Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Blaðsíða 9
9
og gómsætast bergjandi vín,
svo örir, svo léttir í lundu
vér litum þá allir til þín.
Þótt veizlukvæði hafi ef til vill takmarkað heimildagildi, þá
er brugðið þarna upp mynd, sem vera mun nærri sanni. Vér
sjáum þar fyrir oss mælskumann, sem vekur jafnt hrifningu og
fögnuð, og allir viðstaddir heillast af og líta upp til. En svo
var Stefán ætíð á mannfundum til hinnstu stundar.
I Höfn starfaði þá einnig félagið Velvakandi og bræður
hans. Lét það ýmis þjóðmál til sín taka. Stefán gekk snemma
í það og telur Finnur Jónsson hann meðal helztu manna þess.
Af dagbók Stefáns 1887 sést, að félagið hefur þá látið stjórnar-
skrárdeiluna mjög til sín taka. Þá situr ritstjóri vinstri manna
í Danmörku, Korsgárd, fund með þeim félögum og heitir full-
tingi vinstri manna í þeim málum. Þeir Velvakandamenn
skrifa um íslenzk mál í dönsk vinstri blöð. Einnig virðist, sem
þeir hafi skipt íslenzku blöðunum milli sín og skrifað í þau
fréttir. Mun mega rekja fréttaritun Stefáns til Norðurljóssins
og Þjóðviljans síðustu Hafnarár lians til þess.
Þá var Stefán bókavörður Bókmenntafélagsins frá því í marz
1886 til heimfarar sinnar og varð’i til þess miklum tíma.
Öll Hafnarár sín bjó Stefán á Garði. Voru þeir dr. Valtýr
sambýlismenn nema síðustu mánuði Stefáns, þegar Valtýr var
fluttur út. Bjó hann þá með Adolf S. Jensen, síðar prófessor í
dýrafræði. Þeir Stefán og Valtýr voru vinir frá barnæsku og
hélzt svo meðan báðir lifðu. í janúar 1887 var Valtýr að undir-
bria meistaraprófsritgerð sína. Þá teiknaði Stefán fyrir hann
myndir af íslenzkum bæjum og hreinskrifaði fyrir hann til-
vitnanir og varði til þess miklum tíma. Munu þær myndir
síðan vera prentaðar í doktorsritgerð Valtýs.
Það var þannig margt, sem dreifði kröftum og huga hins
unsra námsmanns. En engu að síður vannst honum tími til að
sinna námi sínu af kostgæfni. Heimspekiprófi lauk hann 1885
með ágætiseinkunn, og náttúrufræðinámið sóttist vel. Af dag-
o 7 o o
bók hans frá vetrinum 1887 sést, að hann hefur lesið þá af of-
urkappi einkum þó dýrafræði og jarðfræði. Er hann þá í