Alþýðublaðið - 25.10.1969, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 25.10.1969, Blaðsíða 3
Alþýðublaðið 25. október 1969 3 Iðnnemar halda þing □ Reykjavík ÞG. Á 27. þing'i Iðnemasambands íslands, sem sett var í gær og stendur fram á sunnudagskvöld verSur m. a. rætt um Iðn- fræðsluna, kaupgjaldsmál iðn- nema og þjóðmálin almennt. í drögum að ályktunum um iðnfræðsluna segir m. a., að þingið lýsi stuðningi sínum við þá stefnu sem fræðsluyfirvöld hafa tekið upp í verknáms- kennslu við Iðnskólann í Reykjavík. Gerir þingið kröf- ur til þess að iðnfræðsluyfir- völdin komi á raunhæfu iðn- námseftirliti og leggi áherzlu á að iðnnemar gangi ekki at- vinnulausir eins og mikið bar á s.l. vetur. Ennig er lagt til að þingið ÆskylfðsaSsHttð P Reykjavík HEH Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra fylgdi frumvarpi til laga um opinberan stuðning við æskulýðsstarfsemi úr hlaði á Alþingi í gær. í frumvarpinu er gert ráð fyrir stofnun Æsku lýðsráðs ríkisins og sett verði á stofn embætti æskulýðsfull- trúa ríkisins, sem annist fram- kvæmdastjórn Æsltulýðsráðs ríkisins. Lögin skv. frumvarp- inu miðast einkuin við æsku- lýðsstarfsemi fyrir ungmenni á aldrinum 12—20 ára. Áður hefur verið skýrt frá meginefni frumvarpsins liér í Alþýðu- blaðinu. Frumvarpinu var í gær vísað til annarrar umræðu og menntamálanefndar þings- ins. krefjist endurskoðunar á kjaramálum iðnnema, en for- maður IN'SÍ, Sigurður Magnús son, lét þess getið í skýrslu sinni, að engir heildarsamning- ar hafi raunverulega verið í gildi síðan ákvæði um lág- markskaup var fellt út úr iðn fræðslulögunum með tilkomu nýrra iðnfræðslulaga 1966. — Liggur fyrir þinginu ítarleg til laga um kjarasamningana, en þess einnig getið, að framund- an séu viðræður INSÍ og Al- þýðusambands íslands annars vegar en Vinnuveitendasam- bands íslands hins vegar. — SigurSur Magnússon setur Iðn. nemaþingið. Fær Jackie 90 milljóna demant! □ Demantur á stærð við plómu kjarna var seldur á uppboði í New Ýork í gær fyrir 1 millj- ón og 50 þúsund dollara eða rúmar 90 milljónir íslenzkra króna. Þrálátur orðrómur gekk um það í gær, að kaupandinn Markið hækkar 8,5% □ Ríkisstjórn Vestur-Þýzka- lands ákvað í gær að hækka gengi marksins um 8,5 af hundraði. Eftir gengisbreyting una jafngilda 3 mörk og 66 pfenningar einum Bandaríkja- dollar, en eldra gengi var 4 mörk á móti einum dollar. Hið nýja gengi tekur gildi frá og með miðnætti aðfaranótt mánu dags. Þessi gengisbreyting þýð- ir, að vestur-þýzka markið hækkar í verði um 8,5% mið- að við aðra gjaldmiðla, en þeir lækka í verði um 9,29% miðað við vestur-þýzkt mark. — Athugasemd □ í folaðinu í gær var skýrt frá íatasýni-ngu á vegum Ála foss á Hótel Söigu, sem halda á í dag. Vegna misskilnings máitti greina á fréttinni, að hún væri almenningi opin, e nsvo er ekki. Hún er ein- ungis ætluð þeim, sem sér- -stakt iboð fflá um að vera við- sfaddir. Blaðið biðst velvirð. inlgar á þessum mistcikum. væri gríski útgerðarmaðurinn Onassis, sem hafði keypt dem- antinn fyrir konu sína, fyrrver andi forsetafrú Jaqueline Kennedy. Þessi orðrómur hafði ekki fengizt staðfestur í gær- kvöld, en svo mikið var víst að það var ekki leikarinn Ric- hard Burton, sem keypti dem- antinn til að skreyta Eliza- bethu Taylor með; umboðsrriað ur hans hætti að bjóða, þegar komið var upp í milljón doll- ara. Demantur hefur aldrei fyrr verið seldur á jafnháu verði á uppboði og þessi. — KENT Með hinum þekkta Micronite filter er eftirspurðasta ameríska filter sígarettan Umsión: Hallur Símonarson □ Þegar minnzt er á Majorka kemur fyrst í hugann sól, bað strandir, glaumur og gleði og auðvitað eru það þessi atriði, sem draga ferðamenn fyrst og fremst til eyjunnar, en þeir sem þar stjórna málum hafa líka komizt að raun um, að bridgespilið er einnig vænlegt til árangurs á þessu sviði. Og nú er svo komið að árlega er háð á Majorka mikil bridge- keppni, sem verður að teljast ein hin merkasta í heimi, því flestir beztu spilarar Evrópu eru þar árlegir gestir — og Bandaríkjamenn eru einnig farnir að venja þangað komu sína. í keppninni 1967 vakti það athygli, að ítalski heims- meistarinn Belladonna spilaði niður slemmu, sem kostaði hann og félága hans Avarelli efsta sætið í tvímenningskeppn inni þá. Spil Norðurs og Suð- urs voru þannig: S Á9 H D7 T DG10953 L KDG S KD1063 H ÁlOá T Á6 L Á82 Belladonna spilaði sex spaða í Suður og Vestur spilaði út hjarta. Drottning var látin úr blindum, og hún átti slaginn. Belladonna spilaði nú meira hjarta á ásinn og trompaði hjarta í blindum, Austur fylgdi lit. En heimsmeistarinn var nú búinn að tapa spilinu. Hver voru mistök hans? í spilinu hér á eftir náðu Hol- lendingarnir Bob Slavenburg og Boender skemmtilegri vörn og hnekktu þremur gröndum á sama móti. S ÁK98 H Á10965 T Á6 — L 93 S D1075 H D3 T 543 L ÁG104 S G42 H K42 T KG102 L K85 Lokasögnin var þrjú grönd í Suður og Bonder í Vestur spilaði út tígul 5, sem Suður átti heima á tíuna. Hann spil- aði nú hjarta kóng og Vest- ur var fljótur að grípa tæki- færið og kastaði drottningu. Hjarta var spilað áfram og Slavenburg komst inn á gos- ann — og hann var ekki lengi að finna út, að laufa drottning var eina spilið til að hnekkja sögninni. Auðvitað er einfalt fyrir Suður að vinna spilið — með því að láta Vestur vera inni á hjarta D. Og þá er það spilið hans Belladonna. Spilin skiptust þannig: ' S Á9 H D7 T DG10953 L KDG S G S 87542 H KG643 H 982 T K74 T 82 L 10953 L 764 S KD1063 H Á105 .1’ T Á6 .. .. L Á82 »•(• r‘^ S 63 H G87 T D987 L D762 Takið eftir, að ef hjarta kem ur ekki út, hlýtur sagnhafi að taka rétta afstöðu í spilinu. — Hann tekur trompin og gefur einn slag á tígul. Hjartaútspil- ið var því bjarnargreiði. Bella- donna fékk þarna ódýran slag — og greip strax þann mögu- leika að svína tígli, því ef kóngurinn liggur rétt hefur hann efni á að gefa einn slag á tromp. Sem sagt, eftir að hpfa trompað hjarta, spilaði hann spaða ás, og svínaði tígli. Vest ur fékk á kónginn og Austur átti öruggan trompslag. flpil iil i iii ^ Tókuð þið eftir öryggisspil- inu sem heimsmeistarinn átti? — Áður en hann trompaði hj arta gat hann einfaldlega lagt niður spaða ásinn. Þá kem ur tromplegan í ljós — *ogi hann telcur fimm sinnum tromp, áður en tígulslagur er i gefinn. Það var von, að Bella-j donna segði eftir spilið, O, mamma miaH ■ j j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.