Frjáls verslun - 01.09.1968, Side 40
40
FRJALS VERZLUN
ila haft samband við okkur og
margir stofnað reikning. Launa-
reikningar auðvelda einstakling-
um að hafa dagleg útgjöld sín í
röð og reglu. Þeir auðvelda þeim
einnig allt yfirlit um fjárhag og
afkomu og geta auk þess örvað
menn til sparnaðar í því skyni að
eignast eigulega muni. Að því er
snertir atvinnufyrirtækið sjálft,
auðvelda launareikningar alla
starfshætti á skrifstofum þeirra í
sambandi við launagreiðslur. í
þessu er augljós vinnuhagræðing,
sem hlýtur að vera báðum aðilurr.
mjög í hag, jafnframt því sem
fyrirtækið bætir samkeppnisað-
stöðu sína og tryggir rekstrar-
grundvöll. Þeir, sem fyrirtæki
reka, vita, hve tímafrekt er að
senda eftir peningum á hverjum
útborgunardegi, og telja og end-
urtelja í launaumslögin og hafa
eftirlit með kvittunum allra laun-
þega. Þar við bætist svo masið við
að geyma umslög þeirra, sem fjar-
verandi kunna að vera á útborg-
unardegi. Allt þetta er úr sögunni,
ef launareikningar eru notaðir,
auk þess sem engin hætta er á,
að laun glatist eða sé stolið, áður
en þau komast í réttar hendur.
F. V.: Og þá komum við að
þriðju nýjunginni, Gíró-þjónust-
unni. Hvað er Gíró-þjónusta?
Reynir: Gíró-þjónusta er ein-
falt kerfi til að flytja peninga
milli einstaklinga eða einstakl-
inga og fyrirtækja án teljandi
fyrirhafnar. Við getum þessu til
skýringar tekið dæmi um mann.
sem biður launagreiðanda sinn
um að leggja launin eða hluta af
þeim inn á Gíró-reikning. Síðan
fyllir viðkomandi út beiðni hjá
bankanum um, að hann annist úr
reikningi þessum allar fastar
greiðslur, t. d. rafmagn, síma,
skatta, húsaleigu, afborganir,
tryggingargjöld o. s. frv. Þannig
losnar viðkomandi við öll hlaup
og útilokar öll óþægindi og auka-
kostnað, sem hlotizt geta, ef af
einhverjum ástæðum dráttur verð-
ur á greiðslum. í stuttu máli; við-
komandi lætur bankann vinna
fyrir sig jafnframt því, sem bank-
inn greiðir vexti af innistæðunni.
Öllum mönnum stendur Gíró-
þjónustan til boða, en hún er alls-
herj arinnheimtufyrirkomulag fyr-
ir einstaklinga og fyrirtæki. Síð-
an getur viðskiptavinurinn auðvit-
að tekið út peninga til daglegra
útgjalda, og lagt afganginn inn á
almenna sparisjóðsbók og þannig
myndað varasjóð með hærri vöxt-
um. Gíró-þjónustan er því ein-
falt og öruggt kerfi til flutninga
á fjármunum. Því fleiri sem nota
gírókerfi, því auðveldara verður
það í framkvæmd, því þá gerist
þetta með einfaldri millifærslu
milli viðskiptavina á milli reikn-
inga. Gíróhafi getur t. d. fengið
yfirlit yfir hreyfingar á reikning-
um, hvenær sem hann óskar, og
þannig fengið gott yfirlit yfir fjár-
reiður sínar. Þeir sem hafa slíka
reikninga í bankanum að stað-
aldri, mega vænta meiri fyrir-
greiðslu en aðrir.
F. V.: Hvað þýðir þetta í raun
og veru?
Reynir: Við skulum taka til
dæmis ungan mann, sem hefur
haft slíkan reikning í bankanum
og sýnt að hann er áreiðanlegur
viðskiptavinur. Þegar að því kem-
ur, að þessi ungi maður gengur í
hjónaband og fer að byggja upp
sína framtíð, má hann að öllu
jöfnu eiga von á góðri fyrir-
greiðslu hjá bankanum í sam-
bandi við lán og annað slíkt.
F. V.: Hvernig geta fyrirtæki
notfært sér gíróþjónustuna?
Reynir: Gírókerfi þykir full-
komnasta innheimtu- og greiðslu-
kerfi, sem þekkist, og ekki sízt
fyrir fyrirtæki, sem geta bókstaf-
lega látið allar sínar greiðslur fara
í gegnum Gíróreikning. — Það má
taka það fram, að þetta gæti spar-
að mannahald hjá fyrirtækjum.
F. V.: Oft er talað um það, að
bankarnir driti niður útibúum út
um allt og kosti til þess stórfé.
Hvað viljið þér segja um þetta?
Reynir: Mikill fjöldi íbúa Stór-
Reykjavíkur býr nú í úthverfum
borgarinnar og sú þróun, að fólk
flytjist úr miðborginni heldur
hraðbyri áfram. Krafa þessara
viðskiptavina er að geta haft
fullkomna bankaþjónustu eins ná-
lægt sér og unnt er. Þessa þjón-
ustukröfu uppfyllir bankinn með
því að setja á stofn útibú í hinum
mörgu úthverfum. Kostnaður við
starfsmannahald eykst ekki mikið,
því að starfsmenn í smærri úti-
búum okkar eru fáir.
F. V.: Er eitthvað á döfinni hjá
ykkur?
Reynir: Já, með viðbótarhús-
næði að Laugavegi 105 og stofnun
útibúsins í Kópavogi og væntan-
legs útibús að Grensásvegi 12 var
farið út í það að hafa alhliða
bankaviðskipti í öllum okkar úti-
búum. Útibúið að Grensásvegi 12
Aðalbankinn í hjarta borgarinnar.