Frjáls verslun - 01.02.1979, Side 31
búast við að minni eftirspurn verði
eftir flutningum á hinum alþjóð-
lega markaði þannig að hlutur
Flugleiða á N-Atlantshafsleiðinni
fari minnkandi.
Ein ódýrasta fríhöfnin
í Evrópu
Þórður var spurður að því, hve
aðlaðandi verðlagið í Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli væri fyrir
„transif'-farþega, sem heföu að-
gang að fríhöfnum við brottför
vestan hafs eða austan. Hann
sagði að Fríhöfnin væri ein hin
ódýrasta sinnar tegundar í allri
Evrópu, t.d. væri hún langlægst í
verði á vindlingum. Fríhöfnin í
Amsterdam kemur næst henni í
kjaraboðum. Við verðlagningu á
helztu söluvörum eins og áfengi
og tóbaki er tekið tillit til verðsins
hjá samkeppnisaðilum erlendis.
Þeir erlendir flugfarþegar, sem á
annaö borð kæmu inn í verzlunina
og athuguðu verðið, færu þaðan
alla jafna út hlaðnir. Þetta benti
ótvírætt tii þess að verðið væri
hagkvæmt þrátt fyrir þann auka-
kostnað, sem leggst á vörur hér
miöað við aðrar fríhafnir vegna
langra flutninga. Aukin áherzla
verður nú lögð á að fá þá
,,transit“-farþega, sem inn í flug-
stöðina koma til að líta inn í Frí-
höfnina meðan þeir staldra hér
við.
Verðlagningin á áfengi í Frí-
höfninni er ekki látin haldast í
neinu ákveðnu hlutfalli viö verðið
hjá Áfengisverzlun ríkisins. Verð-
hækkanir hjá Fríhöfninni ráðast
aðeins af kostnaðarhækkunum
erlendis, sem endurspeglast einn-
ig í verölagningu annarra fríhafna
og þeirra aðila sem Fríhöfnin á
Keflavíkurflugvelli stendur í sam-
keppni við.
„Gagnvart íslenzka markaðnum
gætum við vissulega hækkaö
verðið miklu oftar en gert er,“
sagði Þóröur, ,,en það er sam-
keppnin við erlendu aðilana sem
ræður ferðinni."
Verðmunur hjá Fríhöfn
og „Ríkinu" mismikill
Áriö 1978 urðu kostnaðarhækk-
anir á áfengi og tóbaki frá nær öll-
um framleiðendum 10—15%
Verðmunur milli Fríhafnarinnar og
Áfengisverzlunarinnar getur verið
mjög misjafnlega mikill. Almenna
reglan er sú að hann eykst Frí-
höfninni í hag eftir því sem teg-
undirnar verða dýrari. ( ódýrum,
léttum vínum er verðlagið hjá
Áfengisverzlun ríkisins yfirleitt
hlutfallslegra hagstæðara.
Algengustu tegundir af skozku
viskíi kosta nú 6,25 dollara og
vodka 4,75 dollara. Við umreikn-
ing í íslenzkar krónur er notað
skráð gengi og 1% vegna banka-
kostnaðar bætt við.
Veislumatur
hvaða nafni
sem hann
nefnist:
Kaldir eða heitir
réttir
Kalt borð
Kabarett
Síldarréttir
Snittur og fl.
Veitingahúsið í
Glæsibæ
Sími: 86220
79