Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Qupperneq 5

Frjáls verslun - 01.12.1940, Qupperneq 5
ar ekkert um þá upphæð, sem þar er um að ræða. * Á slíkum tímum sem þessum er ekki um neitt öryggi að ræða. Gott má teljast, ef séð er að ekki sé ástæða til að óttast afkomuna, a. m. k. skammt fram í tímann. En allt getur breytzt í skyndi. Tundurduflalagnir Breta við ísland geta t.d. haft mjög óheillavænlegar afleiðingar fyrir fiskveiðar okkar, en hvernig það verður leiðir framtíðin í ljós. Líklegt má telja, að nokk- uð dragi úr veiðum. Þannig geta óvæntir at- burðir gerbreytt öllu útliti á skömmum tíma. Hámarksverð á útflutningsafurðir getur orðið sett á o. s. frv. En um það geta menn víst verið sammála, að ekki sé ástæða fyrir okkur að kvarta yfir hinni efnalegu afkomu, eins og sakir standa, og er það meira en margar þjóðir geta nú sagt. Svo virðist sem við þurfum ekki að óttast hungur og ekki er heldur útlit fyrir að framleiðslan stöðvist, en hitt er allt annað mál, hvert gagn verður að öðru leyti að „gróð- anum“. Þær vörur, sem við fáum nú keyptar, eru nær eingöngu eyðsluvörur. Við getum ekk- ert keypt af vörum, sem hægt er að skapa úr verðmæti. Skipastólinn er ekki hægt að endur- nýja. Eftir að allar lausaskuldir, sem hægt er að komast að til að greiða eru greiddar, standa samningsbundnu skuldirnar eftir. Af lánum okkar í Englandi er aðeins eitt uppsegjanlegt. Það er lánið frá 1930 og eru eftirstöðvar þess nú ca. 13 milj. kr. Lánið er uppsegjanlegt pr. 1. nóv og 1. maí ár hvert, en ekki hefir því enn verið sagt upp. Ríkisstjórnin hefir leitað álits Lands- banka Islands um hvort segja bæri láni þessu upp og taka þá innlent lán til greiðslunnar, en allt er óráðið um það. Skuldabréfin fengust ekki keypt, en þau munu nú standa í 76. Ef framleiðsla okkar stöðvast ekki og verð- lag helst hagstætt, er ekki annað að sjá en að inneignir safnist fyrir í brezkum bönkum en að ekki verði flutt inn nema nauðsynjar, sem brýn- ar mega teljast. Það sem flutt verður inn fram yfir hið nauðsynlega, verður tæplega mikið. Framtíðin verður svo að skera úr því, hvers virði hinair erlendu inneignir okkar verða. * I innanlandsmálunum blasir ekkert við nema tíðindaleysið. Skattamálin liggja nú fyrir til úrlausnar, og er þess að vænta að nýrri skipan verði komið á þau, sem viðunanleg verði. Fram- sóknarmenn búa sig undir kosningar og varpa yfir andstæðingana í blöðum sínum þessum vanalegu „tíma“-sprengjum, sem flestar gera lítinn usla. Kommúnistar safna áskrifendum að Þjóðviljanum. Alþýðuflokkurinn lifir enn. FRJÁLS VERZLUN Bændaflokkurinn heyrist ekki nefndur. Á hin- um pólitíska leikvelli virðist ekki í bráð hægt að vænta neinna tíðinda. En kosningar nálgast og þá má búast við skarpari deilum, þó ástæða sé til að búast við að kosningabaráttan verði nú með nokkuð öðru sniði en verið hefir. Að vísu munu Framsóknarmenn búa sig und- ir samskonar baráttu og verið hefir. „Tvíbýlið" er þeim enginn fjötur um fót í því efni. Eftir blaðaskrifunum að dæma er andinn, aðferðin og tilgangurinn sá sami. Þar hefir ekkert lærst og ekkert gleymst. Sjálfstæðismenn hafa á undanförnum miss- erum einbeitt kröftum sínum við að leysa þau margháttuðu viðfangsefni, sem fyrir hafa legið til úrlausnar. Þeir hafa aftur ekki sint póli- tískum undirróðri. Hjá andstæðingunum hefir aftur ekkert hlé orðið á áróðrinum. En það er líka mála sannast, að Sjálfstæðis- flokkurinn hefir minni þörf fyrir slíka starf- semi en andstæðingarnir. Svo mikið er eftir af . íhygli og hugsun hjá Islendingum, að þeir láta ekki unnvörpum hvern pólitískan uppboðshald- ara slá sér umsvifalaust það skran sem í boði er. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur þeirra, sem taka athafnir fram yfir orð og staðreyndir fram yfir stóryrði. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur heilbrigðrar skynsemi með landsmönnum. CASSON: Frelsi er fyrsta skilyrðið það hefir verið sannað, að þegar frelsinu er farg- að, hverfur líka dugnaður og forsjá með þjóð- unum. Moskva-menn gerðu ákveðnar tilraunir til þess að endurreisa framtakssemi manna eftir að frelsið hafði verið lagt í bönd, en það tókst'ekki. í mörg áf' störfuðu í Rússlandi um 300 amerískir verkfræðingar, allt duglegir menn, og áttu þeir að kynna nýjar iðnaðaraðferðir. þessir sérfræðingar gerðu livað þeir gátu, en allt kom fyrir ekki. Sú staðreynd stendur föst, að án frelsis þrífst eng- inn dugur. Vitsmunir og þekking verða að hafa nægilegt olnbogarúm, þvingun og valdboð eru verstu fjendur þeirra. þegar farið er með menn eins og þeir væri skepn- ur, þá verður framkoma þeirra í samræmi við það. þeir hætta að hugsa og það dregur úr þeim dug til nytsamra starfa. það er hægt að slá þeirri reglu fastri að dugnaður gctur aðeins þrifist þar sem frelsi og einstaklings- framtak fær að njóta sín. 3

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.