Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Side 87
87
Sumarið eftir 1896 fór hann að nýju um útsveitir við Eyja-
fjörð, Svarfaðardal, Ólafsfjörð, Siglufjörð og Fljót. En eftir
það liefi ég ekki orðið var við, að hann færi nokkra ferð lengri
en það sem fara mátti á einum eða tveimur dögum frá Möðru-
völlum. En eins og fyrr notaði hann livert tækifæri, sem heim-
ilisannir og heilsa leyfðu honum, til að kanna gróður í ná-
grenni heimilis síns. Þá var og nú svo komið, að ýmsir læri-
sveinar hans voru honum hjálplegir við grasasöfnun. Hann
hafði gefið þeim í hendur greiningarlykil að ýmsum helztu
tegundum landsins, og útvegaði þeim nauðsynlegustu tæki,
plöntupappír og stækkunargler, svo að þeir mættu safna. Varð
honum þetta býsna drjúgt til könnunar á útbreiðslu tegunda
auk þess, sem það skapaði áhuga þeirra, sem við þessa hluti
fengust.
Yrnsar orsakir lágu til þess, að Stefán hlaut að hætta lang-
ferðum um þessar mundir. Stöðugt hlóðust á hann rneiri störf
að héraðsmálum. Búreksturinn krafðist síns réttar, og heilsu-
brestur gerði honum ferðalög erfið og liættuleg. Hann hafði,
er hér var komið, farið um mikinn hluta landsins, að því er
hann sjálfur segir var einungis Snæfellsnes og nágrenni, ásamt
Austfjörðum ókannað af byggðum landsins. En nii var Helgi
Jónsson tekinn til við gróðurrannsóknir á Austfjörðum. Það
mátti því kalla, að fenginn væri sæmilega traustur þekkingar-
grundvöllur undir útbreiðslu tegunda og það, hversu gróðri
væri háttað í einstökum landshlutum. Þegar svo var komið
hafði Stefán nú tekið til við að semja Flóru sína, en það verk
tók mikinn tíma, og hann hlaut að einbeita sér að því. Einn-
ig tekur hann um þessar mundir að snúa sér að fóðurjurta-
rannsóknum, en þær kröfðust ekki verulegra ferðalaga að
minnsta kosti á fyrsta stigi málsins. Og síðast en ekki sízt,
ferðir hans höfðu kostað mikið fé, fyrir utan þá vinnu sem
hann lagði í þær, og hafði hann komizt í nokkrar skuldir
þeirra vegna. Skal nú athugað lítið eitt um þá hlið. Fyrstu
árin naut Stefán einskis opinbers styrks til rannsókna sinna.
Haustið 1889 skrifar hann Warming, að hann hafi orðið að
hætta við ferð á Snæfellsnes, af fjárhagsástæðum, því að mað-
ur sá, sem styrkt hafi sig verulega síðustu árin hafi dáið þá