Fregnir - 01.05.1990, Síða 1
-1-
FRÉTTIR FRÁ NVBF
Undlrrituð sat stjómarfund Nordiska Vetenskapllga Bibllotekarieförbundet
þann 30. aprfl s.l.
Aðaláhersla var lögð á að reka endahnútlnn á sklpulagnlngu og famkvæmd
þlngs samtakanna, sem haldið verður í Linköplng í Sviþjóð dagana 15. - 18.
ágúst 1990. (SJá dagskrá í síðasta tölublaði FREGNA). Fáar umsóknir hðfðu
borist frá íslandi og er full ástæða tll að minna á. að umsóknarfrestur rennur
út þann 15. Júní. Tækifæri gefst á að taka þátt í IFLA þlnginu. sem haldið
verður í Stokkhólmi í belnu framhaldi af þingi NVBF.
Norræni sumarskóllnn 1990 verður haldinn í Kaupmannahöfn og verður að
þessu sinnl fjallað um forvörslu og varðveislu safnefnis, en eyðing pappírs og
annars efnls hefúr orðið bókavörðum aö síauknu áhyggjuefni. Námskeiðið er
ekkl ætlað sérfræðingum, heldur hveijum og einum starfsmannl bókasafna,
sem handleikur bækur, örfilmur, diskltnga og annað það efnl, sem ekki stenst
tímans tönn. (SJá auglýsingu um þetta námskeið í þessu tölublaði FREGNA).
Fulltrúar bókavarðasamtaka Eystrasaltsríkjanna hafa leitað til NVBF um
aðstoð eða ráðgjöf til uppbyggingar rannsóknarbókasafna i löndum sínum.
Ákveðið var að bjóða þjóðbókavörðum þessara landa að sitja ofannefnt þing
NVBF. Auk þess mun aðstoð veitt við að byggja upp safnkost og skipuleggja
verksvið safnanna. Féll sú vinna að mestu í hlut Flnna og Svía.
Rúmenar hafa elnnig farið fram á hjálp. Litil þróun hefur orðið i málefnum
bókasafna i landinu i áratugi. Auk þess brann háskólabókasafnlð í Bukarest i
byijun ársins og neyðin er tilflnnanleg. Fjallað var um, hvemig NVBF gæti best
komlð að notum i tllfellum sem þessum. Norðurlðndin eru vel sett og
tvímælalaust aílögufær. Rúmenar hafa sjálflr stungið upp á að fá að senda fólk
tll Norðurlandanna til að sjá og læra, hvemig bókasöfnin þar virka eða fá
norræna bókaverði til sín.
Kristín Bragadóttlr
SKÓLAVARBAN
Gerð hefur verið lokatilraun til að endurvekja starfsemi Skólavörðunnar
sem er félag um málefni skólasafna. Aðalmarkmið félagsins er að efla íslensk
skólasöfn á öllum stigum skólakerfisins.
Bráðablrgðastjóm Skólavörðunnar skipa Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir,
formaður, Guðrún Eyjólfsdóttir, varaformaður, Helga Skúladóttir, ritari, Þóra
Óskarsdóttir, ritari og María Hrafnsdóttlr, meðstjómandi.
Nýlega er komin út á vegum stjómarinnar SKÓLAVARÐAN, 1. tbl. - maí
1990.