Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Page 23

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Page 23
23 minnast þess, að í skólastjórnartíð Stefáns gerðust aldrei neinir árekstrar í líkingu við það, sem var á Möðruvöllum. Eftirfarandi kafli úr dagbók Stefáns 14. marz 1891, lýsir mjög vel viðhorfum hans til Hjaltalíns og afskiptum af skól- anum og stjórn hans: „Þegar ég kom liér að skólanum voru vinsældir og álit Hjaltalíns á förum út um landið, og bar margt til, og sumt alveg óverðskuldað. Þetta var ásamt hinu bága árferði aðalorsök þess, að menn voru að hætta að sækja skólann. Eg sá því að eitt helzta ráðið, til að auka vinsældir skólans var að auka álit Hjaltalíns, enda sparaði ég ekkert, hvorki í viðræðum við menn né í prívatbréfum og blaðagrein- um, er eytt gæti skugga þeim, sem á hann var fallinn, bæði sem mann og skólastjóra og pólitíska stærð. Sérstaklega reyndi ég til að sýna mönnum fram á, að pólitík og pedagógík væri tvennt ólíkt, og að maðurinn gæti verið góður skólastjóri og kennari, þótt hans pólitísku skoðanir væru ekki sem heppi- legastar. Þótt ég máske hafi litlu áorkað í þessu efni, þá er ég sannfærður um, að ég hef nokkuð á unnið, og orð mín hafa átt nokkurn þátt í vaxandi áliti og aðsókn að skólanum.“ „Skólinn skal upp“ skrifaði hinn ungi kennari í upphafi starfs síns. Það heit hafði hann efnt áður en áratugur væri liðinn. Samvinnan við skólastjórann hélzt góð þótt stundum hlypu á snurður, en báðir voru þeir menn, sem kunnu að slétta úr þeim, og þeirri góðu samvinnu má þakka hvílíkur árangur náðist. Skólamál og skólasaga. Margt ræða þeir sín á milli kennararnir á Möðruvöllum fyrsta vetur Stefáns þar. Hann hefur ekki verið þar lengi, þeg- ar hann brýtur upp á því við Hjaltalín, að þeir hafi forgöngu um að stofnað verði kennarafélag fyrir landið og almennur kennarafundur haldinn í Reykjavík. Hjaltalín tekur þeirri hugmynd vel, og hann vill að þeir semji frumvarp til almennra skólalaga. Má þar ef til vill rekja kveikina, að hinum síðari tillögum þeirra í þeim efnum. Kennarafélagsstofnuninni er haldið vakandi. Stefán ræðir hana við þá Ögmund Sigurðs- son og Þorvald Thoroddsen sumarið 1888, og veturinn á eftir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.