Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Side 9

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Side 9
9 og gómsætast bergjandi vín, svo örir, svo léttir í lundu vér litum þá allir til þín. Þótt veizlukvæði hafi ef til vill takmarkað heimildagildi, þá er brugðið þarna upp mynd, sem vera mun nærri sanni. Vér sjáum þar fyrir oss mælskumann, sem vekur jafnt hrifningu og fögnuð, og allir viðstaddir heillast af og líta upp til. En svo var Stefán ætíð á mannfundum til hinnstu stundar. I Höfn starfaði þá einnig félagið Velvakandi og bræður hans. Lét það ýmis þjóðmál til sín taka. Stefán gekk snemma í það og telur Finnur Jónsson hann meðal helztu manna þess. Af dagbók Stefáns 1887 sést, að félagið hefur þá látið stjórnar- skrárdeiluna mjög til sín taka. Þá situr ritstjóri vinstri manna í Danmörku, Korsgárd, fund með þeim félögum og heitir full- tingi vinstri manna í þeim málum. Þeir Velvakandamenn skrifa um íslenzk mál í dönsk vinstri blöð. Einnig virðist, sem þeir hafi skipt íslenzku blöðunum milli sín og skrifað í þau fréttir. Mun mega rekja fréttaritun Stefáns til Norðurljóssins og Þjóðviljans síðustu Hafnarár lians til þess. Þá var Stefán bókavörður Bókmenntafélagsins frá því í marz 1886 til heimfarar sinnar og varð’i til þess miklum tíma. Öll Hafnarár sín bjó Stefán á Garði. Voru þeir dr. Valtýr sambýlismenn nema síðustu mánuði Stefáns, þegar Valtýr var fluttur út. Bjó hann þá með Adolf S. Jensen, síðar prófessor í dýrafræði. Þeir Stefán og Valtýr voru vinir frá barnæsku og hélzt svo meðan báðir lifðu. í janúar 1887 var Valtýr að undir- bria meistaraprófsritgerð sína. Þá teiknaði Stefán fyrir hann myndir af íslenzkum bæjum og hreinskrifaði fyrir hann til- vitnanir og varði til þess miklum tíma. Munu þær myndir síðan vera prentaðar í doktorsritgerð Valtýs. Það var þannig margt, sem dreifði kröftum og huga hins unsra námsmanns. En engu að síður vannst honum tími til að sinna námi sínu af kostgæfni. Heimspekiprófi lauk hann 1885 með ágætiseinkunn, og náttúrufræðinámið sóttist vel. Af dag- o 7 o o bók hans frá vetrinum 1887 sést, að hann hefur lesið þá af of- urkappi einkum þó dýrafræði og jarðfræði. Er hann þá í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.