Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 3

Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 3
V'ið samanburð þessara talna sjáum vér, að víða ber nokkuð á milli í áætlun fjárhagsráðs mi í ár og í fyrra. IJm þann mismun, scm þannig kemur frain, lætur fjárhagsráð fvlgja athuga- semdir, eitthvað á þessa leið: í 1. ii. er 5.6 millj. kr. lækkun. Henni veldur einkum það, að innflutningur fóðurvöru er áætl- aður minni á þessu ári en í fyrra. (Trúlegt er að vorharðindin valdi einhverri röskun á áætl- uðum innflutningi fóðurvöru). Einnig hefur verðlag á kornvörum lækkað til muna ii;i því í fyrra, en sú lækkun kemur þó ekki fram í flokknum, sakir þess að nú er áætlað að flytja inn meira magn en s.l. ár, t. d. 6.600 smál. af hveiti í stað 5.000 smál., og ættu þá að safnast nokkrar birgðir af þessum nauðsynjavörum í landinu. I 2. fl. er 1.3 millj. kr. lækkun. Lækkunin stai- ar af því, að s.l. sumar var kartöfluuppskera mun betri en árið 1947, og er því ráð íyrir gert, að minna þurfi að flytja inn af þeim, eða 0.7 millj. á móti 2.0 millj. í fyrra. í 3. fl. er 1.8 millj. kr. hækkun, sem stafar af auknu magni þessarar vöru, t. d. er nú ráðgert að flytja inn 850 smál. af kaffi í stað 700 í fyrra, um 5000 smál. af sykri í stað 4000 í fyrra o. s. frv. I 4. fl. er 14 millj. kr. hækkun. Er með þessu ætlazt til, að fullnægt verði eftirspurninni sam- kvæmt skömmtunarseðlum. Auk þess sem þessi fjárhæð er mun hærri en s.l. ár, ætti hún að verða drýgri til vörukaupa vegna þess að áætlað er að allmikill hluti vefnaðarvörunnar verði flufct- ur inn lítt unninn eða hálfunninn, en ekki fnll- unnar vörur nema að nokkru leyti. 5. fl. Hér er 3—400 þús. kr. hækkun. Gert er ráð fyrir að efni til skógerðar verði aukið veru- lega frá því í fyrra. Ætti því skömmtun að verða fullnægt með ársinnflutningnum og vel það. 6. fl. Hér er áætlunin 11.9 millj. kr. hærri en í fyrra, en svipuð og raunveruleg gjaldeyrissala var í þessum flokki. Þessi innflutningur ætti að nægja til þess, að fjárfesting eða byggingastarf- semi gæti orðið lík nú og á s.l. ári. Þess má geta, að nú cr hlutfallslega meira áætlað af ýmsum vörum, s. s. miðstöðvarefni, pípum, gólfdúk, þil- plötum, asbesii. þakjárni o. f 1.. sem þarf til að ljúka byggingum. í 7. fl. er 12.1 millj. kr. mismunur til ha'kkun- ar. Eins og í skránni sést hafa leyfisveitingar far- ið langt fram úr áætlun á s.l. ári, og á það m. a. rót sína að rekja til samninga um innflutning á kolum, bruna á síldarnótum og innflutnings á síldarnótum vegna væntanlegrar vertíðar í Hval- firði. I 8. fl. er 5.5 millj. kr. hækkun, sem orsakast aðallega af því, að vélar til jarðræktar og hey- skapar, svo og varahlutar í landbúnaðarvélar, eru nú áætlaðir 10.9 miilj. á móti 6.5 millj. í fyrra. 9. fl. er líkur að áætlun nú og í fyrra, 0,7 millj. kr. lækkun. Þrátt fyrir svipaða heildartölu, hafa verið gerðar breytingar á einstökum liðum inn- an hans. 1 10. fl. er áætlað 2.3 millj. kr. hærra en í fyrra, en þó litlu lægra en leyfisveifcingar reyndust verða þá. I 11. fl. er 5.6 millj. kr. hækkun. Leyfisveit- ingar urðu þó talsvert hærri í fyrra en nú er áætl- að, en gjaldeyrissalan þá reyndist svipuð þessari áætlun. Nokkrar breytingar eru gerðar á ein- stökum liðum frá fyrra ári. I 12. fl. er talsverð lækkun, sem nemur 400 þús. kr. Munurinn stafar af því, að meira er áætlað af hráefnum til þvottaefnis- og sápugerð- ar innanlands og minna til fullbúinnar vöru en var á s.l. ári. 13. 11. hækkar um 1.4 millj. kr. í áætlun, en lækkar talsvert miðað við raunvei ulegar leyfis- veitingar og gjaldeyrissölu í fyrra. Af einstök- um liðum má nefna, að innflutningur á bókum og tímaritum er áætlaður rúml. 1 millj. kr. í 14. II. er helmingshækkun, 0.3 millj. kr., að áætlun til, en sama upphæð og seldur gjaldeyrir í þessum flokki í fyrra. 15. II. .1 þessum 11. er breytingin langmest, 25 millj. kr. hækkun í áætlun og 20 millj. í leyfis- veitingum. Hækkunin á þessum llokki stafar að langmestu leyti af því, að innflutningur á raf- lagningaeíni og efni tii rafveitna er áætlaður mun meiri en var á s.l. ári. Segja má að 16 fl. standi að mestu í stað. I 17. flokki er áætluð 4.1 millj. kr. liækkun, en upphæðin nú er svipuð og leyfisveitingar reyndust vera í fyrra. 18. flokkur lvlýtur nákvæmlega sömu áætlun og í fyrra, en gjaldeyrissala náði þá ekki fullri upphæðinni. Enn er ógetið þess lvluta áætlunarinnar, sem nefnist duldar greiðslur og tekjur, og fer nú hér á eftir uppistaða lvans fyrir yfirstandandi ár: FRJÁI.S VERZI.UN 47

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.