Frjáls verslun - 01.02.1979, Síða 32
atvinnulífinu sé hornsteinn þeirra
lífsgæða, sem bandaríska þjóðin
býr við og hvergi séu meiri í heim-
inum, eða eins og einn talsmanna
Anaconda Co. komst að orði, —
við teljum að ungmenni nútildags
séu mötuð á skoðunum andsnún-
um stórviðskiþtum einkaaðila og
við höfum áhuga á að koma stað-
reyndum atvinnulífsins á framfæri í
skólunum. Florida Power & Light
Co. lítur á gagnfræðaskólanema
sem kjósendur og neytendur
morgundagsins og Tomas
Hoþkins, fræðslustjóri fyrirtækis-
ins bætir því við, að þeir hafi áhuga
á að kjósendur framtíðarinnar
skilji hversvegna fyrirtæki þurfi að
reka með ágóða og á hvern hátt sá
ágóði komi neytendum að gagni.
Houston Natural Gas Co. hefur
tekið einna afdregnustu afstöðu til
kynningar á frjálsu framtaki í skól-
um og staðið fyrir kynningum í
fjölmörgum gagnfræðaskólum í
Houston og nágrenni. Auk þess
skiþulagði fyrirtækið ritgerðasam-
keþþni um efnið hagfræði í 23
gagnfræðaskólum og veitti verð-
laun með hlutabréfum fyrirtækis-
ins, en þau voru að samanlögðu
nafnverði 18.500 dollarar. Verð-
launin voru veitt fyrir 4 beztu rit-
gerðirnar.
Aukning fyrirhuguö
á kynningarverkefni.
*
Nú ráðgerir US Chamber of
Commerce að auka við þetta
kynningarverkefni á næstunni
einum þætti í viðbót sem kallast
„Tilbúinn að taka við fyrsta starf-
inu". Að því loknu mun uþþlýsing-
um um árangur verða safnað frá
öllum skólum, sem tekið hafa þátt í
verkefninu og á niðurstöðum
þeirra hyggjast samtökin byggja
endurbætt námsefni um frjálst
framtak í atvinnulífinu.
Launa-
greiðendur
Kynnið yður skipan á
greiðslu orlofsfjár
Samkvæmt reglugerð nr. 161/1973 ber launagreiðend-
um aö gera skil á orlofsfé fyrir 10. hvers mánaðar, vegna
launa næsta mánaöar á undan. Greiðslunni skal fylgja
skilagrein á þar til geróu eyðublaði sem Póstur og sími
gefur út.
Gætið þess sérstaklega að nafnnúmer séu rétt.
Launþegar fá reikningsyfirlit á 3ja mánaóa fresti frá Pósti
og síma. Þaó sýnir hve mikið orlofsfé hefur veriö mót-
tekið þeirra vegna.
Geyma þarf launaseólana til að geta séð hvort rétt upp-
hæð hefur verið greidd inn á orlofsreikninginn.
Við lok orlofsárs fær launþegi senda ávísun á orlofsfé
sitt.
Eyðublöð fást á póststööum og eru þar veittar nánari
upplýsingar.
PÓSTGÍRÓSTOFAN
Ármúla 6, Reykjavík. Sími 86777.
32