Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Blaðsíða 14

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Blaðsíða 14
14 17 ár, og var þá langlægst launaður af öllum embættismönn- um á landinu, sem konunglega veitingu hafa fyrir embætti sínu.“* Fara má nærri um, að Stefáni hafi ekki verið sársaukalaust, að hverfa frá námi í Kaupmannahöfn. Hann var kominn vel áleiðis með skemmtilegt vísindanám, sem átti hug hans allan og átti sér þar vísa von frama. I Höfn var öll þau hjálpargögn að fá, sem vísindamanni í hans greinum voru nauðsynleg. Vafalaust hefur hann notið þess að vera samvistum við náms- og starfsbræður sína þar, og ekki sízt að njóta handleiðslu síns kæra læriföður Warmings. Þá má og fara nærri um að vel hef- ur heimsmaðurinn Stefán kunnað glaðværð Kaupmannahafn- ar, og ekki síður hefur slíkur menningarmaður sem hann var notið þess að dveljast í menningu stórborgarinnar meðal þess, sem hún hafði að bjóða í listum og menntum. En rök má þó finna til þessarar ráðabreytni. Stefán var maður félítill. Hann var þegar hér var komið sögu heitbundinn og mun hafa notið nokkurs styrks frá tengdafólki sínu. Hann mun hafa fýst þess að geta sem fyrst orðið sjálfstæður efnalega, en verið það jafn- framt ljóst, að litlir yrðu afkomumöguleikar hans, ef hann sleppti því tækifæri, sem þarna bauðst. Þá má og minnast þess, að íslenzkt sveitalíf átti í honum sterk ítök, og hann hefur séð, að vistin á Möðruvöllum mundi gefa honum færi á að stunda búskap. Og ekki er fjarri sanni að ætla, að það gæti hafa vakað fyrir honum, að með því að gerast þá þegar kenn- ari á Möðruvöllum, fengi hann tækifæri til að vinna að við- reisn menntastofnunar, sem var að hrynja í rústir, og helga krafta sína því hjartans máli, að efla alþýðumenntun íslend- inga, sem hann sá, hyersu mjög var ábótavant. Gæti það ekki einnig hafa ýtt undir hann, að hann hafi fundið tómleikann í skrafi félaga sinna í Höfn, þegar þeir voru að endurreisa þjóðina í glaummiklum skálaræðum úti á Hafnarslóð? Kenn- ari hans Warming, hvatti hann til þessarar ráðabreytni, en hann hafði margsinnis lýst því yfir, að hann teldi það sitt hlut- verk öðru fremur að ala upp kennara, sem gætu opnað hugi Alþingistíðindi 1909. B. T, 874.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.