Vísbending - 20.06.1984, Qupperneq 7
VÍSBENDING
7
Þýsk mörk. Meðalvextir umfram lánskjaravísitölu á láni frá ársbyrjun:
Greilt upp í byrjunárs: 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983
1978 1,55
1979 12,65 24,98
1980 5,84 8,05 -6,58
1981 4,10 4,97 -3,80 -0,94
1982 3,70 4,25 -1,87 0,58 2,12
1983 7,95 9,28 5,68 10,11 16,09 31,98
1984 4,33 4,80 1,17 3,21 4,63 5,92 -15,00
Norskar krónur. Meðalvextir umfram lánskjaravísitölu á láni frá ársbyrjun:
Greitt upp í
byrjunárs: 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983
1978 -5,18
1979 4,76 15,73
1980 0,63 3,67 -7,13
1981 6,84 11,18 8,97 27,86
1982 3,71 6,05 3,01 8,49 -7,94
1983 4,44 6,48 4,29 8,40 -0,19 8,22
1984 3,07 4,51 2,40 4,93 -1,76 1,49 -4,82
Japönsk yen. Meðalvextir umfram lánskjaravísitölu á láni frá ársbyrjun:
Greitt upp í byrjunárs: 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983
1978 9,34
1979 20,28 32,31
1980 1,07 -2,83 -28,64
1981 7,99 7,55 -3,04 31,75
1982 6,18 5,40 -2,29 14,33 -0,78
1983 9,45 9,47 4,40 18,52 12,42 27,36
1984 7,77 7,51 3,14 13,08 7,47 11,85 -1,78
Meðaltal myntanna sjö. Meðalvextir umfram lánskjaravísitölu á láni frá ársbyrjun:
Greitt upp i byrjunárs: 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983
1978 -3,76
1979 5,43 15,58
1980 0,41 2,64 -8,46
1981 3,86 6,61 2,58 15,53
1982 5,69 8,31 6,14 14,57 13,99
1983 9,71 12,73 12,15 20,24 22,88 32,60
1984 8,01 10,20 9,26 14,36 14,07 14,16 -1,48
til 1982/83 (sjá töflu neöst á bls. 7).
Vafalaust heföi verið unnt aö selja mun
meira af spariskírteinum og auka
þannig innlendan sparnaö ef innlend-
um sparifjáreigendum hefðu verið
boðin sömu kjör og útlendum, en aukin
innlend lánsfjáröflun var einmitt meðal
markmiða þáverandi stjórnvalda. Til
að tryggja að íslenskir sparifjáreig-
endur njóti framvegis eigi lakari kjara
en útlendingar er þeir lána ríkissjóði fé
virðist öruggast að gefa vexti á spari-
skírteinum frjálsa og bjóða þau út með
sama hætti og ríkisvíxlar eru boðnir út
hér á landi.
Nokkrar forsendur og fyrirvarar
Reiknað er með „Prime Rate“ eða
bestukjaravöxtum í hverju landi og
eins prósents vaxtaálagi, en miðað er
við meðalvexti í hverjum mánuði frá
janúar 1977 til janúar 1984. „Prime
Rate“ eru vextir stórra banka til traust-
ustu lántakenda. Vextir af mörgum
erlendum lánum íslendinga eru mið-
aðir við LIBOR vexti (London Interbank
Offered Rate) auk vaxtaálags. Oftast
er nokkur munur á „Prime Rate“ í
hverju landi og LIBOR vöxtum á gjald-
miðli þess þótt frávikið sé sjaldnast
mikið. M.a. af þessari ástæðu ertöflun-
um og myndunum heldur ætlað að
gefa hugmynd um raunvexti af erlend-
um skuldum en hárnákvæma mynd.
Þá má einnig geta þess að nokkuð er
um að erlend lán beri fasta vexti en
ekki breytilega í hverjum mánuði eins
og í þessum reikningum. Hins vegar
geta föstu vextirnir verið hærri eða
lægri en breytilegu vextirnir svo að
munurinn gæti jafnaðst út á meðaltali
margra lána.
Augljóst er af töflunum og myndun-
um að gengisbreytingar krónunnar
ráða miklu um raunvexti af erlendum
skuldum. Sérstaklega má benda á árið
1983, en raunvextir erlendra lána voru
þá með lægra móti vegna stöðugs
gengis á síðari hluta ársins. Væru
vextir umfram breytingar lánskjaravísi-
tölu reiknaðir frá júní 1983 til maí i ár
kæmu út neikvæðar tölur fyrir allar
myntir. Meðalgengi á þessu tímabili
breyttist um tæplega 5% (myntvog) en
lánskjaravísitala hækkaði um 34,9%.
Sé reiknað með um 10% meðalnafn-
vöxtum af erlendum skuldum (til að
taka dæmi) væru neikvæðir raunvextir
á þessu tólf mánaða tímabili um
14,3%.