Alþýðublaðið - 15.06.1969, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.06.1969, Blaðsíða 7
SÍÐASTI 'ISLEND- INGURINN Á GflÆN- LANDI Kasapis. Kasapi er vinur minn. ViS mun- um einskis í hefna.“ Síðla næsta sumars varð enn sá at- burður, að einn af mönnum Kasapis varð einum manna íslendingsins að bana, án þess að Kasapi ætti þar hlut að. En þegar Ungatoq heyrði þetta, varð honum að orði: „Menn Kasapis murka niður mína menn; nú er mál að hefna.“ Tíminn leið, og reiði Ungatoqs varð að hatri. Dag nokkurn hóaði hsnn saman mönn- um sínum og mælti: „Nóg er nú beðið. opn vor eru vígþyrst og afl vort ærið. Róum því til eyjar Kasapis." Þegar þeir Ungatoq komu til eyjar- innar var Kasapi farinn á veiðar meður! mönnum sínum öllum, en konur og börn ein heima. Dvöl íslendinganna á eynni stóð ekki lengi. Engu lífi var þyrmt. Að kvöldi kom Kasapi heim. Hann og i menn hans færðu mikla björg í bú, en eng-1 inn kom til strandar til að fagna þeim, j eins og vant var. Þá hrópaði Kasapi: „Hvað dvelur konu rnína?" En ekkert svar barst. Kasapi hrópaði aftur: „Kona! Kona! Þú verður að taka á móti rostungunum r.iín- um. Ég er með tvo rostunga." En þögn dauðans ríkti á litlu eynni. Þá hlupu menn Kasapis með foringja sinn í fararbroddi heim svo hratt sem fætur toguðu. Kasapi hrópaði sem óður væri: „Kona! Kona!" Við kofadyrnar fann Kasapi bæði konu sína og barn; þau höfðu verið hálshöggvin. Og frá öllum hinum kofunum var hróp- að: „Konan mín! Börnin mínl" Sorg Kasapis og manna hans var sár. Og þar kom, að hann sagði við menn sína: „íslendingarnir hafa drepið konur okkar og börn. Nú drepum við þá.“ Næstu daga bjuggu þeir Kasapi sig út með vopn, í vorþeynum. En íslendingarnir voru mannmargir og héldu vörð dag sem nátt. Kasapi var örðugt að sækja svo til dalsins ,að ekki sæist til ferða hans. Fyrsta sinni tekur Kasapi sér nú ferð á hendur til galdramanns í næstu byggð og leitar ráða hans. Þeir sitja ráðsíefnu dögum saman, og þegar Kasapi kemur heim, segir hann við menn sína: „Við verðum að smíða okkur stóra báta, sem mest líkjast ísjökum, og þeir verða að geta tekið okkur alla. Og við þurfum að taka með okkur þurran mosa, tré og eld.“ Enn liðu nokkrir dagar, en loks urðu bátarnir sjófærir. Nú var komið vor og mikið sólskin. En Kasapi sagði aðeins: „Við skulum bíða byrjar og þoku." Svo kom byrinn — og þokan. Farkost- unum var hrundið úr vör, og þeir Kasapi fengu sér sæti. Ungatoq hefur lengi vænzt komu Kas- pis. Dag hvern hefur hann gengið til strandar og horft út á fjöröinn. Og þegar Lyrinn gerði og þokuna, sá hann hvíta bát- ana koma skríðandi inn fjörðinrr. „Þarria koma þeir Kasapi!’’ hrópaði hann til manna sinna. En íslendingarnir hristu aðeins höfuð- in. „Komum heim," segir hann þá og þeir fylgja honum. En undir kvöld verður hann aftur órólegur og gengur út. Og att ,r segir hanrn „Þetta er Kasapi. Hvetj- un: vop,' vor!" Ei. aftur hrista menn hans höfuðin og láta sár ekki segjast. „Nei," segja þeir, „Þetta er ekkí Kasapi. Þetta eru bara ís- jakar á hreyfingu." Þá setur efa að Ungatoq, og hann gengur inn og tekur aftur gíeði sína. En er myrkt er orðið, hlaupa Kasapi og menn hans á land. Þeir skríða hægt og hljóðlega upp í hlíðarnar og safna hrísi og mosa í stóra bingi. En Kasapi læðist sjálfur heim að húsi Urrgatoqs og skríður alveg að einum glugganum til að forvitnast um, hvað um er að vera inni fyrir. Hann heyrir hlátra og/sköll. Og hann sér, að íslendingarrrir hafa hengt kúlu í langa bjarnargörn, sem hangir í loftinu, og þessari kúlu þeyta þeir fram og aftur til að hæfa leirkrukku, sem komið hefur verið fyrir á gólfinu. Ungatoq skemmtir sér sýrrilega hið bezta. Kasapi stendur um stund og horfir á leikinn. Það liggur við, að hann gleymi er- indi sínu. Allt er svo líkt því, sem var, þegar hann sjálfur var í heimsókn hjá vini sínum. En skyndilega verður honum Ijóst, að kúlan er konuhöfuð, höfuð konu hans! Cg hann heyrir Ungatoq hrópa: „Sláið! Slá- ið! Ég á hausinn!" Kasapi hleypur nú til manna sinna og skipar fyrir: „Brennið fyrst vopnabúrið!" segir hann — og menrr hans hlýðnast þegar í stað. íslendingarnir halda áfram iðju sinni og verða einskis varir. Það er ekki fyrr en logunum lýstur inn á þá, að þeim verð- ur Ijóst, hver hætta er á ferðum. Þá forða þeir sér sem fætur toga. En menn Kasapis biðu hinna vopnlausu flóttamanna. Þess var skammt að bíða, að freðin grundin yrði roðin blóði. „Hvar er Ungatoq?" hrópaði Kasapi. En enginn hafði séð hann. Hann var heldur ekki meðal hirrna látnu. Og allt í einu kom ungur veiðimaður hlaupandi og hrópaði móður og másandi: „Ungatoq er að leggja á fjöllin!" Framhald á bls. 12 AlþýBublaÖið — Heigarblað 7

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.