Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 6
Dr. Jón Helgason: Reykjavíkurkaupmenn a æskuárum mínum (Kafli úr útvarpserindi). Fram undir miðja næstliðna öld má segja, að kaupmannastéttin hafi að mestu leyti ráðið lög- * um og lofum hér í höfuðstað landsins. Og þeir kaupmenn, sem mest áttu undir sér, voru allir af erlendu bergi brotnir. Þeir mynduðu, ef svo mætti segja, fyrirmannalið (aristokrati) höf- uðstaðarins og voru um leið — í augum almenn- ings — „auðvaldið“ í bænum. Kaupmenn þeirra tíma gátu því fremur haft sig í frammi og látið málefni bæjarins til sín taka sem margir hinna hérlendu íbúa áttu allt sitt undir náð kaup- manna. En eftir 1850 tekur þetta mjög að breyt- ast við það, að hérlendum embættismönnum og menntamönnum fjölgar í bænum, en að sama skapi dregur úr áhrifavaldi kaupmannastéttar- innar. Á því tímabili, sem hér ræðir um, tímabilinu 1870—80, gætir þessa áhrifavalds lítið sem ekkert. Nýir straumar hafa með nýjum tímum borizt inn hingað. Höfuðstaðurinn er orðinn margfalt þjóðlegri en áður var — fyllilega ís- lenzkur bær. Þó eru allir helztu kaupmennirnir í bænum enn þá menn af útlendu bergi brotnir. Af 13 verzlunum bæjarins eru 7 í eigu útlendinga, sem oftast sýndu sig hér aðeins um hásumarið, en voru annars búsettir ytra. En þeir, sem verzl- ununum stýrðu, voru aftur flestir eða oftast alíslenzkir menn, bæði að fæðingu og í hugsun og hjarta. Ég vil fyrst víkja stuttlega að þessum verzl- unum erlendra manna, er hér voru reknar á þessu tímabili. Elzt þeirra allra var verzlun P. C. Knudtzons, sem að réttu lagi byrjaði hér 1792, og nefndist framan af Norðborgarverzl- un; en frá 1815 er hún alltaf kennd við Knudt- zon eða „grossérann" eins og það var kallað. Hann hafði löngum þótt harðjaxl í viðskiptum sínum við landsmenn og manna ráðríkastur. Þetta breyttist allmikið eftir að verzlunin komst í hendur sona hans, einkum hins há- 4 menntaða S. Chr. Knudtzons (hann var bæði kandidat í lögum og hagfræði) og forstaðan hér í bæ lenti hjá íslenzkum mönnum. Fyrir þeirri verzlun stóð fyrst, er ég man eftir henni, Hans Anton Sivertsen, sonarsonur þess góð- kunna Bjarna riddara, og því alíslenzkur mað- ur. Hann hafði m. a. í mörg ár átt sæti í bæjar- stjórn og verið oddviti hennar. Eftir lát hans (1872) tók við forstöðunni Nilljohnius Zimsen, að vísu af dönsku bergi brotinn að mestu, en uppalinn hér í bæ. Báðir þessir verzlunarstjór- ar höfðu á sér almenningsorð sem gæðamenn og nutu fyllsta trausts almennings, enda stóð verzlunin með blóma undir stjórn þeirra. Við þá verzlun fengu margir ungir menn haldgóða verzlunar-menntun. Meðal annarra starfs- manna þar á uppvaxtarárum mínum eru mér minnisstæðastir þeir Jón Straumfjörð, sem loks varð prestur austur í Meðallandi (þótt aldrei hefði tekið stúdentspróf, en með kgl. leyfi gengið á prestaskólann) og Jónas Hall, sem enn er á lífi hér í bæ, háaldraður. Verzlun þessi hætti um 1896, er eigandinn gjörðist for- stjóri danska þjóðbankans, og var þar síðan rekin Edinborgar-verzlunin, sem nú er einnig hætt. Þá var Thomsens-verzlun önnur stórverzlun bæjarins. Eigandi hennar var Ágúst Thomsen, fæddur og uppalinn hér á landi, en síðan um 1872 búsettur í Khöfn. Verzlunina hafði stofn- að Ditlev Thomsen faðir hans, er drukknaði af póstskipinu undir Svörtuloftum 1857. Hér var mikil verzlun rekin og veitti henni forstöðu í fjarveru eigandans Einar Jafetsson (frændi Jóns Sigurðssonar og bróðursonur konu hans), dugnaðarmaður mikill (f 1879 aðeins 42 ára). Tók þá við verzluninni danskur maður, Lauritz Larsen að nafni (er hafði áður verið á Eyrar- bakka), en hann drukknaði hér í höfninni ásamt Sig. Sigurðssyni adjunkt sumarið 1884. — Ágúst Thomsen var kaupmaður fram í fing- FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.