Frjáls verslun - 01.02.1979, Síða 45
Austurísk kvöld og frönsk vika
á Loftleiðum
Mörg undanfarin ár hafa Hótel
Loftleiðir verið með landakynn-
ingar og hvers kyns aðra
skemmtan yfir haust- og vetrar-
mánuðina. Þannig hefur hótelið
haft m.a. egypska viku, ísraelska
viku, finnska viku og búlgarska
viku. I janúarmánuði sungu t.d.
kórar frá Bandaríkjunum í Blóma-
sal, Coe College kór og Top 40.
Bandarísk söngkona, Gloria
Roberts var þar fyrir skemmstu,
haldin var amerísk helgi, með til-
heyrandi amerískum matseðli og
sitthvað í þeim dúr.
Um miðjan febrúarmánuö, var
„Síldarævintýri" á hótelinu, en þá
var á boðstólum síldar- og fiski-
borð frá íslenzkum matvælum í
samvinnu við Hótel Loftleiðir. Var
ýmislegt gert til að ná upp stemn-
ingu síldaráranna, t.d. með því að
skreyta Blómasal myndum frá því
tímabili, hengja upp net og kúlur,
koma fyrir síldartunnu og síðast en
ekki síst bjóða gestunum upp á
fagurlega skreytta og gómsæta
síldar- og fiskirétti eins og myndin
ber með sér.
Alls voru um 20 réttir framleidd-
ur úr síld á boðstólum. Þar að auki
réttir úr laxi, reyktur lax, gravlax og
aðrir fiskiréttir.
Nýlega var haldin búlgörsk vika í
Víkingasal og kom þar fram búlg-
örsk hljómsveit.
Austurrísk kvöld verða dagana
8.—11. mars, og verður þá í sam-
vinnu við Flugleiðir. Austurríkis-
kynning og söngpar skemmtir.
Seinni hluta aprílmánaðar er
fyrirhugað að hafa franska viku í
samvinnu við franska verzlunar-
fulltrúann. Þessa viku verða m.a.
kynntar feröir til Frakklands á
sumri komanda með kvikmynda-
sýningum m.a. Einnig er fyrirhug-
að að kynna franskar vörur, og
verður þá um leiö bílasýning, að
ógleymdu hví, að þessa viku verð-
ur framreiddur franskur matur og
lagar matinn ekki ómerkari maður
en skólastjóri franska kokkaskól-
ans í París. Hingað kemur einnig
dansflokkur frá Frakklandi,
French Provence, sýndur verður
látbragðsleikur og can-can dansar
og auk þess syngur frönsk söng-
kona á hótelinu.
Einnig er fyrirhugaö að halda
tískusýningar og herrakvöld með
skemmtiatriðum. Sagði Emil Guð-
mundsson, aðstoðarhótelstjóri á
Hótel Loftleiöum, að það hefði
sýnt sig að skemmtikvöld og
kynningar sem hótelið hefur
staðið fyrir undanfarin ár hefðu
gefist mjög vel. Þegar sumartíminn
nálgast eða frá apríl og fram í
september gerir hótelið hlé, en þá
taka feröamannastraumurinn og
ráðstefnurnar við.
Frá nýliðnu „síldarævintýri", sem var haldið á Hótel Loftleiðum.
93