Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 33
samtökum. Um þrítugt réðist Jón Björnsson frá Bæ í það, ásamt alnafna sínum og mági frá Svarfhóli, að kaupa Brydesverzlun í Borgarnesi, aðra hinna tveggja stóru, dönsku verzlana þar á staðnum, og ráku þeir hana í félagi um fjöldamörg ár. (Jón frá Svarfhóli lézt árið 1942). Friðrik Þórðarson forstjóri í Borgarnesi ritar svo m. a. í eftirmælum eftir Jón heitinn frá Bæ: „Eins og að líkum lætur, hafði Jón frá Bæ á sínum langa starfsferli margt fólk í þjónustu sinni, og mun það einróma álit allra, að slíkan húsbónda sem hann væri ekki unnt að eiga, enda voru vistaskipti fátíð í starfs- mannaliði hans. Öllum sínum hjúum kom hann til nokkurs þroska og sleppti ógjarnan af þeim hendi, án þess að húa sérstaklega í haginn fyrir þau. Prúð- mannleg framkoma og háttvísi Jóns, ásamt glaðlyndu viðmóti og góðlátlegri kímni, gerir hann ógleyman- legan öllum, er hjá honum unnu, er dugnaður hans og hagsýni og frábær reglusemi, fagurt fordæmi og góður skóli. Jón Björnsson var ágætlega gefinn mað- ur og minnið trútt. Hann hafði mikið yndi af sagn- fræði og skáldskap og var betur að sér í íslenzkum hókmenntum, fornum og nýjum, en nokkur annar leik- maour, er ég hef kynnzt. Jón Björnsson var kvæntur Helgu Björnsdóttur frá Svarfhóli, víðkunnri ágætiskonu. Eru fjögur börn þeirra á lífi, uppkomin.“ Guðmundur Kristjánsson skipumiMari í Reykjavík lézt 4. apr. s.l. Hann var fæddur 16. júlí 1871 í Haukadal í Dýrafirði, sonur hjónanna Kristjáns Özurarsonar bónda og Ragnheiðar Pét- ursdóttur. Þegar í æsku tók Guðmundur að stunda sjó- inn, varð matsveinn á skipi aðeins 11 ára gamall. Báts- formaður var hann orðinn 18 ára, og síðar varð liann stýrimaður og skipstjóri á þilskipum. 23 ára að aldri réðzt hann í siglingar á amerísku skipi, og þremur árum seinna lauk hann skipstjóraprófi á Borgundarhólmi. Eftir það var hann í förum á dönskum skipum um skeið, en árið 1899 varð hann skipstjóri á togara Vídalíns-útgerðarinnar hér heima, og var hann þannig fyrsti íslenzki togara- skipstjórinn, a. m. k. þeirra, er stunduðu veiðar við Island. Eftir nokkra hríð settist hann aftur að heima í Dýrafirði, gerðist þar skipstjóri á fiskiskipum, stund- aði búskap og rak verzlun í Haukadal. En árið 1910 hvarf hann þaðan á brott og gerðist stýrimaður og síðar skipstjóri á strandferðaskipinu „Vestra“ til 1913, en þá tók hann að sér stjórn á öðrum dönskum skip- um í millilandasiglingum. Flutti hann vörur hingað til lands og til Grænlands á stríðsárunum fyrri fram til 1917, er hann lét af sjómennsku og settist að í Reykjavík litlu síðar. Stofnaði hann þá skipamiðlun, fyrstur allra íslendinga, og rak hana til ársins 1932, er hann fluttist til Keflavíkur og hófst þar handa um útgerð, fiskverkun og salt- og kolaverzlun, og var í fyrstu einkaeigandi og seinna formaður stjórnar hlutafélagsins, sem rak starfsemina. Einnig varð hann forstjóri hafskipabryggjunnar þar, afgreiðslumaður Eimskipafél. íslands o. fl. Árið 1944 búsetti hann sig að nýju í Reykjavík og stofnaði þar með öðrum Bygg- ingafélagið Brú og gengdi þar stjórnarstörfum þangað til á s.l. ári, er hann varð að draga sig í hlé, fyrir sakir heilsbrests. Guðmundur var meðal helztu hvata- manna að stofnun hvalveiðifélagsins Hvalur h.f., en fyrir stríð hafði hann verið hluthafi og meðstjórnandi í hvalveiðifélagi á Tálknafirði. Á fyrri dvalarárum sínum í Reykjavík gegndi hann mörgum trúnaðarstörf- um, átti m. a. sæti í sjórétti Reykjavíkur og skipa- skoðun ríkisins, allt frá því er hún var stofnuð árið 1920, var virðingarmaður á skipum og sjósköðum o. s. frv. Mikill atorku- og framfaramaður er hniginn að foldu með Guðmundi Kristjánssyni, eins og framan- skráð brot úr ferli hans gefa lil kynna. Að slíkum mönnum er mikil eftirsjá, ekki sízt þegar með þeim fellur hið góða og gamla, sem nýi tíminn fær ekki bætt. I eftirmælum um Guðm. í Mbl. sagði Kristján Bergsson útgm. (sem síðan er látinn) : „Með Guðmundi er genginn mikill dugnaðar- og mannkostamaður . starfs- samur og velviljaður atorkumaður, bjartsýnn maður, sem lét torfærurnar aldrei standa í vegi fyrir alhöfn- um sínum. Guðmundur var gleðimaður mikill og hrók- ur alls fagnaðar, enda drógust menn mjög að honum og sóttust eftir kunningsskap hans. Jafnan var kátt á heimili hans, en hann var mjög veitull og gestrisinn og hafði mikla nautn af glaðværum félagsskap. — Það var jafnan bjart yfir öllu hans lífi og öllu hans slarfi.“ Guðmundur heitinn var tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Sigríði Guðmundsdóttur, missti hann árið 1929, en seinni konan, Sigurbjörg Vilhjálmsdótlir, lifir mann sinn. Guðmundi varð ekki barna auðið, en átti eina kjördóttur. — Hann var sæmdur riddarakrossi Fálka- orðunnar árið 1930 fyrir margháttuð brautryðjenda- störf í atvinnumálum. FRJÁLSVERZLUN 77

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.