Frjáls verslun - 01.02.1979, Page 2
Rætt við Jóhann J. Ólafsson forstjóra
um viðskipti við þýzk útflutningsfyrir-
tæki en fyrirtæki hans, Jóhann Olafsson
& Co. hefur mikilvæg vióskiptasam-
bönd við Vestur-Þýzkaland
Eitt þeirra íslenzku innflutn-
ingsfyrirtækja, sem gert hafa mikil
viðskipti við Þýzkaland um langt
árabil er Jóhann Ólafsson & Co.,
sem nú er til húsa í Sundaborg 43 í
Reykjavík. Af þeim vörum, sem
Jóhann Ólafsson flytur inn frá
Þýzkalandi eru eflaust Osram-
Ijósaperurnar þekktastar en
ýmislegt annað kemur einnig við
sögu.
Frjáls verzlun leitaði upplýsinga
hjá Jóhanni J. Ólafssyni, forstjóra
fyrirtækisins um byrjun þessara
viðskipta og hvernig þau hefðu
þróazt fram á þennan dag. Sagöi
Jóhann að upphafið mætti rekja til
áranna fyrst eftir fyrri heimsstyrj-
öldina eða um 1920, er faðir hans
Jóhann Ólafsson og Björn Arn-
órsson, félagi hans, ráku fyr-
irtækið. Framan af var mest flutt
inn af leirvörum, sérstaklega bús-
áhöldum, en mikil vinna var þá
lögð í að ná umboðum fyrir hin
þýzku fyrirtæki úr höndum
danskra heildsala, sem selt höfðu
hingað til Islands. Var þetta gert í
framhaldi af fullveldisstofnuninni,
og nutu fslendingar þess nokkuð
að á þessum árum voru litlir kær-
leikar með Dönum og Þjóðverjum
vegna ágreinings um yfirráð yfir
Schleswig-Holstein svæðinu á
landamærum ríkja þeirra.
Helztu viðskiptasambönd
Viðskiptin blómguðust síðan á
millistríðsárunum en í seinni
heimsstyrjöldinni lágu þau eöli-
lega alveg niðri og það tók nokk-
urn tíma eftir að styrjöldinni lauk
að endurvekja þau. Má segja að
viðskiptin hafi ekki hafizt aftur fyrr
en 1948-50 og þá viö fyrirtæki í
Vestur-Þýzkalandi. Ýmis ný sam-
bönd komu þá til sögunnar og
hefur þeim verið haldið við síðan.
Af þeim er Osram mikilvægast en
af öðrum þýðingarmiklum má
nefna Hella, sem selur varahluti í
bifreiðar og Kalle, sem er angi út
úr Hoechst-samsteyþunni, en þaö
framleiðir Ijósnæmar plötur fyrir
offsetprentun. Þessi framleiðsla
olli nokkrum þáttaskilum í offset-
prentun hérlendis, því að áður
voru Ijósnæmar prentþlötur húð-
aðar hér innanlands og var það
seinleg aðferð og dýr.
Jóhann var spurður hvort Os-
ram-ljósaperur væru ekki yfir-
gnæfandi á markaðnum hérlendis.
Sagði hann að svo væri ekki. Hinu
væri ekki að leyna að hlutdeild
Osram væri mikil og sennilega
stærsti hlutinn. Samkeppni væri
aftur á móti geypilega hörð frá
framleiðendum í Englandi, Holl-
andi og Ameríku. Af þeim sökum
væri verð á Ijósaperum hér á landi
líklega lægra en víðast hvar ann-
ars staðar í Evrópu.
Jóhann Ólafsson sagði, að yfir-
leitt væri þægilegt að eiga viðskiþti
við þýzk útflutningsfyrirtæki. Mikil
regla væri á rekstri þeirra að flest
stæði, sem þau segðu. Vörur væru
afgreiddar eins og um væri beðið,
þær væru vandaöar en ef einhver
mistök yrðu, eins og hent gætu
alla, væru þau lagfærð í skyndi.
Það kemur líka á óvart í viðskiptum
við Þjóðverja, að allir starfsmenn
fyrirtækja viröast vinna eins og
þeir eigi þau sjálfir. Áhuginn og
alúöin eru slík, að halda mætti að
eigandinn sjálfur væri að verki.
Sagði Jóhann að í viðskiþtum við
fulltrúa fyrirtækja í öðrum löndum
liti þetta oft þannig út, að skyldum
starfsmanna við fyrirtækin væri
lokið klukkan 5 síðdegis.
Margar kaupstefnur haldnar
Aðspurður um tengslin við
þýzku fyrirtækin, gagnkvæmar
heimsóknir og ferðir á þýzkar
kaupstefnur sagðist Jóhann fara
til Þýzkalands að minnsta kosti
einu sinni á ári. Ekki væri mikið
um heimsóknir Þjóðverja hing-
að og væri það til marks um aö
fyrirtækjunum þætti umboð
standa sig eins og til væri ætlazt.
Þó kæmu fulltrúar fyrirtækjanna
stundum við á íslandi á leið sinni til
Bandaríkjanna. Þýzkaland er mik-
ið kaupstefnuland og sennilega
eitt hið fremsta á því sviði í Evróþu.
Kauþstefnurnar gegna mjög þýð-
ingarmiklu hlutverki í öllum við-
skiþtum við þýzk fyrirtæki. Af þeim
eru sýningar í Frankfurt og Hann-
over einna kunnastar, einnig eru
Köln og Dusseldorf þarna ofarlega
á blaði. Sýningarnar eru oft sér-
staklega skipulagðar með það fyrir
augum að erlendir umboðsmenn
fyrirtækja eigi greiðan aðgang að
fulltrúum þeirra og geti þannig
heimsótt sem flesta sína við-
skiptaaðila á einum og sama stað.
Er þetta mjög hentugt fyrir inn-
flytjendur af íslandi eins og gefur
að skilja, þegar þeir geta hitt full-
52