Vísbending - 20.06.1984, Síða 1
VÍSBENDING & 5
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL vs
24.2 20. JÚNÍ 1984
Erlendar skuldir__________________________________________
Vextir oft hærri en hæstu lögleyfðir vextir innanlands
Háar vaxtagreiðslur
Á undanförnum árum hafa raun-
vextir á erlendum lánum oft verið miklu
hærri en hæstu vextir sem þekkjast á
innlendum markaði. Raunvextir af
erlendum skuldum eru hér reiknaðir
sem hækkun höfuðstóls vegna áfall-
inna vaxta og gengisbóta umfram
hækkun lánskjaravísitölu á sama tíma.
í töflum og á línuritum á bls. 2-3 og bls.
6-7 eru sýnd yfirlit yfir hækkanir á
erlendum lánum í sjö mismunandi
gjaldmiðlum umfram hækkanir á láns-
kjaravísitölu. Þessar myntir eru
Bandaríkjadollari, svissneskur franki,
sterlingspund, franskur franki, þýsk
mörk, norsk króna og yen. Reikning-
arnir ná til áranna frá 1977 til 1983. Til
að gefa hugmynd um raunvexti af er-
lendum lánum í heild eru meðalvextir
af lánum í þessum sjö myntum sýndir
neðst á bls. 6-7 og er þar miðað við
samsetningu lána eftir myntum í árslok
1982. í töflunum kemur fram að raun-
vextir af erlendum lánum hafa oft verið
afar háir, einkum á árunum 1980 til
1983. Helsta ástæðan eru háir vextir í
Bandaríkjunum og mikil hækkun á
gengi dollarans á þessum árum gagn-
vart flestum öðrum gjaldmiðlum.
Hæstu vextir umfram lánskjaravísitölu
á einu ári eru liðlega 40% á dollaralán-
um á árinu 1982, en á tímabilinu des-
ember 1981 til desember 1982 hækk-
aði gengi dollarans úr kr. 8,21 í kr.
16,47 eða um liðlega 100%.
Neikvæðir raunvextir innan-
lands
Raunvextir á innlendum bankalán-
um hafa löngum verið neikvæðir, eink-
um síðan 1972. í grein Tórs Einars-
sonar, „Opinber lánsþörf, vextir og
verðbólga" í Vísbendingu 11. apríl s.l.
kemur fram aö áætlaöir raunvextir á
handbæru fé voru að meðaltali -20%
á árunum 1973 til 1978 og á árunum
1979 til 1983 voru raunvextir á hand-
bæru fé -16,5%. Meðalvextir á erlend-
um lánum umfram lánskjaravísitölu á
síðarnefnda tímabilinu voru 9,3% sé
miðað við meðaltal myntanna sjö (sjá
töflu neðst á bls. 7). Þótt þessar tölur
séu ekki fyllilega sambærilegar gefa
þær engu að síður hugmynd um hinn
gífurlega vaxtamun sem fram til þessa
hefur verið á milli innlends sparnaðar
og erlendra skulda. Á fimm ára tímabili
lækkar 100 þúsund króna lán með
-16,5% raunvöxtum í kr. 40.591, en
100 þúsund króna lán sem ber 9,3%
raunvexti hækkar í kr. 155.991.
Innlendur peningamarkaður-
erlendar skuldir
í árslok 1983 námu löng erlend lán
alls 36,3 milljörðum króna en peninga-
magn M3 (handbært fé) var 19,9 millj-
arðar. Hlutfall erlendra skulda af þjóð-
arframleiðslu í árslok 1983 var 60,4%
(m.v. meðalgengi ársins) en peninga-
magn og sparifé (M3) var að meðaltali
29,3% af VÞF á árinu. Á árinu 1970
voru erlendar skuldir um 27% af þjóð-
arframleiðslu en peningamagn og
sparifé (M3) var að meðaltali 38,2% af
VÞF á því ári. Peningamagn hefur því
skroppið saman um 8,9% af þjóðar-
framleiðslu frá 1970 til 1983 og nemur
það hlutfall um 4,7 milljörðum króna
m.v. þjóðarframleiðslu 1983. Jafnframt
Lánstími
1977- 1979
1978- 1980
1979- 1981
1980- 1982
1981- 1983
Efni:
Erlendarskuldir 1
Dæmi um vísitölu láns-
kostnaðar 8
Töflur:
Gengi helstu gjaldmiðla 8
Gengi íslensku krónunnar 8
hafa erlendar skuldir hækkað á þess-
um árum um nálægt þriðjung af þjóð-
arframleiðslu.
Frjálsir vextir
Það hlýtur að verða markmið stjórn-
valda á næstu árum að auka sparnað í
landinu og lækka þannig erlendar
skuldir. Verulegir fjármunir streyma
nú úr landinu sem vaxtagreiðslur til út-
landa en þeir gætu runnið í vasa ís-
lenskra sparifjáreigenda ef vextir væru
hækkaðir til að laða fram aukinn
sparnað. Aukinn sparnaður dregur úr
þenslu heima fyrir og minnkar innflutn-
Dollari Þýskmörk Meðaltal sjömynta'1
-2,03 5,84 0,41
7,22 4,97 6,61
10,36 -1,87 6,14
27,21 10,11 20,24
20,92 4,63 14,07
11 Bandaríkjadollara, svissneskra franka, punda, franskra franka, þýskra marka, norskra
króna og yena, en í árslok 1982 voru 91,51% erlendra skulda í þessum gjaldmiölum.
Reiknað er með bestukjaravöxtum („Prime Rate") með 1 % álagi á hverjum tfma í hverju
landi.
Erlendarskuldir
Dæmi um vexti umfram lánskjaravísitölu á árunum 1977-1983, % á ári.
Myntir