Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 24

Frjáls verslun - 01.05.1949, Blaðsíða 24
Gunnar Ólafsson kaupm. og útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum varð áttatíu og fimm ára 18. febr. þ. á. — Hann er löngu þjóð- kunnur athafnamaður og persónuleiki, og hefur nú fyrir skemmstu aukiÖ frægðarorð sitt með all- stórri minningabók, sem tekur yfir fyrra helming ævi hans, allt til þess er hann flutti til Vestmanna- eyja fyrir u. þ. b. fjórum áratugum. (Hefur þeirrar bókar verið áður að góðu getið hér í blaðinu). Gunn- ar er Rangæingur að ætterni, en hefur á fullorðins- árum sínum lengstum unnið lífsstarfið í Reykjavík, Vík í Mýrdal og svo Eyjum, sem hafa fengiÖ lang- ríflegastan skammtinn af starfsorku hans. í Reykjavík og Vík gegngdi Gunnar verzlunarstörfum í næstum þrjátíu ár, og síðasta þriðjung þess tíma var hann verzlunarstjóri við Brydesverzlun í Vík. Árið áður en hann fluttist búferlum til Eyja var hann kjörinn á Alþing sem þingfulltrúi Vestur-Skaftfellinga, og sat hann á þingi árin 1908—11. Seinna, árið 1926, var hann aftur á Alþingi sem landkjörinn þingmaður. — Langstærsti liðurinn í starfsævi Gunnars Ólafsson- ar er kaupsýsla hans og útgerð í Vestmannaeyjum, sem ber nafn hans, enda þótt hann hafi rekið fyrir- tækið í félagi við aðra. Sjálfur hefur Gunnar stjórnað þessu gríðarstóra fyrirtæki frá því fyrsta, og enn stend- ur hann, hálfníræður öldungurinn, í stórræðum, karl- mannlegur, hressilegur og ráðsnjall að vanda, ein- beittur og opinskár, af því að hann þarf ekki að skammast sín fyrir neilt og ekkert að fela. Það fer vel á því að Gunnar Ólafsson, þessi klettur úr hafinu, skuli hafa valið sér bólstað á Tanganum í Vestmanna- eyjum. Á þann hátt er siglingaleiðin inn til hafnar- innar greinilega merkt með björgum á báðar hendur, og má ekki á milli sjá hvor tignarlegri er á sína vísu, hann eða Heimaklettur. Við skulum vona að boðaföll tímans brjóti ekki „Tangaklett“ niður fyrr en seint og um síðir. 68 Hjalti Jónsson fram- kvœmdastjóri og útgerðar- maður m. m. varð áttræður 15 apr. s.l. — Hann er fæddur á Fossi í Mýrdal, ólst þar upp með foreldr- um sínum til 13 ára ald- urs, en sá sjálfum sér far- borða eftir það. Nítján ára gamall fór hann til Vestmannaeyja og átti þar heima til 1895. Fékkst hann þar við sjómennsku, þ. á m. formennsku, bjargsig o. fl. Á þeim árum, eða nánar til tekið 30. maí 1894, vann hann þá dirfsku- fullu þrekraun, ásamt tveim mönnum öðrum, að klífa hinn þverhnípta hamar Eldeyjar út af Reykjanesi, og hafa ekki fyrri farið sögur af mannaferðum þangað upp. Hefur hann síðan oft í daglegu tali verið nefndur Eldeyjar-Hjalti, enda tók Guðmundur Hagah'n þann titil á bók sína, sem hefur að geyma ævisögu Hjalta Jónssonar, sagðri fyrir af söguhetjunni sjálfri. — Eft- ir vistina í Eyjum fór Hjalti í Stýrimannaskólann og lauk þaðan prófi árið 1899. Gerðist hann nú skip- stjóri á þilskipum og togurum, sem voru nýsköpunar- tæki þeirra tíma, tók mikinn þátt í öflun þeirra og útgerð, varð forgöngumaður um stofnun Fiskveiða- hlutafélags Islands og skipstjóri í þjónustu þess. Síð- an lét hann af sjómennskunni og gerðist framkvæmda- stjóri ýmissa útgerðar- og kaupsýslufyrirtækja, þ. á m. h.f. Kol og Salt um sex ára skeið, og má geta þess að kolakraninn í Reykjavík var reistur fyrir atbeina hans og var hann í þann tíð voldugasti krani á Norð- urlöndum. Seinna beitti Hjalti sér fyrir stofnun vél- smiðjunnar Hamars, og má óhikað segja, að hann hafi verið máttarstjólpi þess fyrirtækis allt til þessa dags, enda ávallt beinlínis unnið í þágu þess. Hjalti Jónsson er í tölu hinna mestu forvígismanna „endurreisnartímabilsins“ á íslandi. Handbrögð hans í hinu unga atvinnulífi íslendinga eru fullkomlega sambærileg við „renaissansinn“ í Rómaríki forðum, hvorttveggja er jafn glampandi af áræði, bjartsýni eldmóði og tíguleik, sem ekkert fær staðið gegn, hvorki FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.