Alþýðublaðið - 07.10.1969, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 07.10.1969, Qupperneq 5
Alþýð'ublaðið 7. október 1969 5 Alþýðu blaóið Útgefandi: Nýja útgáfufélagið Framkvæmdastjóri: I»órir Sæmundsson Jíitstjórar: Kristján Bersi Ólafsson Sighvctur Björgvinsson (áb.) Ritstjóriarfulltrúi: Sigurjón Jóhannsson Fréttastjóri: VHhelm G. Kristinsson Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson Prentsmiðja Alhýðublaðsins RÆÐA EMILS Eins og skýrt er frá í Alþýðublaðinu í dag flutti Emil Jónsson, utanríkisráðlherra, yfirgripsmikla ræðu á ráðgjafarþingi Evrópuráðsins á fimmtudag- inn var og fjallaði um sjávarútvegsmál á Islandi og sérstöðu landsins meðal fiskivieiðiþjóða við norðan- vert Atlantsháf. Emil ræddi einkum tvö atriði í þessu sambandi, — annars vegar nauðsynina ó aukinni verndun fiski- stofna og hins vegar þörfina fyrir frjálsari viðskipti með fiskafurðir, og þá ekki sízt brýna þörf íslenzku þjóðarinnar á auknu viðskiþtafrelsi á þeim sviðum. Eftir að hafa sýnt glögglega fram á hvert stefndi með gengdarlausri veiði í krafti nýjustu tækni og stóraukins skipaflota á Norðúr-At'lantshafi rökstuddi Emil hVer áhrif slík rányrkja gæti haft á afkomu js- lenzku þjóðarinnar og væri raunar þegar farið að 'gæta til muna minnkaðs afla íslenzka fiskiflötans af þessum sökum. Væri það því sérstakt áhugamál ís- lenzku þjóðarinnar að ríá samkomulagi við nágranna sína um verndun fiskiistofna á þessum slóðum. Hrygningarsvæði og uppeldissvæði fisksins þarf að vernda fuilkomlega, sagði Emil Jónsson. Þau ná nú svo langt frá ströndinni, að 12 mílna mörkin, sem viðurkennd hafa verið í reynd síðan Genfarráðstefn- urnar voru haldnar, ná þar ekki til. íslenzka ríkis- stjórnin hefir marglýst því yfir sem sinni stefnu, að (hún teldi nauðsynlegt að friða allt landgrunnið kring um landið og ég efast ekki um, að þétta verður talið nauðsynlegt í framtíðinni, ef ekki á urrí of að ganga á fiskistofnana. Emil sagði jafnframt, að þó þetta kunni að virðast harðir kostir i bili fyrir þær þjóðir, Sem fiska á fjar- lægum miðum, eru þeir þó vissulega aðgengifegri en 'að uppræta fiskistofnana að öllu óbreyttu. Stjórnarandstöðublöðin fvö, einkum og sér í lagi Tírninn, hafa undanfarnar vikur verið að reyna að gera stefnu ríkisstjómarinnar í landhelgismálunum tortryggilega og telja fólki itrú um, að ríkistjórnin væri horfin frá því að standa vörð um hag!smuni þjóðarinnar á þeim vettvangi. í ræðum Emils Jónsson ar, bæði á alTsberjarþingi SÞ og nú hjá Evrópuráðinu hefur hann gert skorinorða grein fyrir afstöðu ríkis- stjórnarinnar í þessum efnum og hvergi hvikað frá fyrri afstöðu íslendinga. Sú stefna íslenzku ríkisstjórnarinnar að reyna að vinna fylgi vinveittra þjóða við þetta réttlætismál íslendiniga án þess að grípa til einhliða aðgerða fyrr en slíkar leiðir séu þrautkannaðar, á fuTTan rétt á sér. En'dá héfur slíkur málflutningur þegar borið góðan órangur, eins og fram kom í umræðum á þingi Evrópu ráðsins að Tokinni ræðu Emils Jónssonar., ^ Þessi mynd var tekin í sumar eftir að fram hafði farið kjör á fegurð ardrottningu Evrópu. Fyrir valinu varð þessi svissneska stúlka, en það skal tekið fram að sá sem við hli 5 hennar stendur var ekl ,i keppi- nautur. ÞEKKTI EKKI MENN- INA □ Nýlega fór fram í Stokkhólmi mikil ráSstefna, þar sem 40 spekingar og vísindamenn komu saman tii aS ræSa um „framtíSarhorfur mannkynsins“. ÞaS var Nóbels- stofnunin sem stóS fyrir boSinu, en meSal þátttakenda voru menn eins cg brezka skáldiS W. H. Auden, austur- ríski dýrafræSingurinn Konrad Lorenz, bandaríski mann- fræSingurinn Margaret Mead, rithöfundurinn Arthur Koestl ler og ennfremur allmargir nóbelsverSlaunahafar í vísind um. Allt eru þetta frægir menn, en frægSin getur þó náS mislangt. ÞaS fengu þeir aS reyna Auden og Koestier er þeir tóku leigubíl saman meSan á ráSstefnunni stóS. Þeir sögSu bíistjóranum hverjir þeir væru, en hann endur tók skilningssljórri rödd: — Auden og Koestler. Aldrei heyrt þá nefnda! I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.