Frjáls verslun - 01.07.1985, Side 51
Nýjasta tækni í flutningum. Gámaskip og fullkominn gámakrani
hana Ijósa. Þaö er meöal annars
gert meö fjárhagslegu eftirlits-
kerfi sem viö höfum byggt upp.
Þaö virkar þannig aö árlega er
gerð fjárhagsáætlun sem brotin
er niöur i mánuöi. Yfirmenn ein-
stakra eininga í rekstrinum fá
send mánaðarleg yfirlit um út-
komuna. Þegar ég nefni einingar
þá á ég lika viö hvert skip sem
einingu. Ef þaö bregður verulega
út af því aö fjárhagsáætlun sé
haldin er þaö rætt viö yfirmann
viökomandi einingar og reynt aö
færa málin í betra horf.
Ég sem forstjóri geri ekki mik-
iö af þvi aö skipta mér af fólki
langt niður eftir fyrirtækinu, en
þaö hafa hins vegar allir starfs-
menn fyrirtækisins aögang aö
mér og geta tekið þau mál upp
viö mig sem þeir hafa áhuga á.
Ég tel aö viö höfum náð árangri
meö þeim aðferðum sem viö
notum, enda þótt þvi fari fjarri aö
viö höfum náö þeim áramgri sem
viö vildum ná.
— Þaö hefur oft verið sagt aö
þú sért aö fylla fyrirtækiö af
“sérfræöingum" og hafa einkum
viðskiptafræöingar veriö oröaöir
í þvi tilliti. Hverju svarar þú sliku?
Það er nauösynlegt I jafn stóru
fyrirtæki og Eimskipafélaginu aö
stór hópur háskólamenntaös
fólks sé starfandi. Yfirmanna-
hópurinn hér verður hins vegar
ekki skilgreindur á þessum
grunni, en af um þaö bil 30
manna hópi deildarstjóra og for-
stöðumanna þá hefur um þaö bil
helmingurinn hafiö störf hér siö-
astliðin fimm ár. Þaö er einnig
eitt af hlutverkum okkar að ráöa
ungt fólk og nýta þaö og þjálfa til
ábyrgðarstarfa. Þaö er hins veg-
ar ekkert óeðlilegt viö það, aö
þaö starfi ekki hér allt til æfiloka.
— Telur þú aö islenskum fyr-
irtækjum sé almennt vel stjórn-
að? Ég tel aö íslensk fyrirtæki
hafi i vaxandi máli fært sér i nyt
stjórnunarþekkingu. Þetta er
sérstaklega áberandi í iðnaði og
þjónustugreinum. Jákvæöur
árangur hefur náöst viöa, en þó
er margt enn ólært. Viö getum
almennt náð mun betri árangri i
rekstri og á ég þar bæði viö
einkarekstur og opinberan
rekstur.
— Telur þú aö þátttaka í
stjórnmálum á háskólaárum
komi þér aö gagni í núverandi
starfi? Þaö er enginn vafi á því
aö þátttaka i stúdentapólitik hef-
ur orðið mér aö margvíslegu
gagni. Þaö má einnig segja aö
reynsla sú sem ég hlaut í stjórn-
arráöinu hafi komið mér aö góö-
um notum, enda þótt ég sé mjög
dús við þaö að að hafa ekki
ilengst þar.
— Hver er staðan í alþjóöa-
siglingum almennt aö þinu mati?
Almennt er hún slæm, þó er hún
mismunandi eftir viðfangsefnum.
Alkunna er, aö samdráttur hefur
veriö i alþjóölegum viöskiptum
undanfarin nokkur ár þótt staö-
an hafi aftur snúist viö á árunum
1983 og 1984. Samdráttarárin
voru skipafélögunum mjög erfiö.
Staðan hefur hins vegar haldiö
áfram aö vera slæm, þótt viö-
skiptin hafi aukist siöustu tvö ár.
51