Frjáls verslun - 01.12.1940, Síða 11
sem tryggja og eru þeir nefndir „underwriters"
eða undirskrifendur. Eru það 200 menn, sem
hafa rétt til að vera „underwriters" hjá Lloyd
og má segja, að það sé auðveldara fyrir úlf-
alda að komast í gegnum nálarauga en að kom-
ast í þá tign að verða „underwriter" hjá
Hoyd. í húsi Lloyds starfa auk tryggjendanna
5000 manns.
Nú er Lloyd flutt í kjallara hallar sinnar, því
vegna loftárásanna þykir ekki annarstaðar ör-
uggt, en kjallarinn er rúmgóður og kemst allt
vel fyrir. Kostaði kjallaraútbúnaður þessi 50
þús. sterlingspund og er allur úr stáli og harð-
steypu.
„Allt er hægt að tryggja hjá Lloyds“ er orðið
einskonar orðtæki. Enda mun það rétt vera, að
flest fæst þar tryggt, sem mönnum dettur í hug
að tryggja'.
Lloyds hefir auga á hverjum fingri. Um allar
jarðir eru umboðsmenn þess og þeir gæta hags-
muna þessarar voldugu stofnunar. Lloyds gefur
út nákvæma s'krá yfir öll kaupskip, sem á höf-
unum sigla.
Bak við Lloyds stendur hið mikla auðmagn
Breta. Lloyds er einn þátturinn í sjóveldi Breta
og hann ekki.sá ómerkasti. Yfir þessari stofnun
hvílir blær gamallar sögu og menningar. Ef til
vill er tízkan þar ekki svo mjög í heiðri höfð,
en það er byggt á grundvelli gamalla erfða-
venja og gamallar frægðar.
Lloyds-menn fá sér liressingu í loftvarnabyrginu.
Á venjulegum tímum er aðalsalur Lloyds troðfull-
ur af starfandi fólki. par er ys og þys, hróp og köll.
Allt ber nokkurn kauphallarsvip, því Lloyds er frem-
ur vátryggingar-„börs“ en tryggingarfélag í þeim
skilningi, sem slíkt er þekkt hér.
þegar loftvarnasírenurnar hljóma, tæmist hinn
stóri salur Lloyds. Skjöl hverfa af borðum og bekkj-
um og allt er í þögn. það er ekki svo sjaldgæft nú,
að Lloyds-menn hverfi niður í kjallarann.
í loftvarnabyrgi Lloyds liefir verið komið upp
skrifstofum og þar djúpt neðanjarðar er nú starfað.
FRJÁLS VERZLUN
9