Vísbending - 20.06.1984, Blaðsíða 6
VÍSBENDING
6
tengdum gjaldmiðlum) eru hagkvæm
séu lán í öðrum myntum óhagkvæm
(t.d. dollaralán) og svo öfugt. Þetta er
þó engan veginn einhlítt. Raunvextir í
Bandaríkjunum og Bretlandi hafa
löngum verið hærri en í löndum þar
sem verðbreytingar hafa verið miklu
minni og stöðugar, t.d. í Þýskalandi og
Sviss. Verðbólgan í fyrrnefndu rikjun-
um hefur bæði verið hærri og óstöðugri
en í þeim síðarnefndu og því ekki ólík-
legt að á markaðinum í fyrrnefndu
löndunum myndist vaxtaálag sem
trygging gegn lægri ávöxtun ef verð-
bólgan verður meiri en reiknað er með
á hverjum tíma. Fleiri skýringar eru þo
á þessum vaxtamun, t.d. mismunandi
skattmeðferð vaxtagjalda, mismikil
framleiðni, o.s.frv. Nánar verður fjallað
um mismunandi kostnað vegna er-
lendra lána eftir því í hvaða mynt þau
eru tekin í Vísbendingu á næstunni.
Opinberar skuldir
Löng erlend lán í árslok 1983 námu
36.333 milljónum króna og af þeirri fjár-
hæð voru opinber lán 24.276 milljónir
króna (lán ríkissjóðs og ríkisstofnana
kr. 12.406 milljónir, lán ríkisfyrirtækja
kr. 9.857 milljónir og lán bæjar- og
sveitarfélaga og stofnana þeirra kr.
2.013 milljónir króna). Tölurnar í töfl-
unum á bls. 3 og 7 gefa hugmynd um
þá raunvexti sem greiddir hafa verið af
þessum erlendu skuldum á undanförn-
um árum.
Til samanburðar má geta þess að
verðmæti óinnleystra spariskírteina
ríkissjóðs með áföllnum vöxtum og
verðbótum nam í árslok 1983 4.193,5
milljónum króna. Opinberar erlendar
skuldir alls í árslok í fyrra voru því
næstum sex sinnum hærri en óinnleyst
spariskírteini ríkissjóðs. Á árunum
1977 til 1978 voru vextir á nýjum flokk-
um spariskírteina 3,70% umfram
breytingar byggingarvísitölu, en fóru
síðan heldur lækkandi þar til á árinu
1982 (sjá nánartöflu á bls. 4 í Vísbend-
ingu 12. otkóber 1983). Á fyrri flokki
spariskírteina 1983 voru vextir 3,5%
umfram lánskjaravísitölu en 4,16% á
þeim síðari. Vextir á nýjasta flokki
spariskírteina ríkissjóðs, 1. flokki
1984, eru 5,08% umfram breytingar
lánskjaravísitölu.
Af þessum tölum er Ijóst að ríkið
hefuroftgreitteigendumspariskírteina
mun lægri vexti en greiddir hafa verið til
útlanda vegna opinberra skulda og á
þetta einkum við á árunum frá 1979/80
Þýsk mörk — vísitala lánskostnaðar
r \
1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983
Norskar krónur — vísitala lánskostnaðar
200
160 140 120- 100-
A.
A
/v Jvr V
/—
V
1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983