Frjáls verslun - 01.02.1979, Blaðsíða 22
Nýr kaupendahópur
„Besti sölutíminn á notuðum bíl er á vorin, þá fer
salan upp og nær hámarki í júlí og þá helst salan
stöðug fram á haust. Verðið lækkar þá aftur og er í
lágmarki á veturna, enda er eftirspurnin þá mun
minni. En framboð og eftirspurn ráða verðinu að
verulegu leyti. Verðsveiflurnar á bílamarkaðnum eru
bundnar árstíðunum og svo má ekki gleyma verð-
bólgunni sem hækkar verðið stöðugt."
Þannig komst Halldór Snorrason í Aðal-bílasölunni
að oröi um besta sölutíma notaðra bíla.
Hann sagði að bestu sölubílarnir væru bílar eins og
til dæmis Volvo, Honda, Toyota, Mazda og Saab.
Einnig amerískir bílar, sem eru þeir bílar er ungir
menn sækjast mjög eftir. Hann sagði að amerískir
bílar, árgerðir frá 1969-1974, væru að verða eftirsóttir
um allan heim og þá ekki síst spyrnubílar sem mikiö
væri búið að vinna við og lagfæra. Þá hefur Lada
unnið mjög á og selst vel að sögn Halldórs.
„Annars eru yngri árgerðir almennt vinsælar, þá
ekki síst í fyrrnefndum tegundum sem auðvelt er að
selja, enda eru þeir góð fjárfesting", sagði Halldór.
60 þúsund umskráningar árlega
Um ástæður hinna gróskumiklu bílaviðskipta hér-
lendis sagði Halldór að margt kæmi til. Algengt er að
menn kaupi nýja bíla til að tryggja sig gegn veró-
bólgunni til dæmis þegar gengisfelling er í aðsigi eöa
stórkostlegar verðhækkanir. Stundum komast menn
að raun um aö bíllinn sem keyptur var í þessu skyni er
ekki það sem eigandann dreymdi um og þess vegna
er hann seldur, þá einatt mjög lítið ekinn. „Það virðist
oft sem lítil fyrirhyggja sé hjá mörgum í kaupum á
nýjum bílum", sagði Halldór.
Um stærð markaðarins tiltók Halldór að nýlega
hefði komið fram að árlega væru um 60 þúsund um-
skráningar hérlendis á hverju ári. „Ef við reiknum
meö aö bílasölurnar séu opnar 20 daga í mánuði, er
ekki fjarri lagi að meðalsalan sé um 3 bílar á dag á
venjulegri bílasölu. Salan getur farið allt upp í 12 bíla á
dag yfir sumartímann og svo aftur niður í einn til tvo,
eða jafnvel engan, á veturna. Sölulaunin eru 2% af
verði hvers bíls, þannig að þarna er um stórar upp-
hæðir að ræða‘‘, sagði Halldór. „Velta bílasölu getur
farið í milljarð á ári og þarf ekki feikilega stóra sölu til
þess."
„Bíllinn er
„Ástæða aukinna bílaviðskipta er fyrst og fremst
sú, að geta manna til þess að standa í stærri fjár-
festingum svo sem kaupum á húsum og íbúðum fer
dalandi. Þess vegna færa menn sig niður á næsta
áhuga- og getusvið með fjárfestingar sínar. Segja má
að bíllinn sé orðinn nokkurs konar vaxtaaukalán sem
menn binda allt sitt lausafé í“, sagði Haukur R.
Hauksson í bílasölunni Braut.
Haukur sagði að bílamarkaðurinn skiptist í öilum
meginatriðum í tvennt. í efri „klassa" væri hinn
dæmigerði efnamaður og þar bæri Volvo af í sölu,
einnig millistærðir amerískra bíla eins og Chevrolet
Malibu o.fl. Hins vegar væru svo ungir menn sem
gjarnan hafa nýlokið húsbyggingu og þeir kaupa
aðallega árgerðir 1974-76. „Segja má að japönsku
bilarnir séu ríkjandi á markaðnum", sagði Haukur.
„Þar á ég við millistærðir eins og Mözdu 616 og Toy-
otu Garina. Dæmigert verð á slíkum bíl er á bilinu 17
hundruð þúsund til 3 milljónir. Ég gæti trúað því að
japanskir bílar væru orðnir allt að 60% markaðarins
og þess má geta að nú eru miklar kröfur gerðar um
útlit og litaval. Þar kemur meðal annars til að konan er
orðin hinn ráðandi aðili í bílakaupunum."
„Bflasölumar verða færri og stærri með vaxandi kröfum um inni-
Halldór í Aðalbílasölunni.