 16. JÚNÍ
16. júni 1944 hélt Alþingi fund
i Reykjavík, Var sá fundur hátið
legur, borðfáni við sæti allra þing
manna og fjöldi gesta var viðstadd-
ur, þar á meðal fulltrúar erlendra
ríkja. Á þessum fundi voru sam-
bvkktar rvær þingsálýktunartillögur,
önnur þess efnis að því var lýst yfir,
nð sambandslagasamninigurinn frá
191R væri fallinn úr gildi, hin sagði
að stjórnarskrá lýðveldisins gengi
f gildi, þegar forseti sameinaðs þings
lýsti því yfir á þingfundi næsta dag,
laugardaginn 17. júná.
MORGUNNINN
Þjóðhátíðardaginn sjálfan hófust
hatfðahöldin Jd. 9 árdegis á Austur-
velli. Alþingismenn, ráðherrar, rfk-
isstjóri, fulltrúar erlendra ríkja og
fleiri gestir gengu úr alþingisihús-
inu að styttu Jóns Sigurðssonar og
lagði Gísli Sveinsson forseti Sam-
einaðs þings blómsveig að styttunni
eftir að hafa flutt þar stutta ræðu.
Að þessari athöfn lokinni fóru al-
þingismenn og aðrir, sem þarna
höfðu verið, austur til Þingvalla,
en allan morguninn og síðari hluta
dags daginn áður hafði verið stöð-
ugur straumur almennings austur.
Höfðu margir gist í tjöldum þar
eystra og sumir lent á hrakninguiu
vegna rigningarinnar um nóttina,
en inn í sum tjöldin flæddi og urðu
eigendur þeirra að flytja þau. Urðu
sumir svo illa úti af þessum sökum,
að þeir neyddust ril að fara tíl
Reykjavíkur strax um morguninn.
GENGIÐ Á LÖGBERG
Þingmenn og allmargir aðrir gest-
ir snæddu hádegisverð í Valhöll,
en klukkan 1 stundvísJega var gefið
merki og gengu þá þingmenn, ríkis-
stjóri, biskup og ráðherrar beint upp
af Valhöll og siðan niður f Hesta-
gjá. Þar var fylkt liði og geikk hóp-
urinn þaðan á Lögberg undir fs-
lenzkum fána, sem Þorsteinn Ein-
arsson íþróttafulltrúi bar f broddi
0