Vísbending - 29.01.1999, Qupperneq 3
ISBENDING
Tafla 1. Einkavœðing á Islandi 1989-1998. Heimildir: Tölfrœðisvið Seðlabanka ís-
lands, Einkavœðing á Islandi, greinasafn 1997.
í m.kr. 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1988Á
Einkavæðing í alm. útboðum 0 0 0 0 0 290 201 974 90 9.315
Önnur cinkavæðing hlutaf. 1.450 87 0 489 729 0 0 138 161 0
Önnur einkavæðing 0 0 0 395 0 0 0 135 0 0
Samtals 1.450 87 0 885 729 290 201 1.247 251 9.315
Margaraðferðir
Einkavæðing hefur verið
á ýmsan hátt í hinum
ýmsu löndum. Rikisstjómir
hafa breytt einkavæðingar-
aðferðum sínum eftir því sem
þærhafa fengið meiri reynslu.
Almennt má segja að notuð
sé sú aðferð sem söluaðili telji
að hjálpi sér mest við að ná sem flestum
markmiðum sínum. Einfaldasta leiðin
einkavæðingar er að leggja fyrirtækið
niður. Ein aðferð er að gefa íyrirtæki,
önnur aðferð að selja hlut án nokkurra
skilyrða með uppboðsaðferð til hæst-
bjóðanda. Það má segja að þessar tvær
aðferðir spanni hvor sinn enda rófsins
varðandi það að fá tekjur og íjölgun
hluthafa. Fyrri aðferðin gefur engar tekj-
ur og hún hefur oft verið notuð í þeim
tilfellum þar sem aðalmarkmið stjóm-
valda hefúr verið að koma ríkiseignum
sem fyrst í hendur einkaaðila. Seinni
aðferðin gefiir hámarkstekjur og er oft-
ast notuð þegar aðalmarkmið einka-
væðingar er að fá sem mest fyrir eignina
og/eða að auka hagkvæmni i ákveðinni
atvinnugrein eða í hagkerfinu. Flestar
einkavæðingaraðferðir eru á milli þess-
ara tveggja og þá oftast í fomii almenns
útboðs. Síðustu ár hefúr meirihluti einka-
væðingar í OECD-löndum verið í formi
almenna útboðs, í öðmm löndum hafa
önnur fonn einkavæðingar verið ríkj andi.
Sérumgjörð á Islandi
Aíslandi má segja að að sémmgjörð
hafi verið sett um hverja einkavæð-
ingu, þó innan verklagsreglna um einka-
væðingu. Astæður þess að íslensk stjóm-
völd hafa sífellt verið að breyta ramma
einkavæðingar em þær að markmiðin sem
menn vilja ná ífam em mismunandi og að
menn hafa orðið reynslunni ríkari. Hér
á eftir fer stutt almenn lýsing á þeim
aðferðum sem stjómvöld hafa notað:
i. Fyrirtæki hefur verið lagt niður og
eignir seldar. Dæmi um þetta eru Rík-
isskip og bókaútgáfa Menningar-
sjóðs.
ii. Fyrirtæki hafa verið seld einum eða
fleiri aðilum án þess að það hafi verið
auglýst og ekki hefúr verið augljóst
hver átti frumkvæði að samningsgerð.
Dæmi: sala Ferðaskrifstofú ríkisins,
sala eignarhlutar ríkisins í Þörunga-
verksmiðjunni hf. og í Eimskip hf.
iii. Þegar hlutur er seldur seldur hæst-
bjóðanda eftir auglýsingu er talað
um tilboðsaðferð. Dæmi er salan á
Prentsmiðjunni Gutenberg hf.
iv. Biðraðaaðferð er þannig að kaup-
andinn mætir á staðinn eða hringir.
Sala hefst á ákveðnum tímapunkti
og kaupendur em afgreiddir eftir röð;
„fyrstur kemur, fyrstur fær.“ Þegar
þessi aðferð er notuð er oftast sett
þak á það hve mikið hver getur keypt.
Þessi aðferð var m.a. notuð við sölu
bréfa í Lyfjaverslun ríkisins hf. og
hefur ekki verið notuð síðan.
v. Þegar hlutur er seldur með áskriftar-
aðferð eiga allir þeir sem taka þátt í
útboðinu jafnan möguleika. Askrift-
artímabilið stendur yfir í nokkurn tíma.
Verði áskriftaróskirhærri en sem nem-
ur því hlutafé sem í boði er skerðist
hlutur hvers og eins. Dæmi um þetta
er salan á hlutum í rikisbönkunum
þremur.
vi. Sambland af áskriftaraðferð og til-
boðsaðferð. Þessi aðferð var notuð
við sölu á hlut ríkisins í Islenska jám-
blendifélaginu hf. og seinni hluta
einkavæðingar Skýrr hf.
Aðferðir iii-vi fara nær alltaf fram sem
almenn útboð. Sú hefð hefúr komist á
við einkavæðingu síðustu missera að
starfsmenn hafa fengið að kaupa hluta-
bréf á sérkjömm.
Gagnrýni
Margt er hægt að gagnrýna við einka-
væðingu á íslandi. Einkavæðing
á Islandi kom of seint og í of litlu magni.2
Mikil ríkisafskipti hafa leitt til minni hag-
vaxtar og haldið aftur af atvinnuþróun,
sérstaklega í fjármálageiranum. Verk-
lagsreglur um einkavæðingu voru settar
of seint og það hefúr ekki alltaf verið
farið eftir þeim. Einkavæðing SR-mjöls
hf. var illa unnin og fullyrða má að hún
hafi dregið úr hraða einkavæðingar á
Islandi. Einkavæðingu hefúr verið hag-
2 Árið 1925 samþykkli Alþingi að leyfa frjálsan
innflutning á oliuvörum og ikjölfarið varLandsversl-
unin lög niður. Sósialistinn Héðinn Valdimarsson
var I forystu fyrir Landsverslunina og var mikil
talsmaðurrikisverslunar. Hann stofnaðifyrirtækið
Oliuverslun islands hf. árið 1927 ásamtöðrum, þar
á meðal starfandi fjármálaráðherra. Oliuverslun
Islands keyptisiðan eignirLandsverslunarinnarog
hófinnflutning á oliuvörum. Þaðmá segja aðþetta
hafi verið fyrsta einkavæðing á islandi og um leið
fyrsta „einkavinavæðingin“.
að þannig að hún hefúr ekki leitt til er-
lendrar íjárfestingar nema í litlu mæli.
Oft hafa markmið einstakra einkavæð-
inga verið óljós og stundum hafa aðal-
markmið verið látin víkja iýrir markmið-
um sem ættu að vera undirmarkmið.
Dæmi um þetta er sala á hlutafé í ríkis-
bönkum síðustu mánuði ársins 1998. I
þeirri einkavæðingu gafst tækifæri til að
ná fram öllum markmiðunum sem nefnd
voru hér að framan en pólitiskur vilj i eða
skortur á skynsemi kom í veg fyrir það.
Þess má geta að eitt aðalmarkmiða með
einkavæðingu Landsbanka Islands hf.
og Búnaðarbanka Islands hf. var mark-
mið sem ekki var nefnt hér að framan og
á lítið skylt við hefðbundna einkavæð-
ingu, þ.e. er að styrkja efnahag ríkis-
fyrirtækj a til þess að gera þau samkeppn-
ishæfari við einkafýrirtæki á markaði.
Þrátt fýrir nokkra einkavæðingu á íslandi
er fjöldi fyrirtækja og stofnana enn í
eigu hins opinbera. Þau helstu eru: ríkis-
bankarnir þrír, Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins, Lánasjóður landbúnaðar-
ins, Byggðastofnun, íbúðalánasjóður,
Landsvirkjun og önnur orkufýrirtæki, ís-
landspóstur hi’, Landssíminn hf., Sem-
entsverksmiðjan hf., Áburðarverksmiðj-
an hf, Steinullarverksmiðjan hf. og Kísil-
iðjan hf. við Mývatn, RÚV og svo fram-
vegis. Áætla má að söluandvirði þessara
iýrirtækjagæti verið ábilinu 80-1 OOmillj-
arðar króna. Til samanburðar voru er-
lendar langtímaskuldir ríkissjóðs um 104
milljarðar í árslok 1998. Þrátt fyrir gagn-
rýnina hér að framan þá hefur einkavæð-
ing á Islandi skilað nokkru. Umfang hins
opinbera hefúr minnkað, samkeppni í at-
vinnulí finu hefúr vaxið, hreint virði ríkisins
hefur aukist og hlutaijármarkaðurinn/
hluthafamenning hefúr eflst.
3