Árbók Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1925, Blaðsíða 21
23
TIL ATHUGUNAR.
1. Rekstursreikningur K. Þ. hefir áður verið nefndur
Kostnaðarreikningur K. Þ.
2. Það, sem hlýtur að vekja mesta athygli við samanburð
Rekstursreikninganna frá þessum 4 árum, er að í árslok 1925
er tekjuafgangur 16 M> þús. kr. en í árslok 1928 aðeins 2/>
þús. kr. Á þessu tímabili hafa því eyðst 14 þús. kr. umfram
árlegar tekjur.
En þá má á það líta, að árið 1926 lagði K. Þ. 6 þús. kr. í
bókhlöðubyggingu í Húsavík og einnig 2% þús. kr. til stofn-
unar Minningarsjóðs Sigurðar Jónssonar frá Ystafelli. Enn-
fremur að árið 1927 voru afskrifaðar skuldir, sem innleggs-
vörukaupendur frá fyrri árum höfðu komist í þrot með að
borga (sjá rkn. 1927, tölul. 12 gjaldam.).
Tvent hið fyrnefnda eru aukaútgjöld, sem að vísu enginn
mun sjá eftir. En hið síðastnefnda tilheyrir í eðli sínu fyrri
árum.
3. Rétt er fyrir þá menn, sem álíta að hinn svonefndi
starfskostnaður í K. Þ. fari óeðlilega vaxandi árlega, að bera
saman tölul. 2.-6. gjaldamegin, hvern fyrir sig og saman-
lagða, í þessi 4 ár.
4. Félagið hefir orðið fyrir rentuhalla öll þessi ár eins og
Rekstursreikningarnir bera með sér. Á því geta félagsmenn
séð, að félagið hefir ekki reiknað þeim of háar gjaldrentur.
Upptakanna að hinum háu rentum er að leita út fyrir fé-
lagið.
K. K.