Alþýðublaðið - 25.10.1969, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 25.10.1969, Blaðsíða 8
8 Alþýðublaðið 25. október 1969 Allar aðstæöur til að koma upp gríðarstórri hvalalaug hér ■ ■ r ■M 0* I » » f | a | ■ Hrygningartími laxanna er kominn. upplýsingar og leiðbeiningar. laxa í fiskabúri .sædýrasafnsins. Nokkrir hópar skólafólks hafa jafnframt heimsótt okkur í Sædýrasafnið í Hafnarfirði stendur í lítilli vík milli kaup- staðarins og annarrar víkur, sem verið hefur mest í munn landsmanna á undanförnum árum, — Straumsvíkur. Strand lengjan í þessarri litlu vik var áður hulin sjávarsandi en hann hefur allur verið numinn á brott og liggur nú tryggilega inn- múraður í veggi nýrra húsbygg inga á höfuðborgarsvæðinu. í víkinni standa mosavaxnar klappir og á milli þeirra skín enn í hraunið, sem þarna hef- ur hlaupið fram, — svargrátt að lit. Niðri við sjóinn í þessari vík hafa áhugamenn úr Hafnar- firði afgirt um 1600 fermetra svæði og reist þar myndarlegt safn sjávardýra sem margir hafa heimsótt sér til ánægju og fróðleiks á því sumri, sem nú er að líða. Fyrir nokkrum dög- um slógumst við Gunnar Heið- dal, Ijósmyndari Alþýðublaðs- ins, í þann hóp og eftir að við höfðum skoðað safnið undir leiðsögn safnvarðarins, Jón Kr. Gunnarssonar, og Gunnar tek ið sínar myndir, var mér boðið upp á kaffi í gömlu rórhúsi, sem fengið hefur nýtt hlutverk sem aðgöngumiðasala uppi á þurru landi. Þar ræddi ég við Jón Gunnarsson, forstöðumann safnsins, um málefni þess og framtíðaruppbyggingu, en Jón hefur tekið miklu ástfóstri við það starf, sem þarna er unnið og er fullur áhuga og hug- mynda um framtíðarverkefni þeirra safnmanna. — Hugmyndin að því, að setja hér upp sædýrasafn fædd ist raunar þegar hjálparsveit skáta í Hafnarfirði setti á fót fiskasýningu í fjáröflunarskyni árið 1964, sagði Jón Gunnars- son. Þessa sýningu sóttu yfir 26.000 manns og var henni miklu betur tekið af almenn- ingi, en við höfðum þorað að vona. Þessi sýning var fyrst og fremst sett á fót til fjár- öflunar fyrir hjálparsveitiná og tókst það vonum framar, en undirtektir almennings gerðu það að verkum, að ýmsir þeir, sem að sýningunni stóðu, fóru að hugleiða það hvort ekki væri unnt að koma hér á fót raun- verulegu safni sjávardýra. Okkur fannst það í rauninni vansæmandi fyrir jafn mikla fiskveiðiþjóð og íslendingar eru, að hvergi k landinu væri til neitt fiskasafn, þar sem fólk gæti virt fyrir sér hélztu nytjafiska við strendur lands- ns í sem eðlilegustu umhverfi. Við vorum jafnframt sann- færðir um, að grundvöllur væri fyrir slíku safni og áhugi næg ur meðal almennings. Við félagarnir ræddum þessi mál okkar í meðal næstu miss- erin og fengum ýmsa aðra á- hugamenn til liðs við okkur. Þessar athuganir, leiddu til þess að stofnað var Félag á- hugamanna um fiska- og sæ- dýrasafn og í júní 1968 var undirbúningur að stofnun safnsins kominn það langt á veg, að safnið skyldi vera sjálfs eignarstofnun. Félagið, sem stendur að safninu, er opið öll- um gegn 500 króna gjaldi og eru sífellt að bætast nýir félag ar við þann hóp, sem upphaf- lega stóð fyrir byrjunarfram- kvæmdum hér. Mánuði síðar afhenti bæjar- stjórn Hafnarfjarðar okkur svo til umráða 10.000 fermetra landssvæði hér í víkinni, en af því höfum við enn sem komið er ekki getað tekið undir starf semina nema um 1600 ferm. Við unnum svo að öflun safn gripa, byggingu húsa hér á lóð- inni og uppsetningu safnsins þar til í vor, en safnið var opnað fyrir almenning þann 8. maí. — En aðsóknin? — Aðsóknin hefur farið fram úr öllum vonum. Við höfum nær ekkert auglýst, en það sem af er hafa rösklega 47.000 manns heimsótt okkur hér, — og margir oftar en einu sinni. M(e(stur jhefur fólksstraumur- inn verið um helgar og jafn- vel oft á tíðum þá komið svo margt manna, að við höfum átt í erfiðleikum sakir þrengsla. Aðra daga hefur aðsóknin verið jöfn og þegar svo er býst ég við að safngestir hafi mest gagn af heimsókninni hingað því þá hefur okkur gefist mun betri tími til þess að sinna gest um okkar og veita þeim ýmsar Turnfálki þessi settist yfirkominn rúmsjó. Skipverjar fluttu hann í nú að hjarna viff. af þreytu á íslenzkt skip úti á land og gáfu safninu og er fálkinn og svo er eins um þessa fallegu fylgd með kennurum sinum en þó verð ég að segja það, að mér finnst skólarnir hefðu átt að sinna þessu safni betur því ég er sannfærður um, að hér getur skapast aðstaða í sam- bandi við náttúrufræðikennslu, sem hvergi er annars. staðar að fá á íslandi ef undan er skil- ið myndarlegt fiskasafn þeirra Vestmannaeyinga. f fram'tíð- inni hljóta þessi söfn bæði að verða notuð í miklum mæli af skólunum í nágrenni þeirra enda kjörið tækifæri að hag- nýta söfnin til dýrafræði- kennslu á svipaðan hátt og gert er varðandi slík söfn úti í heirni. Ég yil'til gamans geta þess, að í hópi þeirra erlendu ferða- langa, sem hingað hafa komið, var forstöðumaður stórs fiska- safns í Ohio-fylki í Bandaríkj unum. Hann hreifst mjög af þeim möguleikum, sem okkar safn hefur hér og sagði að all- ar aðstæður til þess að reisa hér stórt og fullkomið safn sjávardýra væru mun betri en víðast hvar, þar sem hann hefði séð. Ættum við ekki í þeim erfiðleikum í sambandi við mengun sjávar, sem er- lendis væru nær óyfirstígan- legir fyrir slík söfn. Þessi skoðun sérfræðingsins er tvímælalaust rétt, því þrátt fyrir frumstæðar aðstæður bor ið saman við erlend söfn, þá hefur okkur auðnast að hafa hér fiskitegundir og láta þær þrífast, sem ýmis erlend söfn hafa hreinlega gefist upp á. — Hvert telur þú vera hlut- verk safna, sem þessa? ' Hlutverk þeirra er í raun- inni tvíþætt. Annars vegar til 'skemmtunar og fróðleiks fyrir almenning og hins vegar í tengslum við ýmis vísindastörf. Ég vil sérstaklega geta þess, að íslenzkir fiskifræðingar hafa verið okkur mjög hjálplegir og sýnt málefnum safnsins mikinn áhuga. Hefur tekizt gott sam- starf við þá og mun sjálfsagt eiga eftir að eflast áð mun við tilkomu hins nýja hafrann- sóknaskips okkar íslendinga, Bjarna Sæmundssonar. Feit cg falleg bleikja.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.