Frjáls verslun - 01.09.1968, Qupperneq 39
FRJÁLS VERZLUN
39
BANKAMÁL
ATHYGLISVERDAR NYJUNGAR i
STARFSEMI ÚTVEGSBANKANS
„Áherzla lögð á aukna og bœtta þjónustu," segir Reynir Jónasson skrifstoíustjóri.
Útvegsbanki íslands hefur á síð-
ustu mánuðum tekið upp þrjá nýja
þætti í starfsemi sinni, sem vakið
hafa athygli og átt miklum vin-
sældum að fagna. Hér er um að
ræða Launareikninga, Gíró-þjón-
ustu og innlenda ferðatékka og eru
tveir síðastnefndu þættirnir alger
nýjung í íslenzkum bankamálum.
F. V. hitti Reyni Jónasson skrif-
stofustjóra Útvegsbankans að máli
og varð hann góðfúslega við beiðni
blaðsins um að skýra hina nýju
starfsemi.
F. V. Hvernig hefur innlendu
ferðatékkunum verið tekið?
Reynir: Alveg skínandi vel. Al-
menningur virðist hafa kunnað
vel að meta þá. Fólk þarf auðvit-
að nokkurn tíma til að kynnast
svona nýjungum og gera sér
grein fyrir gildi þeirra. Erlendir
ferðatékkar hafa alltaf verið tald-
ir ómissandi við ferðalög erlendis,
en einhvern veginn hefur mönnum
aldrei dottið í hug að innlendir
ferðatékkar ættu sama rétt á sér.
Allir, sem ferðast um landið, vita,
að það þarf mikla peninga til
þeirra ferðalaga, og það er tals-
verð áhætta að vera með stórar
fjárfúlgur lausar. Nú, einnig er oft
erfitt fyrir menn að selja ávísanir
á hinum og þessum stöðum. Þarna
leysa ferðatékkarnir vandann.
Tékkarnir eru keyptir í bankan-
um og þannig tryggt að innistæða
er fyrir þeim. Þegar fólk svo þarf
á lausafé að halda, getur það selt
tékkann, hvar sem er, og losnar
því við alla áhættu. Glatist ferða-
tékki, endurgreiðir bankinn hann
eftir 2—3 mánuði. Ferðatékkarnir
hafa verið í umferð í rúma
tvo mánuði og hafa selzt fyrir
milljónir, sem sýnir, að hér var
þörf nýjung á ferð.
F. V.: Er einhver kostnaður við
að fá ferðatékka?
Reynir Jónasson.
Reynir: Það er aðeins um 1%,
sem er tæplega fyrir prentun-
arkostnaði. Ef maður kaupir
10.000,00 kr. í ferðatékkum, greið-
ir hann þá upphæð og kr. 100,00
í kostnað. Hér er aðeins um þjón-
ustu að ræða, en ekki hagnaðar-
sjónarmið.
F. V.: Eru ferðatékkar tryggur
gjaldmiðill?
Reynir: Frágangur þeirra er
þannig — eftir beztu erlendu fyrir-
myndum —, að nærri því útilokað
er að falsa þá. Hver maður skrif-
ar nafn sitt eigin hendi á ferða-
tékkann að bankastarfsmanni
áhorfandi, þegar hann tekur við
honum í bankanum gegn stað-
greiðslu, eins og áður segir. Hann
skrifar nafn sitt í annað skipti í
viðurvist viðtakanda, þegar hann
framselur hann. Viðtakandi geng-
ur úr skugga um, að þar sé um
sömu undirskrift að ræða. Ferða-
tækkarnir eru síðan innleystir
viðstöðulaust í Útvegsbankanum
og útibúum hans um land allt.
F. V.: Launareikningar eru önn-
ur nýjung í starfsemi bankans.
Reynir: Já, og hún á vaxandi
vinsældum að fagna. Hér er um
að ræða gerbreytingu á fyrirkomu-
lagi og starfsháttum í sambandi
við útborgun vinnulauna, sem hef-
ur í för með sér mikla hagræð-
ingu jafnt fyrir launþega og vinnu-
veitendur. Breytingin er í því
fólgin, að launin eru nú greidd
inn á launareikning launþegans í
banka í stað þess að telja þau í
peningum í launaumslög. Fyrir-
komulag þetta hefur rutt sér æ
meir til rúms á undanförnum ár-
um í nágrannalöndum okkar, sér-
staklega á Norðurlöndum og t. d.
fá nú um 400 þús. launþegar í
Danmörku laun sín greidd á þenn-
an hátt.
F. V.: Hvernig hefur þessu ver-
ið tekið hér og hverjir eru helztu
kostir þessa fyrirkomulags?
Reynir: Árangur af kynningar-
herferð okkar undanfarna mán-
uði hefur borið mjög góðan ár-
angur og hafa þegar hundruð að-