Frjáls verslun - 01.09.1968, Qupperneq 50
50
FRJÁLS VERZLUN
frá
ritstjórn
HVAR ER GRÓÐI VERZLUNARINNAR ?
Vissir stjórnmálamenn tala ávallt um óhóf-
legan verzlunargróða, ríku kaupmennina og
grósserana. Það er fastur kapítuli í hverri
þeirra ræðu, hvernig sem á stendur. Og það
endurtók sig í vantraustsumræðunum á dögun-
um.
Og á hverju hefur svo verzlunin grætt nú
s.l. ár, spyrja menn. Álagningin hefur verið
skert samtímis því, sem kostnaður hefur auk-
izt. Tvennar gengisfellingar nema um 50%, en
hins vegar er óheimilt að selja vöruna á end-
urkaupsverði. Jafnframt hefur þrengzt um
rekstrarlán. Allt þetta hlýtur að sniða verzlun-
inni svo þröngan stakk, að hún fær naumast
undir risið um sinn og alls ekki til langframa.
Þannig lítur dæmið út frá sjónarhóli Frjálsr-
ar verzlunar. Hins vegar væri vitaskuld fróð-
legt að sjá, hvernig forsvarsmenn KRON eða
SlS settu það upp. Og þó. Auðvitað fer Lúðvík
Jósefsson vísvitandi með ósannindi, er hann
talar um gróða verzlunarinnar á þessum síð-
ustu tímum. Einungis í því skyni að ala á öfund
og illindum.
Frjáls verzlun hlýtur að fordæma slík vinnu-
brögð. Það er hagur sérhvers Islendings, að
heilbrigðir verzlunarhættir fái að þróazt í land-
inu. Sleggjudómar og rangfærslur eru sízt fall-
in til að stuðla að því, að svo verði.
ATVINNUVEGIRNIR RETTI UR KUTNUM
Nokkuð er nú iiðið frá gengisfellingunni.
Óneitanlega kom það illa við menn, hversu
mikil hún var. Þó virðist sem allur almenning-
ur sætti sig við hana. Engum dylst, að þjóðar-
búið hefur orðið fyrir skakkaföllum.
Svo virðist einnig, að flestir utan Alþingis
geri sér ljóst, að ekkert þjóðfélag getur borið
helmingslækkun á útflutningstekjum, án þess
að það snerti hvern einasta mann i landinu.
Kakan, sem var til skipta, hefur minnkað. Það
er allt og sumt.
Þess vegna veltur mikið á, að vinnufriður
haldist. Atvinnuvegirnir hafa verið reknir með
tapi s.l. ár, en nú verða þeir að rétta úr kútnum.
Hinir lægstlaunuðu búa við rý'rust kjörin, er
réttilega bent á. Það breytir þó ekki þeirri stað-
reynd, að þeirra hagur verður á enga lund
betri, heldur þvert á móti á alla lund verri, ef
áhrif gengislækkunarinnar verða eyðilögð.
Þessi einföldu sannindi eru lýðum ljós. Þess
vegna eru menn nú kviðnir yfir því, sem fram-
undan er. Ekki sízt þar sem Alþýðubandalags-
menn eru nú að byrja nýja refskák innan
verkalýðsfélaganna til að reyna að koma í veg
fyrir, að Björn Jónsson verði forseti ASl. Enn
sem fyrr á að tefla hinum lægst launuðu fram,
fórna þeim.