Árbók Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1925, Blaðsíða 85
87
Þeir eru margir, sem aldrei venja sig á þessa nautn, og
þeir sakna hennar aldrei; en margir sem venja sig á hana
taka að lokum þunga yðrun fyrir léttúð sína og apaskap, og
sá sem þetta ritar er einn þeirra manna. — Engin mun held-
ur geta séð, að þeim, sem aldrei hafa vanið sig á tóbak, líði
að nokkru leyti ver en tóbaksmönnunum, eða að þeir séu
nokkursstaðar minna metnir; þvert á móti.
Þess er nú — því miður — ekki að vænta, að tóbaksnautn-
inni verði með öllu útrýmt hér hjá oss, meðan hún er eins
sterkur og voldugur »móður« um heim allan, sem hún er nú
á dögum. — En hins ætti að mega vænta, að þegar hún er
orðin svona gífurlegt fjárhágsatriði sökum hins afskapiega
verðs á tóbakinu, sem á einum mannsaldri hefir nær því
tvítugfaldast, þá gæti þó tóbaksmennirnir hófs, að minsta-
kosti svo mikils hófs, að heilsunni sé ekki hætta báin ofan á
alt fjártjónið. — Og þess ætti líka að meg'a vænta, að roskn-
ir tóbaksmenn litu með svo mikilli alvöru á þetta stóra fjár-
hags og heilsu atriði, að þeir vöruðu ungmennin við ið gefa
sig á vald þessarar dýrkeyptu nautnar; að þeir hefðu siðferð-
islegt þrek til þess, að játa sína eigin flónsku, og stuðla með
því að útrýmingu tóbaksnautnarinnar smám saman, eftir því
se.m þeim sjálfum fækkar við burtförina frá þessu tóbaks-
sósaða jarðlífi, því fremur, sem tóbakseitruðum sjúklingum
fjölgar árlega á spítölum, mest af sígarettueitri.
Ef tóbaksmennirnir í þessum 9 hreppum vildu nú leggja
þær hömlur á tóbaksnautn sína, að þeir minkuðu hana um
helming — og það ætti hver maður hæglega að geta — þá
spöruðu þeir með því móti 25 þúsund krónur á ári!! Það eru
2777 á hvern af hreppunum, eða rífar 8 krónur á hvert
mannsbarn í þeim.
Því miður vantar skýrslur um hve margir tóbaksmenn eru
á þessu svæði, svo hægt væri að sýna hve stó rupphæð kemur
á hvern þeirra að meðaltali af tóbaksskattinum. —
Ef engir nýir tóbaksneytendur bættust við, yrði tóbakið og
tóbaksskatturinn horfið úr þessum sveitum að 50—60 árum
liðnum, og hér hefir verið sýnt hverja fjárhagslega þýðingu
það hefði«. —