Vísbending - 19.12.1995, Page 15
4. ágúst
Síðustu forvöð
Þorvaldur Gylfason
Hér heima er hins vegar engin hreyfing enn í
þá átt að draga úr ítökum stjórnmálamanna í
banka- og sjóðakerfinu, þótt bankar og sjóðir
hafi sóað og tapað svimandi fjárhæðum síð-
ustu ár. Allar Austur-Evrópuþjóðirnar stefna
hraðbyri inn í Evrópusambandið, en ekki við.
4. ágúst
Aðrir sálmar - Samtrygging í hættu
Við þessu er fátt að segja. Þessir íörystumenn
telja greinilega sína forsjá besta fyrir lífeyri
launþega á þessu landi. Hvað varðar ASÍ þarf
þetta ekki að koma á óvart, en
verkalýðsfélög eru allajafna ekki miklir
boðberar frjálslyndis. Hins vegar vekur
afstaða VSÍ nokkra furðu, en erlendis
hal'a samtök atvinnurekenda oftast verið
kyndilberar frelsis og sjálfræðis ein-
staklinga. Samtök íslenskra atvinnu-
rekenda virðast stefna í öfuga átt.
Þennan dag ítrekaði VSI uppsögn
sína á Vísbendingu.
10. ágúst
Kynjaskipting á vinnumarkaði
Atvinnuleysi virðist ekki hafa orðið til
þess að fækka störfum kvenna. Þvert á
móti hefur þeim fjölgað um 1800 á
tímabilinu 1991 -1994, en á þeim tíma
fækkaði störfum karla um 900. Konur
sækja mjög ákveðið fram á íslenskum
vinnumarkaði, hvort sem það er vegna
þess að nú sé talin þörf á tveimur
fyrirvinnum á hverju heimili eða þess að
konur geri nú kröfu til þess að vinna úti til
jafns við karla.
Þetta var síðasta grein Asgeirs Jónssonar,
ritstjóra, sem hélt til náms í Bandaríkjunum.
18. ágúst
Dýrar tryggingar
Annað mál sem neytendur eiga að taka upp á
sína arma er baráttan fyrir því að tjónabætur
séu sanngjarnar og fari ekki úr böndum. Ekki
má skilja þetta sem svo að inenn eigi ekki að
fá sitt tjón bætt að fullu. Það er grundvallar-
atriði að svo sé. Hins vegar á ekki að halda
tryggingariðgjöldum háum hjá öllum almenn-
ingi til þess að menn fái bætur umfram það
sem eðlilegt getur talist. Það er ekki vit í því
að krefjast þess samtímis að bætur verði aukn-
ar og að iðgjöld lækki. þegar greinin er í jafn-
vægi.
Iðgjöld í ökutœkjatryggingum komu nokkr-
um sinnum til umrœðu.
29. september
Um skaðabótalög
Jón Erlingur Þorláksson
Fjárhagslegl örokumat má kalla sanngirnis-
mat. Þegar metið er „skal líta til þeirra kosta
sem tjónþoli á til að afla sér tekna með vinnu
sem sanngjarnt er að ætlast til að hann starfi
við,“ segir í lögunum. Og í athugasemdum:
„Við slíkt sanngirnismat koma einkum til álita
andlegir og líkamlegir hæfileikar tjónþola,
verkkunnátta hans, menntun og aldur.“ Gall-
inn á þessu er sá að sanngirni er ekki vel skil-
greint hugtak eða mælanleg stærð og mat hlýt-
ur að verða huglægt.
23. nóvember
Sótt að bíleigendum
Miðað við þetta leiðir tillaga lögmannanna
tveggja til þess að bætur hækki um 15-25% og
hækkun iðgjalda verði litlu minni. Meðal-
iðgjöld eru nálægt 35 þúsund krónum í lög-
boðnum tryggingum og heildarkostnaðarauki
því nálægt 15 þúsund krónum í tveggja bíla
fjölskyldu. Þetta kallar á 26 þúsund króna
launahækkun, þegar tekið er tillit til skatta.
Framfærsluvísitala myndi hækka um 0,4-
0,5% og skuldir heimilanna hækka uin rúman
milljarð á einni nóttu.
Þetta kallaði á viðbrögð:
7. desember
Fullar bætur fyrir fjártjón
Jón Steinar Gunnlaugsson
Það er meginatriði í skaðabótarétti, að sá
maður sem fyrir tjóni verður, með þeim hætti
að annar aðili beri skaðabótaábyrgð á tjóninu,
fái allt fjártjón sitt bætt. Verkefni löggjafar,
sem fjallar um bætur fyrir líkamstjón á hendur
skaðabótaskylduin aðila, er því að ákveða
hvað þurfi til að koma til að um fullar fjár-
tjónsbætur verði að ræða. Þar skipta hugleið-
ingar um iðgjöld í vátryggingum engu máli.
25.ágúst
Hver á fyrir ríkisbanka?
Ekki er að óttast að neinn gleypi ríkisfyrir-
tækin öll í einum bita, en það er heldur ekki
ráðlegt að setja þau öll á markað í einu.
Líklegast þyrfti því að dreifa sölu þessara
fyrirtækja á fimm ár ef þar að kæmi nema
erlend fjárfesting kæmi til.
1. september
Eignarhaldsfélag um stóriðju skap-
ar mikla möguleika
Hér á eftir verður reifuð sú hugmynd að stofna
eignarhaldsfélag um hlutabréf í verksmiðjum
íslenska rikisins. ... Með því að búa lil
eignarhaldsfélag eins og hér er lýst værum við
að skapa verðmæti úr pappírunt sem nú eru
léleg söluvara og velkjast sem verðlftil eign í
skúffum ráðuneyta.
Þessi hugmynd vakti nokkrar umrœður.
1. september
Aðrir sálmar - Kemur að skulda-
dögum
Ráðamenn birtust nýlega mæddir á svip í fjöl-
miðlum og sögðu þjóðinni að efnahagsbatinn
hefði ekki orðið sá sem við var búist. Ekki er
að sjá að efnahagsbati leyfi I5% launahækkun
á tveimur árum. Síst af öllu er útlit l'yrir að
ríkið nái markmiðum sínum um fjögra millj-
arða halla á næsta ári með þeim launa-
hækkunum sem þegar hefur verið samið um.
8. og 15. september
Aðrir sálmar - Eru þeir til?
Nýja stöðin hyggst taka um 25% lægra
gjald en Stöð 2 tekur nú. Stjórnar-
formaður Stöðvar 2 lét reyndar á sér
skilja að hún ætti rétt á öllu efni sem
væri þess virði að sýna. Svona yfir-
lýsingar gefa þeir ekki sem vilja láta
taka sig alvarlega; formaðurinn ætti
frekar að fylgja fordæmi spældra lör-
stjóra og segjast fagna samkeppninni.
Viðbrögð urðu nokkur og komu m.a.
fram viku seinna:
Þess hefur verið óskað að blaðið birti
eftirfarandi kafla úr Morgunblaðinu 3.
sept: „Sigurður lætur þess sérstaklega
getið í samtali við blaðamann að Stöð 2
hafi samninga við alla stærstu dreifing-
araðila sjónvarpsefnis. Sjónvarpsréttur-
inn fylgi ekki sjálfkrafa kvikmynda-
húsunum inn í nýja sjónvarpsstöð. Um
hann verði að semja sérstaklega.“
Aður í sömu grein Mbl. stóð:„En það
hefði ekki raskað ró manna og báðir
aðilar fagni samkeppninni." I Ijósi þessa var
ofangreind hvatning Vísbendingar óþörl'.
15. september
Lífeyrissjóðir 1994:
Betri staða, minni ávöxtun
Öryggi í fjárfestingum lífeyrissjóðanna hefur
komið til tals eftir að Lífeyrissjóður bænda
tapaði miklum peningum á lánum og hluta-
bréfakaupum í Emerald Air. ... Þetta mál má
alls ekki verða til þess að lífeyrissjóðirnir
hætti öllum fjárfestingum í hlutabréfum. Það
vekur þó enn upp spurningar um það hvort
ekki sé óhollt að forystumenn lífeyrissjóðanna
sitji í stjórnum fyrirtækjanna sem þeir tjárfesta
í. Vandmeðfarið er að sitja þannig beggja
megin borðs, til dæmis þegar ákveða á hluta-
fjáraukningu eða lán.
15. september
Aðrir sálmar - Þingmaður í eina
mínútu
Varaþingmaður sem tekur sæti á þingi í hálfs
mánaðar forföllum þingmanns hefur þar ineð
tryggt maka sínum 20% af þingfararkaupi í maka-
lífeyri eftir sinn dag. Alls eru 365 milljóna
lífeyrisskuldbindingar vegna makalífeyris
manna sem sátu skemur á þingi en í eitt ár,
flestir væntanlega aðeins í fáar vikur. Ellilífeyr-
isskuldbinding vegna sama hóps er 11 milljónir.
I byrjun október var flutt frumvarp á Al-
þingi til þess að breyta þessu.
VÍSBENDING
15