Frjáls verslun - 01.04.1953, Blaðsíða 21
pélagsm
Framhaldsaðalfundur V.R.
Framhaldsaðalfundur félagsins var haldinn mánu-
daginn 27. apríl s.l. í Sjálfstæðishúsinu. Aðaldag-
skrárefni þessa fundar voru lagabreytingar, en aðal-
fundurinn 12. nóv. s.l. náði ekki að afgreiða þær og
var þeim vísað til framhaldsaðalfundar.
Pétur Sæmundsen flutti breytingartillögur stjórn-
ar V.R. við þær tillögur til breytingar á lögum félags-
ins, er lágu fyrir siðasta aðalfundi.
Kvað flutningsmaður stjórn V.R. telja brýna nauð-
syn á, að félagið gengi í Alþýðusamband íslands, og
kvað meginatriði þeirra lagabreytinga, er stjórnin
stæði að, miða að því að svo gæti orðið.
Talsverðar umræður urðu um sumar breytingatil-
lögur stjórnar V.R., og komu fram tillögur til breyt-
ingar við þær, en þær voru allar felldar.
Breytingartillögur stjórnar V. R. voru allar sam-
þykktar, að undanskilinni einni, er var felld með litl-
um atkvæðamun.
Gjaldkeri félagsins, Pétur Sæmundsen, flutti tillögu
um ársgjald félagsmanna. Lagði hann til, að ársgjald
karla yrði kr. 100,00, en kvenna kr. 50,00. Tillaga
þessi var felld með 43 atkvæðum gegn 39. Kom þá
fram tillaga um, að ársgjald karla yrði kr. 80,00 og
kvenna kr. 40,00, og var hún samþykkt.
1 fundarlok kvaddi Ragnar Ólafsson sér hljóðs og
óskaði eftir, að stjórn V.R. boðaði til fundar, þar sem
rætt yrði hið breytla viðhorf í verzlunarmálunum, sem
skapast hefur við stofnun hinna mörgu pöntunar-
félaga.
Fundi var slitið nær hálfri stundu eflir miðnætti.
•
ASalfundur Félags matvörukaupmanna í Reykjavík
var haldinn 20. apríl s.l. í stjórn félagsins voru kosn-
ir: Guðmundur Guðjónsson, er nú var kosinn formað-
ur í 19. sinn, Sigurliði Kristjánsson, Axel Sigurgeirs-
son, Björgvin Jónsson og Lúðvík Þorgeirsson. í vara-
stjórn voru kosnir: Gústaf Kristjánsson, Kristján Jóns-
son og Pétur Kristjánsson.
Félagið varð 25 ára hinn 28. apríl s.l. og var þess
minnzt með hófi í Tjarnarkaffi. I tilefni afmælisins
og fyrir vel unnin störf, voru þeir Ólafur Jóhannes-
son, er var helzti forgöngumaður að stofnun félags-
lögum.
ASalfundur Sambands smásöluverzlana var haldinn
29. apríl s.l. Eru nú 10 sérgreinafélög með nær 400
verzlanir innan vébanda samtakanna. Formaður sam-
bandsins var endurkosinn Jón Helgason, svo og vara-
formaður Kristján Jónsson og gjaldkeri Páll Sæ-
mundsson.
•
Félag íslenzkra stórkaupmanna átti 25 ára afmæli
21. maí s.l. Félagatalan er nú 120, og eru flestir stór-
'kaupmenn liér á landi í félaginu. Félagið var í upp-
hafi stofnað til að gæta hagsmuna félagsmanna sinna
og hefur það sinnt því hlutverki æ síðan. Félagið
starfrækir skrifstofu hér í bæ og veitir Einar Ás-
mundsson, hrlm., henni forstöðu.
Formennsku í félaginu liafa gegnt í þau 25 ár, er
það hefur starfað, þeir Arent Claessen, Eggert Krist-
jánssón, Egill Guttormsson, og nú síðast Karl Þor-
steins. Auk Karls eiga sæti í núverandi stjórn: Páll
Þorgeirsson, Björn Snæbjörnsson, Guido Bernliöft og
Sveinn Helgason. í FRJÁLSRI VERZLUN, 5, hefti
1948, er saga félagsins fyrstu 20 árin rakin nánar.
•
Aðalfundur Verzlunarráðs ísla.nds var haldinn dag-
ana 28. og 29. maí s.l. Hin nýkjörna stjórn ráðsins er
þannig skipuð: Fulltrúar tilnefndir af sérgreinafélög-
um kaupsýslumanna: Eggert Kristjánsson, Egill Gutt-
ormsson, Hans R. Þórðarson, Isleifur Jónsson, Jón
Bergsson, Karl Þorsteins, Páll Sæmundsson og Stef-
án Thorarensen.
Kjörnir fulltrúar í Reykjavík og Hafnarfirði■. Guð-
mundur Guðjónsson, Hjörtur Jónsson, Magnús J.
Brynjólfsson, Othar Ellingsen, Sigurður B. Sigurðs-
son og Sveinn Guðmundsson.
Kjörnir fulltrúar annars staðar af landinu: Gestur
Jóhannsson, Seyðisfirði, Sigurður Ágústsson, Stykkis-
'hólmi og Tómas Björnsson, Akureyri. Framkvæmda-
stjórn ráðsins er þannig skipuð: Eggert Kristjánsson,
formaður, Sigurður Ágústsson, varaformaður, Hjört-
ur Jón^son, ísleifur Jónsson, Karl Þorsteins, Othar
Ellingsen og Tómas Björnsson, Akureyri.
FRJÁtLS VERZLUN
53