Alþýðublaðið - 30.07.1969, Blaðsíða 3
Alþýðublaðið 30. júlí 1969 3
Hvert ætlarðu
um helgina?
□ Nú fer verzlunarmaimahelgiíi í hönd, en þá nær
sumarumferðin vanalega hámarki úti á þjóðvegum.
Fóik streymir tugþúsundum saman úr þétbýlinu og
út í sveitirnar. Á nokkrum stöðum eru skipulögð
hátíðahöld, og þangað fara væntanlega flestir. Við
skruppum út í gær og spurðum nokkrar ungar mann-
eskjur, sem við hittum á förnum vegi, hvert förinni
væri heitið um helgina. Spurningin var á þessa leið:
Hvert hefur þú hugsað þér að fara um verzlunar-
mannahelgina?
Stefán Stefánsson:
— Ég ætla í Húsafellsskóg,
— Fórstu þangað í fyrri?
— Nei, ég fór í Þórsmörk.
Kristján Thorarensen:
— Ég fer í Húsafell með Stef-
áni.
□ Gríski skipakóngurinn
Aristoteles Onassis gaf Jacqie,
konu sinni, 40 karata demant í
gær, en hún varð þá 40 éra að
aldri. Önnur gjöf, sem hún
fékk voru eyrnalokkar úr gulli
og eðalsteinum. Þeir voru þann-
ig gerðir, að í gullkeðju hanga
tveir rúbínar sem eiga að tákna
jörð og mána, en milli þeirra
var örsmátt líkan af tunglfar-
inu Apollo 11, |
Húsafellsméfið um verzlunarmannahelgina:
Viljum fremur
20000 góða gesti
en 2000 slæma
Stefán Ingólfsson:
— Ætli maður fari ekki eitt-
hvað, en það verður ekki langt
Maður hefur ekki of góða
reynslu af veðrinu
Gyða Brynjólfsdóttir; /
— Ég verð í bænum
Karl Jensson :
’ — Ég verð að vinna um Verzl
unarmannahelgina
— Hvað vinnur þú?
— Ég er barþjónn á Hótel
Loftleiðum
Einar Orn Einarsson:
— Ég ætla mér að fara í
Húsafell — ég fór þangað líka
í fyrra
Guðfinna Helgadóttir:
— Ég ætla í Húsafell með
þremur vinkonum mínum.
Bergþór Bergþórsson:
— Ég ætla út á land ,en ekki
þangað sem fólkið flykkist. Ætii
ég f ari ekki vestur í Bj arkalund
og síðan norður.
Reykjavik — HEH.
□ Húsafellsmótið hefst á laug-
ardag. Þar verður mjög fjöl-
breytt dagskrá sem miðuð er
við hæfi fólks á öllum aldri.
Þær breytingar hafa orðið á
dagskrá mótsins að prófessor
Jón Helgason mun ekki flytja
aðalræðuna þar sem hann sér
sér ekki fært að koma til íslands
á þessum tíma, en í hans stað
mun Bjarni M. Gíslason, sem
einnig er búsettur í Danmörku,
tala á mótinu. Þá var ráðgert,
að rússneskir dansarar skemmtu
á mótinu í Húsafellsskógi, en af
því verður ekki, þar sem þeir
lentu í bílslysi einhversstaðar
í Evrópu fyrir nokkrum dögum.
RÚSSNESKU DANSAR-
ARNIR í BÍLSLYSI
í stað rússnesku dansaranna
mun hollenzkur fjöllistartrúður
skemmta mótsgestum, en hann
heitir Carl Ohlds og leikur m.a.
á klarinettu sög og fleiri verk-
færi. Samvinna hefur tekizt
milii UMSB, sem stendr fyrir
mótinu í Húsafellsskógi um helg
ina, og Loftleiða um ferðalag
Ohlds hingað til lands.
Á Húsafellsmótinu verður
keppt í ýmsum íþróttum. í hand
bolta keppa meistaraflokkslið
FH og Hauka í Hafnarfirði. Þá
gefst mótsgestum kostur á að
horfa á „gullaldarlið1 keppa í
knattspyrnu. Gamlir keppinaut-
ar úr Skallagrími og Ármanni
etja kappi saman í körfuknatt-
leik.
íþróttafólk úr UMSK, HSH
og UMSB tekur þátt í frjáls-
íþróttamótinu. Fer þar fram
bæði keppni í karla- og kvenna
greinum.
TÁNINGAHLJÓM-
SVEITAKEPPNI
í Húsafelli eru sæmilegar að-
stæður til keppni — ágætt tún.
Af dagskrárliðum má nefna,
að Alli Rúts stjórnar keppni sjö
táingahljómsveita sem keppa
um titilinn „Táningahljómsveit
in 1969.“
Mótsgestir og dómnefnd at-
vinnuhljóðfæraleikara munu
dæma um hæfni táningahljóm-
sveitanna. Dómnefndina skipa
Björn R. Einarss., Ingimar Ey-
dal, Gunnar Þórðarson, Karl
Sighvatsson, Jón Múli Árnason
og ef til vill einhverjir fleiri.
Fyrstu verðlaun í hljómsveita
keppninni eru 15.000 krónur.
AÐGANGSEYRIRINN .
400 KRÓNUR
Aðgangseyrir að mótssvæðinu
fyrir allan mótstímann verður
400 krónur fyrir fullorðna og er
það fyrir tjaldstæði og öll
skemmtiatriði. Börn og ungling
ar innan við fermingu sem eru
í fylgd með foreldrum sínum,
fá ókeypis aðgang að mótssvæð
inu. Þess skal getið, að að gangs
eyrir fyrir unglinga, sem koma
í hópferðum í Húsafellsskóg er
400 krónur. Aðgangseyrir fyrir
þá, sem verða þar aðeins yfir
sunnudaginn er 200 krónur.
FÓLK UNDIRBÚI SIG
VEL
Vilhjálmur Einarsson í Reyk-
holti sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, að aldrei væri
nægilega brýnt fyrir fólki að
undirbúa sig nægilega vel, áður
en það færi að heiman á mót
sem þetta. Er ástæða til að
benda fólki á, sem ætlar í Húsa
fellsskóg um helgina, að kaupa
sér bækling með dagskrá móts-
ins og ýmsum ráðleggingum
varðandi útbúnað, sem fæst víða
í söluturnum í Reykjavk og
víða úti um land.
TVÆR S JÚKRAFLUG
VÉLAR
r. . • I
Tveir læknar verða í Húsa-
felisskógi um helgina með vákt
allan sólarhringinn. 2 sjúkra-
flugvélar frá Flugskóla Helga
Jónssonar verða staðsettar við
Húsafell allan mótstímann og
gefst mótsgestum kostur á að
fljúga í sýnisferðir um nágrenn
ið í þeim. Þá verður björgunar-
sveit staðsett við mótssvæðið
þann tíma, sem mótið stendur
yfir.
ÁFENGIÓÞARFUR ;
FÖRUNAUTUR
„Það eina, sem gæti komið í
veg fyrir að þessi mót verði
haldin í framtíðinni í Húsafells
skógi er að mótsgestir misnoti
áfengi á þeim,“ sagði Vilhjálm-
ur Einarsson. Hann sagði enn
fremur, að það væri víðtæk
reynsla fyrir því að algert á-
fengisbann yrði að ríkja á slík
um mótum, þar sem þúsundir
manna söfnuðust saman.
Dagskrá mótsins í Húsáfells-
skógi er undh’búin á þann veg,
að áfengi er algerlega óþarfur
förunautur. j
Frh. á 15. síðu. ;