Alþýðublaðið - 06.10.1969, Qupperneq 14
14 Alþýðublaðið 6. cktóber 1969
4.
EFTIR FRANCES 06 J , .
richard lockridge i Smáauglýsmgai*
stUlkan
GULU
KÁPUNNI
hins ítrasta innan fárra klukkustunda....
Reynt upp á líf og dauöa....
— Má ég ekki bjóða þér drykk meðan við bíð-
um eftir Berthu Mason?
— Jú, þakka þér fyrir, gjarnan, sagði Loren. —
En ekkert sterkt handa mér. í svona hita....
— Hvernig væri að reyna Blóðmaríu? Alice fór
fram í eldhús. — Heldurðu, að þú hefðir ekki golt
af því?
— Ég kem alveg, sagði Alice og lokaði á eftir
sér.
Loren litaðist um. Heldur óvistleg stofa, hugsaði
hún. Ópersónuleg eins og hóelherbergi.
Öll íbúðin bar þess einkennilega lítil merki, að búið
væri í henni....Það var engu líkara en íbúarnir
hefðu ekki stigið þar fæti í óratíma.
— Jæja, hér koma þá veigarnar.
Alice bar inn bakka með tveimur háum glösum,
fullum af vodka og tómatsafa.
— Ágætt, sagði Loren.
Hún klæddi sig úr gulu kápunni og lagði hana
yfir bakið á slitnum sófanum. Svo settist hún.
— Eg setti svolítið af Worchestersósu í það,
sagði Alice, setti bæði glösin á lágt teborð fyrir
framan sófann og settist í hægindastól á móti Loren.
Vcnandi bragðast blandan ekki sem verst.
Loren beygði sig fram og greip glasið. Hún bar
það að vörunum.
— Mér finnst hún áreiðanlega prýðileg, sagði
hún. — Skál.
— Já, skál fyrir okkar sæmilegu yskólasetu, svar-
aði Alice Jackson brosandi. — Og fyrir endurfundun-
um.... '
Loren teygaði drykkinn.
Hún fann; að Alice horfði á hana — og andartaki
síðar virtist allt taka furðulegum breytingum. ...
Bros Alice Jackson stirðnaði, og svipurinn vaið
næstum lymskulegur....
Andlitið, þetta ávaia, svipbrigðalausa andlit byrj-
aði að renna út I móðu. .. .
Stofuveggirnir virtust færast út.... En aftur á
móti seig steinloftið niður á við, allaf nær og nær
henni....
— Jæja, Loren, segðu mér nú, hvernig þú héfur
það, hvað þú hefur verið að gera, síðarr við vorum í
skóla.
Röddin virtist berast til Lorenar úr órafjarlægð.
Loren varð hræðilega flökurt sem snöggvast — og
svo var öllu lokið. Bara myrkur og ro....
Fram að þeirri stundu, er hún fann til ógleðinnar,
mundi Loren Hartley eftir öllu.
En eftir það? Hvað hafði gerzt eftir það?
Hvernig hafði hún yfirleitt komizt á þennan bekk
í Bryarrt Park?
Ef til vill hef ég verið drukkin, hugsaði hún, —
kannski hef ég gleymt öllu þess vegna.
Nú var klukkan að verða hálf sex. Um eitt-leytið
hafði hún verið hjá Alcie Jackson. Meira en fjórar
klukkustundir voru þá liðnar, meira en fjórar klukku.
stundir, sem hún hafði alveg misst úr!
Feiti maðurinn sat ennþá á bekknum gegnt henr.i.
Rautt klumbunefið glansaði. í
Loren stóð á fætur. Það þýddi ekkert að sitja '
hérna lengur og hugsa um, hvað gerzt hafði. Það var |
aðeins um eina skýringu að ræða-. sennilega hafði hún
drukkið fullmikið, ekið síðan á skrifstofu frænda síns (
en skipt um skoðun, gengið yfir í skemmtigarðinn
og setzt á bekkinn til að sofa úr sér vímuna.
Óhugsandi, tautaði Loren, algerlega óhugsandi! Slíkt
hefur aldrei nokkurn tímann komið fyrir mig....
Þegar hún gekk framhjá manninum, gaf hún hon- j
um hornauga.
Aftur hafði hún á tilfirrningunni, að hann hefði rétt I
sem snöggvast litið til hennar hálflukum augum....
Loren hélt nú upp í 42. stræti og tók þar strætis-
vagn að Washingontorgi.
Á, leiðinni þangað fór hún enn einu sinni yfir
þetta í huganum.
Hafði Bertha Mason komið til Alice Jackson?
Ef svo var, þá hlaut henni að hafa orðið meira en
lítið um að sjá Loren svona....
Hún fór út úr vagninum og gekk yfir 10. götu í
áttina að húsasamstæðunni, þar sem hún leigði.
Henni leið ennþá herfilega og þráði að komast í
kalt bað.
Þegar hún tók húslykilinn upp úr veskinu sínu,
fann hún samanbrotinn miða.
Loren mundi ekki eftir þessum miða. Hún sléttaði
úr honum. Á honum stóð skrifað símanúmer.
Og undir því með stórum prentstöfum: .J.A
ískalt steypibað og tveir kaffibollar gerðu Loren
aftur kleift að hugsa skýrt.
En eina endurminningin um síðdegisstundirnar var
eitt.. allsherjar tóm.
~ Loren fór í Ijósbláan slopp og hvíta ilskó, síðau
lét hún fallast í stóra rósótta hægindastólinn, greip
símtólið og hringdi til frænda síns í Stamford.
trésmíðaþjónusta
Latið fagmann annast vlðgerðir og vlðhald á tréverki
húseigna yðar, ásamt breytiJigum á nýju og eldra
húsnæði. — Sími 41055.
VOLKSWAGENEIGENDUR!
Höfum fyrirliggja'ndi: Brettl — Hurðir — Vélarlok
— Geymslulok á Volkswagen i allflestum lltum.
Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir á-
kveðið verð. — Reynið viðskiptln.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25,
Símar 19099 og 20988.
NÝÞJÓNUSTA í HEIMAHÚSUM
Tek að mér allar viðgerðir og klæðningar á
bólstruðum húsgögnum í heimhúsum. — Upp
lýsingar í síma 14213 kl. 12—1 og 7—8 á
kvöldin.
AGNAR ÍVARS, húsgagnabólstrari.
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hrein
lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum.
Guðmundur Sigurðsson
Sími 18717
Jarðýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur traktorsgrðf-
ur og bílkrana, tll allra framkvæmda, lnnan og utan
borgarinnar.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Heimasímar 83882 — 33982.
MATUR OG BENSÍN
allan sólarhringinn.
VEITINGASKALINN, Geíthálsl