Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1963, Síða 105
105
lands. En fyrir þessa aðstoð galt hann ríkulega með hinum
miklu söfnum, er hann sendi Grasasafninu til fullrar eignai.
Sumarið 1897 kom Ólafur Davíðsson heim að Hofi eftir
langa útivist í Kaupmannahöfn. Enda þótt Ólafur hefði ekk-
ert fengizt við náttúrufræði árum saman og nokkrar greinir
orðið með honum og Stefáni eins og áður er á drepið, voru
nú allar væringar gleymdar, og með þeim tókst hin ynnileg-
asta vinátta og samstarf. Og Ólafur tók nú að rifja upp sín
fornu fræði og hóf plöntusöfnun af þeirr.i orku, sem honum
var gefin umfram flesta menn. Safnaði hann bæði æðri plönt-
unr og lægri. Lítill vafi er á, að þeir hafa margt rætt um ís-
lenzka grasafræði, og Ólafur gerðist nú eins konar varakenn-
ari Möðruvallaskóla, bæði fyrir Stefán í veikindaforföllum
hans svo og annarra kennara, eftir því sem þörfin krafði hverju
sinni.
í formála fyrir Flóru getur Stefán þess, að Ólafur hafi hjálp-
að honum við hreinskrift handrits og samningu registra, auk
þess sem hann hafi bent sér á mýmargt, sem betur mátti fara.
Er það eins og gengur, er menn lesa handrit annarra manna,
að betur sjá augu en auga. Hins vegar virðast ýmsir hafa feng-
ið þá trú, að Ólafur hafi átt einhvern meiri hlut en þenna í
samningu Flóru. Meira að segja gefur Eyþór Einarsson það í
skyn í grein, er hann ritar urn aldarafmæli Olafs í Náttúru-
fræðinginn 1962, bls. 101. Dregur hann það meðal annars af
flóruhandriti skrifuðu af Ólafi, sem er í eigu Náttúrugripa-
safnsins.
Óhætt er að fullyrða, að allt er það úr lausu lofti gripið og
Ólafur á engan meiri lilut í Flóru en honum er gefinn í for-
málanum. Svo vel vill til, að bréf Ólafs til Stefáns, sem skrif-
uð eru veturna 1898 og 1899, bæði meðan Stefán lá á sjúkra-
húsi á Akureyri og síðan meðan liann dvaldist í Kaupmanna-
höfn taka burt allan vafa í þessum efnum. Af bréfum þessum
er ljóst, að Ólafur hefur hjálpað Stefáni við að líma upp
þurrkaðar plöntur og raða þeim, hefur hann einnig sent hon-
um til Hafnar, það sem hann þurfti að fá úr söfnum sínum
heima en hafði ekki tekið með sér. Einnig hefur Ólafur unn-
ið að því að taka saman skrá yfir fundarstaði Stefáns eftir söfn-